Víkurfréttir - 14.04.2005, Page 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Borghildur Svavarsdóttir, einstæð 3ja barna móðir úr Reykjanesbæ:
Eins gott að vera ekkert
að grínast hérna. Það
gæti orðið að frétt
í DV á morgun!
MUNDI
Mundi
stuttar
F R É T T I R
8 Könnun á vf.is:
Bláa lónið hf. og Flugstöð Leifs Ei ríks son ar hf. hafa gert með sér samn-
ing um rekstur BLUE LAGOON
verslunar innan verslunar Ís-
lensks markaðar (búð í búð)
í Flugstöðinni. Grímur Sæ-
mundsen, framkvæmdastjóri
Bláa lónsins, og Höskuldur
Ásgeirsson,framkvæmdastjóri
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar,
undirrituðu samninginn og fór
undirritunin fram í Flugstöð-
inni.
BLUE LAGOON húðvörur hafa
um árabil verið fáanlegar í Ís-
lenskum markaði. Sú breyting
verður nú á að Bláa lónið mun
fá til umráða afmarkað svæði
innan verslunarinnar þar sem
fyrirtækið mun reka sjálfstæða
verslun.
Samningurinn er einn þáttur í
að auka fjölbreytni verslunar í
flugstöðvarbyggingunni og veita
fleiri einkaaðilum kost á að vera
með eigin rekstur á svæðinu.
Samningurinn við Bláa lónið
er jafnframt liður í að leggja
niður rekstur Íslensks mark-
aðar í núverandi mynd og setja
hann í hendur einkaaðila. BLUE
LAGOON ICELAND er eitt
þekktasta vörumerki Íslands og
er eigin verslun í Flugstöðinni
jákvætt skref fyrir Bláa lónið og
Flugstöðina.
Auk verslunarinnar í Flugstöð-
inni rekur Bláa lónið verslanir
í Bláa lóninu - heilsulind; í
Ingólfsnausti að Aðalstræti 5 í
Reykjavík auk netverslunar á
www.bluelagoon.is
Blaðamaður DV kokgleypti
aprílgabb Víkurfrétta sem birt-
ist á vefsvæðinu vf.is þann 1.
apríl sl. Í DV þann 2. apríl er
fréttinni slegið upp undir fyrir-
sögninni „Spila bingó í bank-
anum“, þar sem sagt er frá
því að Keflvíkingar hafi tekið
nýju númerakerfi í biðröð-
inni í Sparisjóði bæjarins með
virktum og noti kerfið sér til
skemmtunar meðan beðið
er afgreiðslu. Þá segir að við-
skiptavinir geti borið númer
sitt saman við bingóspjald
gjaldkera og geti unnið vinn-
ing ef númerin passa saman
við bingóspjaldið.
Það upplýsist hér með að frétt
um að viðskiptavinir SpKef
geti spilað bingó í nýju núm-
erakerfi í sparisjóðnum var
uppspuni og skrifuð í tilefni
af 1. apríl.
Í könnun síðustu viku var spurt hvort þátttakendur styddu sameiningu Reykja-
nesbæjar, Sandgerðis og Garðs.
Fjölmargir tóku þátt í könnun-
inni og var útkoman hnífjöfn.
Helmingur svarði spurning-
unni játandi og helmingur neit-
andi. Alls tóku 630 manns þátt
í könnuninni enda tillögur sam-
einingarnefndar sveitarfélaga
mikið álitamál.
Þessa vikuna er spurt hvort þátt-
takendur styðji sitjandi meiri-
hluta í bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar.
Helmingur
með og helm-
ingur á móti
Bláa lónið opnar
verslun í Flugstöðinni
8 Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Spjaldhryggurinn gegnir veiga miklu hlut verki í lík ams upp bygg ingu
fólks - á honum situr hryggur-
inn og er festing við mjaðma-
grindina. Fyrir rúmu ári síðan
fór Borghildur Svavarsdóttir,
fertug þriggja barna einstæð
móðir úr Keflavík, að finna
fyrir verkjum í vinstri fætinum
og viku síðar tóku verkirnir
sig upp í þeim hægri. Hún
leitaði til læknis í lok maí og
niðurstöðurnar úr þeim rann-
sóknum voru sláandi - hún
greindist með staðbundið vefja-
æxli í spjaldhryggnum. Æxlið
óx inn í spjaldhryggnum á
Borghildi og hún fór að finna
fyrir verkjum þegar æxlið fór
að vaxa út úr hryggnum.
Það er létt yfir Borghildi þar
sem hún dvelur á endurhæfing-
ardeild Grensáss í Reykjavík.
Hún fer allra sinna ferða í sér-
stökum stól þar sem hún liggur
bein, eiginlega alveg teinrétt.
Hár hennar er stutt og úr and-
liti hennar skín erfið lífsreynsla.
Börnin hennar þrjú skipta hana
öllu máli. Þau eru á aldrinum
tveggja til sextán ára. Áður en
Borghildur greindist með æxlið
vann hún hjá félagsþjónustu
Reykjanesbæjar þar sem hún
sá um umönnun og þrif hjá
skjólstæðingum hennar. Hún
átti ósköp eðlilegt líf þar sem
börnin voru miðpunkturinn.
„Mér leið bara alveg ofsalega
vel. Kunni vel við mig í starfinu
og hlakkaði til þess á hverjum
degi að fara í vinnuna,“ segir
hún og brosir.
Oft kemur það upp úr kafinu
hjá fólki sem hefur átt við erf-
iða sjúkdóma að eiga, að það
gat með engu móti trúað að
það yrði fórnarlamb sjúkdóma.
Borghildur segir að það sama
hafi gilt um sig. „Ég hugsaði
ekki einu sinni til þess að ég
gæti fengið eitthvað svona. Það
var alltaf svo fjarlægt og svona
eftir á þá hugsaði ég bara með
mér að slíkt myndi ekki koma
fyrir mig. En það gerði það svo
sannarlega,“ segir hún ákveðin
á svip.
Ítarlegt viðtal er við Borghildi
í nýjasta Tímariti Víkurfrétta
sem er komið á alla helstu
blaðsölustaði á Suðurnesjum.
Þegar áföll sem þetta dynja yfir fólk er fjárhagur-
inn eitt það fyrsta sem hrynur hjá fólki. Vinir og
vandamenn Borghildar hafa stofnað reikning í
Sparisjóðnum í Keflavík fyrir þá sem vilja styðja
við bakið á henni og börnum hennar fjárhagslega.
Reikningsnúmerið er 1191-05-415000
og kennitalan er 050664-7169
Fékk krabbamein í spjaldhrygg
- segir sögu sína í Tímariti Víkurfrétta, sem kemur út í dag
DV kokgleypti
aprílgabb
Víkurfrétta