Víkurfréttir - 07.04.2005, Page 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Gagngerar breytingar hafa verið gerðar á af-greiðslusal Sparisjóðs-
ins í Keflavík. Stóra breytingin
er sú að tekið hefur verið upp
númerakerfi fyrir allar af-
greiðslur, hvort sem farið er
til gjaldkera, þjónustufulltrúa
eða vegna annarra erinda. Sam-
hliða þessari breytingu hafa
gjaldkerastúkur fengið andlits-
lyftingu og eru þær nú fjórar
talsins. Nú þarf fólk ekki að
standa í biðröð fyrir framan
gjald kera held ur tek ur sér
númer við afgreiðslutæki sem
staðsett er í miðjum salnum,
fengið sér kaffi og sest niður
þangað til þeirra númer birt-
ist á skjáum í sal. Þjónustu-
fulltrúum í sal hefur fjölgað
og nú geta viðskiptavinir tekið
númer hjá sínum þjónustu-
fulltrúa með því að þrýsta á
mynd af honum á skjánum á
afgreiðslutækinu eða beðið um
næsta lausa þjónustufulltrúa.
Þessi breyting mun einfalda
aðgengi að þjónustufulltrúum
svo um munar. Jafnframt hefur
skrifstofum og þjónustubásum
fjölgað í afgreiðslunni í Kefla-
vík og mun þessi nýja ásýnd
auka þjónustustig Sparisjóðs-
ins enn frekar.
V I C H Y . H E I L S U L I N D H Ú Ð A R I N N A R
Kynning á Thermal Fix rakalínunni
í Lyf & heilsu Keflavík, 7. og 8. apríl kl. 14-18
Snyrtifræðingur verður á staðnum og gefur góð ráð.
Verslaðu fyrir 2.000 kr. eða meira og freistaðu gæfunnar.
Veglegur vinningur frá Vichy verður dreginn út 11. apríl.
Keflavík
www.vichy.com
Húðin inniheldur vatn sem hún
bindur til að viðhalda réttum raka.
stuttar
F R É T T I R
Málþing um sögu-
tengda ferðaþjónustu
í Reykjanesbæ
Málþing í Reykjanesbæ um
Nýtt landnám, sögutengda
ferðaþjónustu verður haldið
þann 8. apríl kl. 14-18. Mál-
þinginu er ætlað að varpa
ljósi á þá miklu grósku sem
einkennir sögutengda ferða-
þjónustu á Íslandi. Einkum
verður fjallað um ferðaþjón-
ustu er byggir á Íslendinga-
sögunum og tímabilinu fram
til 1300. Er Sögueyjan loks
að rumska og hvað ber fram-
tíðin í skauti sér? Málþingið
er haldið í samvinnu Reykja-
nesbæjar og Evrópuverkefnis-
ins Destination Viking Saga-
lands. Aðgangur er ókeypis.
Á sunnudag var óskað eftir
lögreglu að Flughótelinu í
Reykjanesbæ. Þar hafði varn-
arliðsmaður tekið herbergi
ásamt íslenskri stúlku sem
hann hafði hitt á skemmti-
stað um nóttina. Er varnar-
liðsmaðurinn vaknaði var
stúlkan horf in og einnig
jakki hans GSM sími og 54
dollarar.
Þá var einn ökumaður tek-
inn grunaður um ölvun við
akstur og tvö ölvunarútköll
bárust. Gisti einn aðili fanga-
geymslu.
Varasöm kynni
á hótelherbergi
8 Sparisjóðurinn í Keflavík:
Númer í stað biðraða
www.vf.is
Fréttavefurinn