Víkurfréttir - 26.02.2005, Side 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
ÍRB sigraði á hinu árlega sundmóti KR með ótrú-leg um yf ir burð um um
helgina. Næsta félag í röðinni
var með helmingi færri stig og
telja aðstandendur að þessi ár-
angur gefi góð fyrirheit fyrir
Aldursmeistaramót Íslands í
sumar.
Yngsta kynslóð sundamanna
ÍRB stóð sig sérlega vel og unnu
þau sigur í nánast hverri einustu
grein og oft og tíðum einokuðu
þau jafnvel þrjú efstu sætin.
Þeir sem unnu til gullverðlauna
í yngri flokkunum voru: Soffía
Klemenzdóttir (6 gull), Her-
mann Bjarki Níelsson (4 gull),
Ingi Rúnar Árnason (3 gull),
María Halldórsdóttir (2 gull),
Rúnar Ingi Eðvarðsson (1 gull)
og Svandís Þóra Sæmundsdóttir
(1 gull).
Boðsundssveitir félagsins voru
einnig ósigrandi í öllum boð-
sundum í bæði meyja og sveina-
flokki. Sveitirnar voru þannig
skipaðar. Sveinar: Hermann
Bjarki Níelsson, Ingi Rúnar
Árnason, Rúnar Ingi Eðvarðs-
son og Eyþór Ingi Júlíusson.
Meyjar: Soffía Klemenzdóttir,
María Halldórsdóttir, Svandís
Þóra Sæmundsdóttir og Hildur
Ýr Sæbjörnsdóttir.
Í stigakeppni einstaklinga stóð
sundfólk ÍRB sig vel. Í meyja-
flokknum var Soff ía Klem-
enzdóttir í fyrsta sæti og María
Halldórsdóttir í öðru sæti, og í
sveinaflokknum var Hermann
Bjarki Níelsson í fyrsta sæti og
Ingi Rúnar Árnason í öðru sæti.
Eldri sund menn irn ir voru
einnig að standa sig mjög vel
og í sumum greinum voru þau
að vinna þrefaldan sigur. Eldri
sundmennirnir eru nú í stífum
æfingum því framundan er Ís-
landsmeistaramótið um miðjan
mars, en þar er stefnt á toppinn
eins og endra nær.
Eitt met var sett af liðsmanni
ÍRB. Erla Dögg Haraldsdóttir
setti stúlknamet í 50m bringu-
sundi og bætti það gamla um
2/10 úr sek. Þá gerði Tinna Rún
Kristófersdóttir sér lítið fyrir
og tryggði sér sæti í unglinga-
landsliðinu með frábæru sundi í
200m bringusundi þar sem hún
lenti í öðru sæti.
Í stigakeppni einstaklinga 15 ára
og eldri varð Erla Dögg Haralds-
dóttir í öðru sæti í kvennaflokki
á eftir dönsku sundkonunni
Mette Jacobsen og Birkir Már
Jónsson varð þriðji í karlaflokki.
Sannarlega glæsilegur árangur
og lofar góðu fyrir tímabilið
sem er framundan.
ÍRB sigrar á KR-mótinu fjórða árið í röð
Stefán þakkar fyrir sig
Ó m a r J ó -
h a n n s s o n ,
knattspyrnu-
markvörður,
hefur gengið
t i l i ð s v i ð
Kefla vík að
nýju . Þess i
öflugi mark-
vörður stóð milli stanganna
hjá Keflavík fram á síðasta
ár þeg ar hann hélt út til
Svíþjóðar og lék þar með
Bunkeflo.
Auk þess hefur Bjarni Sæ-
mundsson, fyriliði Njarðvík-
urliðsins, skipt yfir til Kefla-
víkur á lánssamningi, en
Njarðvíkingar féllu í 2. deild
í sumar.
Keflvíkingar hafa því fengið
tvo sterka menn til liðs við
sig, en bet ur má ef duga
skal því að nær allir lykil-
menn félagsins, sem vann
bikartitilinn á síðasta ári,
hafa haldið á braut. Þ.á.m.
Þórarinn Kristjánsson, Haraldur
Gumundsson og Stefán Gíslason.
Ómar og Bjarni
til Keflavíkur
Stjórn Keflavíkur, íþrótta-og ungmennafélags, var öll endurkjörin á aðal-
fundi félagsins sem haldinn var
í vikunni.
Í stjórn sitja: Einar Haraldsson
formaður, Kári Gunnlaugsson
varaformaður, Þórður M. Kjart-
ansson gjaldkeri, Sigurvin Guð-
finnsson ritari og Birgir Ingi-
bergsson meðstjórnandi.
Á aðalfundinum var samþykkt
eftirfarandi ályktun:
Aðalfundur Keflavíkur, íþrótta-
og ung menna fé lags fagn ar
ákvörð un bæj ar yf ir valda í
Reykjanesbæ um að hefja und-
irbúning að nýju íþróttasvæði
fyrir ofan Reykjaneshöll.
