Víkurfréttir - 26.02.2005, Qupperneq 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Jóhannes Kr. Kristjánsson (fréttir), sími 421 0004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (fréttir og íþróttir), sími 421 0003, sport@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0014, jbo@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 421 0013, anita@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og vikurfrettir.is
Stefanía Jónsdóttir, sími 421 0012, stebba@vf.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 1010, aldis@vf.is
8 RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband
við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222
©RITSTJÓRNAR BRÉFJóhannes Kr. KristjánssonB L A Ð A M A Ð U R S K R I F A R
Takk fyrir mig!
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222
ER EKKI
LJÓSMYNDARI
Á STAÐNUM?
Fyrir nærri þremur árum kom ég til starfa hér á Víkurfréttum sem blaðamaður. Síðan ég hóf störf hafa tæplega 150 Víkurfréttir
komið út; töluverður fjöldi TVF; þúsundir frétta
á fréttavef Víkurfrétta vf.is auk fjölmargra annarra
útgáfuverkefna sem Víkurfréttir annast útgáfu á.
Ræturnar mínar eru fyrir vestan. Mér líður vel í faðmi fjalla - í þröngum dölum vest-firsku „alpanna” þar sem náttúran skartar
sínu fegursta. Ég er mikill Vestfirðingur! En núna
er ég einnig kominn með sterkar rætur á Suður-
nesin. Hér er gott að vera og í hverju horni sé ég
tækifæri. Eftir að langþráðum áfanga tvöföldunar
Reykjanesbrautar var náð tel ég að Suðurnesin
verði raunverulegur valkostur fólks af stór-Reykja-
víkursvæðinu til að búa á, en stunda jafnframt
vinnu í Reykjavík.
Ég hef ekið brautina nokkrum sinnum í viku síðustu 3 ár og mér hefur alls ekki líkað það illa. En ég ætla ekki að líkja því saman
hvernig það er að keyra brautina nú og áður en
hluti hennar var tvöfaldaður. Það er allt annað líf!
Þegar ég var að byrja á blaðinu fór ég að hugsa hvernig væri hægt að setja 20 fréttir af Suðurnesjum á vf.is á hverjum degi. Hugs-
aði með mér hvernig í ósköpunum það væri hægt
að ná í þessar fréttir. En það kom fljótt í ljós að
það var ekkert vandamál - fréttirnar eru allsstaðar.
Það eru sögur í hverju húsi, hverjum bílskúr og
hverju fyrirtæki. Nóg af fréttum. Ef maður lendir
í vandræðum með fréttir einn daginn þá hringir
maður í kallanna á vigtinni í Keflavík, Grinda-
vík eða Sandgerði. Eftir slíkt símtal er maður að
minnsta kosti kominn með 2-3 fréttir.
Og það er nóg af áhugaverðu fólki til að tala við hér á Suðurnesjum. Viðtölin sem ég hef tekið síðan ég byrjaði eru að nálg-
ast hundraðið - allt viðtöl við áhugavert fólk. Á
ritstjórn Víkurfrétta á hverjum degi koma upp
hugmyndir um fólk sem við viljum tala við. Góð
mannlífsviðtöl sem fólk hefur gaman af að lesa.
Víkurfréttir hafa einnig tekið á ýmsum málum hér á Suðurnesjum. Fréttaskýr-ingar hafa birst um hin ýmsu málefni og
hafa margar þeirra hreyft við málum - bætt samfé-
lagið. Metnaður Víkurfrétta, sem komið hefur út í
25 ár, liggur ekki síst í því að hreyfa við hlutum og
benda á atriði sem betur mega fara í samfélaginu
og það er einmitt hlutverk fjölmiðla.
Víkurfréttir kveð ég með söknuði og allt það frábæra starfsfólk sem hér vinnur. Undir styrkri stjórn Páls Ketilssonar hef
ég lært mikið í blaðamennsku og það nýtist mér
í framtíðinni. Víkurfréttir þjónusta nokkra af
stærstu fjölmiðlum landsins og reglulega vitna
stóru fjölmiðlarnir í fréttir sem birtast annaðhvort
á vf.is eða í Víkurfréttum. Það er til marks um
vandaða blaðamennsku sem hér er stunduð. Ég
vil nota tækifærið og þakka mjög ánægjuleg sam-
skipti á síðustu þremur árum.