Víkurfréttir - 26.02.2005, Blaðsíða 11
VÍKURFRÉTTIR I 8. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 2005 I 11
Sumarafleysingastörf
Fríhöfnin ehf. óskar eftir að ráða sumarstarfsfólk í vaktavinnu í verslun og á lager
fyrirtækisins, bæði í hluta- og heilsdagsstörf. Umsækjendur þurfa að geta hafið
störf 1. júní n.k. Í boði eru afleysingastörf, bæði til þriggja og sex mánaða.
Störfin felast í afgreiðslu og áfyllingum í verslun og á lager. Við leitum að
reyklausum, snyrtilegum og þjónustuliprum einstaklingum.
Hæfniskröfur:
- Góð þjónustulund
- Tungumálakunnátta
Nýir umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að sækja stutta undirbúningsþjálfun
áður en starf hefst.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Fríhafnarinnar í Leifsstöð og á
heimasíðu flugstöðvarinnar www.airport.is.
Umsóknum ásamt ljósmynd skal skila fyrir 7. mars n.k.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Upplýsingar um starfið veitir starfsþróunarsvið í síma 425 0432 fyrir hádegi.
Tölvupóstfang: thorunn@fle.airport.is
FRÍHÖFNIN
Fríhöfnin ehf.
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Aldurstakmark 20 ár
Föstudaginn 28. janúar fóru 13 unglingar og 2 starfsmenn í samfloti
með öðrum félagsmiðstöðvum
til þess að taka þátt í und-
ankeppni Söngkeppni SamFés,
sem eru samtök félagsmið-
stöðva á Íslandi. Ferðinni var
heitið til Vestmannaeyja, en
þar var undankeppnin haldin
að þessu sinni.
Af 17 félagsmiðstöðvum í Suð-
urkjördæmi komust einungis
fimm áfram. Skemmst er frá
því að segja að framlag Trufl-
aðrar Tilveru úr Garði komst í
gegnum niðurskurðinn. Verður
það að teljast svolítið afrek því
keppnin var gríðarlega mikil og
mikið lagt í hana af öllum fé-
lagsmiðstöðvum úr Suðurkjör-
dæmi. Verður Félagsmiðstöðin
Trufluð Tilvera ein af 28 kepp-
endum í Söngkeppni SamFés
sem verður haldin í byrjun
mars, í Mosfellsbæ.
Söngur Írisar Einarsdóttur, 15
ára Garðmeyjar var framlag
Truflaðrar Tilveru að þessu
sinni, söng hún lagið „I will sur-
vive” af mikilli innlifun og átti
náð fyrir augum fjölskipaðrar
dómnefndar. Er þarna á ferð-
inni gífurlegt söngefni og kæmi
alls ekki á óvart að sjá hana í
IDOL og ná langt. Garðmenn
mega vera stoltir af henni.
Vel heppnuð ferð í alla staði,
ef frá er talin sjóveiki á leið-
inni til og frá Eyjum, bæði hjá
unglingum og starfsmönnum.
Komið var heim á sunnudags-
kvöldið 30. janúar, svolít ið
þreyttir og slæptir ferðalangar
en umfram allt í mjög góðu
skapi.
Bestu kveðjur,
Agnar Júlíusson - starfsmaður
„I will survive“ kom Truflaðri tilveru áfram
8 Félagsmiðstöðin Trufluð tilvera í Garði:
FRÉTTASÍMINN 898 2222SÓLARHRINGSVAKT
Fréttavefurinn www.vf.is