Víkurfréttir - 26.02.2005, Qupperneq 27
VÍKURFRÉTTIR I 8. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 2005 I 27
©FRÉTTASÍMINNSÓLARHRINGSVAKT898 2222
Í Keflavík lífið svo lukkulegt var
þegar lítill snáði fæddist þar.
Í fótbolta fór hann um víðan völl
Á Jónsmið fór hann en þó er ekki sagan öll.
Á tryllitæki fór hann um allar trissur,
tátur og sveinar vildu það reyna.
Hjólið var betra en allar hryssur
þið vitið hvað ég meina.
Á seinni árum hann félag sitt studdi,
stjórnaði Nes og Sparisjóðnum okkar.
Gummi gullna veginn ruddi,
glaðlega, já! Gummi rokkar.
Hann er sannur afmælisdrengur,
svona alveg eins og gengur.
Heillaóskir honum til handa,
heill sé þér að vanda.
Kveðja frá samstarfsfólki í
Sparisjóðnum í Keflavík.
Afmæli
8 Kallinn á kassanum
ÞAÐ VAR SKEMMTILEGT fyrir Kallinn að lenda
á Keflavíkurflugvelli í vikunni. Kallinn var að
koma frá Egilsstöðum (Og ekki nóg með það því
Kallinn lá með flensu fyrir austan í nokkra daga
og af þeim sökum birtist enginn pistill síðast)
með Flugfélagi Íslands og vegna þoku í Reykjavík
var lent á Keflavíkurflugvelli. Kallinn sannfærðist
enn frekar í þeirri trú sinni að innanlandsflugið
eigi að flytjast hingað. Það er bara það eina rétta
í stöðunni.
LANDSBYGGÐARFÓLKIÐ er gjarnt á að full-
yrða að það hætti að fljúga til höfuðborgarinnar
verði innanlandsflugið flutt á Suðurnesin. Kallinn
veltir því fyrir sér hvernig í ósköpunum það megi
vera. Þessi rök halda ekki - engan veginn!
REYKJAVÍKURBORG ætti að sjálfsögðu að taka
ákvörðun um það að flytja innanlandsflugið úr
borginni. Það vantar alltaf byggingarland í borg-
inni og til að auka framboðið á íbúðabyggð að
rísa á svæðinu. Steinunn Valdís borgarstýra hlýtur
að sjá ljósið í þessum efnum - Kallinn hefur ekki
trú á neinu öðru.
NÚ ERU FRJÁLSLYNDIR búnir að boða fram-
boð til sveitarstjórnarkosninga í Reykjanesbæ.
Kallinn fagnar þeim og hann spáir því að þeir
muni verða í oddaaðstöðu við myndun næsta
meirihluta. Frambærilegur málflutningur hjá rögg-
sömu fólki sem vill aftur færa milljarðaauðlindir
í hendur fólksins í landinu. Kallinn styður þá
hugmyndafræði og nú er bara að bíða eftir og sjá
hvaða andlit verði á lista flokksins.
LOKSINS ERU farnar að berast fréttir frá Reykja-
nesvirkjun - stærstu einstöku framkvæmd á
Suðurnesjum hin síðari ár. Það er verið að tala
um framkvæmd upp á 10 milljarða króna - tíu-
þúsund milljónir! Og forstjórinn sagði í fréttum
Stöðvar 2 að hugsanlegt væri að orkuframleiðslan
yrði tvöfölduð tveimur árum eftir gangsetningu.
Ótrúlegar framkvæmdir sem allir hljóta að vera
ánægðir með. Það skemmtilega við jarðgufuvirkj-
anir er að þær eru mun umhverfisvænari heldur
en vatnsaflsvirkjanirnar.
ANNARS VAR KALLINN að hugsa þegar hann
leit niður á melinn sunnan við Patterson flugvöll
á leið inn til lendingar með Flugfélagi Íslands
á Keflavíkurflugvelli, hvað væri að frétta af bíla-
brautinni sem rætt var um. Fyrir ekki svo löngu
fluttu Víkurfréttir og aðrir fjölmiðlar fréttir af hug-
myndum um að koma upp dekkjaprófunarbraut
á melnum og í hrauninu. Framkvæmd upp á fleiri
hundruð milljónir króna. Hvar ætli það verkefni
hafi dalað uppi? Eða er allt á fullu? Ja, spyr sá sem
gjörsamlega ekkert veit!
EN NÓG Í bili! Þangað til næst,
Kveðja, kallinn@vf.is
Með innanlandsflugi til Keflavíkur