Aðalfundurinn fagnar einnig
ákvörð un bæj ar yf ir valda í
Reykjanesbæ að byggja 50 metra
innilaug við Sundmiðstöðina í
Keflavík sem verður tilbúin til
notkunar í mars 2006.
Á fundinum hlaut Sigurbjörn
Gunnarsson starfsbikar Kefla-
vík ur. Hef ur hann starf að
mikið fyrir íþróttahreyfinguna.
Hóf feril sinn með því að sitja
í unglingaráði UMFK 1974,
í stjórn UMFK 1977 - 1987,
fram kvæmda stjór i UMFK
1980, varamaður í stjórn ÍBK í
nokkur ár, framkvæmdastjóri
Landsmóts UMFÍ 1984 sem var
haldið í Keflavík og Njarðvík,
hlaut silfurmerki UMFK 1989.
Sigurbjörn var í stjórn UMFÍ í
18 ár, situr í lottónefnd UMFÍ,
rekstrarstjórn Þrastalundar og
hefur setið í stjórn Íslenskrar get-
spár frá 1987. Sigurbjörn hefur
setið í ýmsum öðrum nefndum
og ráðum og hlaut gullmerki
UMFÍ 1999.
Á aðalfundinum var Rúnar
V. Arnarson, formaður knatt-
spyrnudeildarinnar, sæmdur silf-
urmerki Keflavíkur fyrir 10 ára
stjórnarsetu, og Erlingur Hann-
esson var sæmdur bronsmerki
félagins sem og Hrannar Hólm
körfuknatteiksdeild, Lilja Karls-
dóttir badmintondeild og Rúnar
Georgsson körfuknattleiksdeild.
Bronsmerkið er veitt fyrir fimm
ára stjórnarsetu.
Á fundinum veitti Birgir Gunn-
laugsson stjórnarmaður UMFÍ
þeim Guðjóni Axelssyni, Sig-
urvini Guðfinnssyni og Þórði
Magna Kjartanssyni stjórnar-
mönnum í aðalstjórn Keflavíkur
starfsmerki UMFÍ.
Stefán Gíslason, miðvallarleikmaður Keflavíkur, hefur verið seldur til norska úrvalsdeildarliðsins Lyn í Osló. Rúnar Arn-arson, formaður knattspyrnudeildarinnar, sagði í samtali
við Víkurfréttir að Keflvíkingar hafi fengið ásættanlegt verð fyrir
leikmanninn.
„Það er klárt mál að við þurfum nú að herða róðurinn í að fá
nýja leikmenn.Við munum samt gefa okkur tíma til að finna réttu
mennina. Þetta er mikil blóðtaka en við verðum að bíta á jaxlinn og
stoppa í götin.“
Stefán sendi heimasíðu stuðningsmanna Keflavíkur þar sem hann
þakkar fyrir árin tvö sem hann átti í Keflavík og skilninginn sem
hann mætti hjá öllum sem koma að félaginu. „Það er alveg á hreinu
að Keflavík á bestu stuðningsmenn á landinu, þeir eru kannski ekki
fjölmennastir en þeir eru bestir. Eins og nýji þjálfarinn hefði sagt
„Það er ekki magnið sem skiptir máli heldur gæðin!!!!”
Unglingamót í hópfimleikum fór fram í íþróttahúsinu við Sunnu-
braut laugardaginn 19. febrúar. Fjölmörg lið mættu til leiks og
mátti sjá skemmtileg tilþrif. Framkvæmd mótsins fór vel fram
og voru pallarnir þéttsetnir af aðstandendum sem hvöttu sín lið
með ráðum og dáð.
Stefán fagnar Bikarmeitaratitlinum með félögum
sínum í Keflavík.
Stjórn Keflavíkur endurkjörin
Halldór Karlsson,
fyrirliði
Njarðvíkurliðsins,
tryggði sínum
mönnum nauman
sigur á Fjölni, 77-79,
með körfu um leið og
leiktíminn rann út.
Baráttujaxlinn Halldór
blakaði boltanum
ofan í eftir að skot
Brentons Birmingham
hafði geigað.
Púttklúbbur Suðurnesja bar
sigurorð af Púttfélögum frá
Hrafnistu í Hafnarfirði í hinu
árlega móti liðanna í síðustu
viku. Keppendur voru 42 og
voru keppendur PS í efstu
sætum í bæði karla og kvenna-
flokki.
María Einarsdóttir sigraði á
65 höggum og með 9 bíngó
og Guðmundur Ólafsson
var hlutskarpastur karla á
61 höggi. Hann var með 12
bingó.
Veitt voru verðlaun sem fyr-
irtæki í bænum gáfu og Pútt-
klúbburinn var með kaffiveit-
ingar að móti loknu.
Púttarar lögðu
Hafnfirðinga