Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.2005, Blaðsíða 26

Víkurfréttir - 14.04.2005, Blaðsíða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Rúnar Ingi Erlingsson, fyrirliði 10. flokks Njarðvíkinga, var að landa sínum 19. titli með 89’ árgangnum í körfuknattleik um helgina þegar Njað- víkingar urðu Íslandsmeistarar. Rúnar var aðeins 5 ára þegar hann byrjaði að æfa og fljótlega eftir það fóru titlarnir að hrannast upp hjá honum. „Þetta byrjaði strax í minnibolta, þá sá maður að við vorum með flottan hóp. Sami kjarninn er búinn að vera að æfa saman síðan í minnibolta og höfum við lagt mikið á okkur. Við höfum verið að æfa fimm sinnum í viku í vetur og svo oft leikir með því. Síðasta sumar æfðum við þrisvar í viku í íþróttahúsinu og svo vorum við tvisvar í viku í Perlunni,” sagði Rúnar, en það verður lítið um sumarfrí hjá honum þar sem hann fer með U-16 ára landsliðinu ásamt fjórum öðrum félögum sínum úr liðinu til Svíþjóðar á Norður- landamótið í maí og svo á Evrópumótið á Spáni í lok júlí, ásamt því að æfa með Njarðvík í sumar. Rúnar hinsvegar lifir og hrærist í körfubolta og er ánægður með að vera á stífum æfingum í sumar. „Svona á þetta að vera, þetta gerist ekki skemmti- legra,” sagði þessi unga skytta í samtali við Víkur- fréttir. Firmakeppni Keflavíkur Sportið sport@vf.is 1 Liverpool - Tottenham X 1 1 2 Charlton - Bolton 1 X 2 1 X 2 1 X 2 3 Southampton - Aton Villa 2 1 1 4 Fulham - Man City 1 1 X 1 X 5 C. Palace - Norwich 1 X 1 X 1 6 Leicester - Wigan 2 X 2 1 X 2 7 Reading - Nott. Forest 1 1 1 8 QPR - Leeds 1 X 2 1 1 2 9 Preston - Cardiff 1 1 1 10 Burnley - Brighton 1 1 1 11 Gillingham - Crewe 1 X 1 1 12 Coventry - Wolves X 2 1 X 2 1 X 13 Hansa Rostock - Stuttgart 2 2 1 Seðill vikunnar Nú er komið að úrslitastundu í Getraunakeppni Keflavíkur. Liðin þrjú eigast við þessari viku og þeirri næstu og sigrar það lið sem hefur flesta rétta eftir vikurnar tvær. Bent er á að enn er hægt að vinna farseðil á leik Arsenal og Liverpool þann 7. maí, en þeir sem tippa fyrir 500 eða meira í K-Húsinu eru í pottinum Viðhaldsdeild Varnarliðsins Njarðvíkurdrengir í 10. flokki tryggðu sér um helgina Íslandsmeist- aratitilinn í körfuknattleik með sigri á Breiðabliki, 85-56 í úrslitaleik. Drengirnir hafa verið með ein- dæmum sigursælir síðustu ár og hafa unnið alla titla sem í boði voru á grunnskólaaldri, fyrstir liða. Þá unnu þeir Scaniamótið tvö síðustu ár. Frá árinu 2000, þegar þeir hófu keppni á Íslandsmóti, hafa þeir unnið 104 af 106 leikjum og hafa unnið 83 leiki í röð. Þeir töpuðu síðast 11. nóvember 2001, gegn Keflavík. Fyrir utan titlana sem þeir hafa unnið í sínum flokki hafa þeir einnig unnið fjóra Íslands- og Bikarmeistaratitla þegar þeir keppa upp fyrir sig í flokkum. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari drengjanna hefur unnið með þeim síðustu 3 ár og var einnig með þá fyrstu tvö árin í minni- boltanum. Hann segir marga samverkandi þætti hafa skilað liðinu eins langt og raun ber vitni. „Þessi árangur hefur kostað gríðarlega vinnu bæði hjá strák- unum og öðrum sem koma að liðinu. Vil ég þá helst nefna Ingólf Ólafsson, fyrrverandi for- mann unglingaráðs og Einar Oddgeirsson núverandi for- mann auk Erlings Hannessonar sem hefur farið fyrir öflugum foreldrahópi. Strákarnir sjálfir hafa lagt mikið á sig, m.a. æft á sumrin þegar önnur lið taka því rólega og þannig að þetta eru margir samverkandi þættir sem skila þessum árangri.” Þrátt fyrir óslitna sigurgöngu í áraraðir segir Einar Árni að værukærð sé eitthvað sem fyrir- finnst ekki hjá þeim og hafa þeir klárað alla sína leiki síðustu árin með miklum yfirburðum. „Það hefur sjaldan komið fyrir að þeir hafi misst einbeitinguna á vellinum og þegar það gerist eru þeir fljótir að ná sér upp aftur. Þeir eru afskaplega einbeittir og spila af fullum krafti allan tím- ann.” Framtíð strákanna er björt á vellinum og er víst að ef fram fer sem horfir munu allnokkrir þeirra verða burðarásar í meist- araflokki Njarðvíkur. „Ég hlakka til að fylgjast með þeim. Ég hef enga trú á öðru en að þeir haldi sínu striki,” segir Einar að lokum. Einstakur árangur Njarðvíkurpilta Þórarinn Kristjánsson skoraði sigurmark með varaliði Aberdeen gegn Motherwell í Skotlandi á þriðju- daginn. Víkurfréttir spjölluðu við Þórar- inn skömmu eftir leikinn. „Ég er náttúrulega ekki búinn að spila í yfir sex vikur og það tók mig smá tíma að komast í gír- inn en svo rann þetta saman. Ég fann hinsvegar aðeins fyrir verk síðustu 15 mínúturnar. Ég byrj- aði að æfa með liðinu nýlega en hef verið að hlaupa í þrjár vikur. Það tognaði illa vöðvi fyrir ofan kúluna á ökklanum þannig að ég hef ekki getað sparkað í bolta meðan ég hef verið að jafna mig, maður verður bara að nota leftarann meira,“ sagði Þórar- inn á léttu nótunum. Næsti leikur liðsins er á laugardag, en óvíst er hvort Þórarinn verði kominn í leikform fyrir þann leik. Þjálfari liðsins var hins vegar ánægður með drenginn í varaliðsleiknum. Annars hafa Þórarinn og fjölskylda verið að aðlagast ífinu í Skotlandi vel. „Veturinn er farinn og sumar og blíða er hérna í Skotlandi núna og við erum búin að aðlagast mjög vel. Þetta eru fínir strákar í liðinu líkt og maður er vanur í Keflavíkinni,“ sagði Þórarinn í Skotlandi. Tóti á skotskónum í Skotlandi Haraldur Guðmunds-son og fé lag ar í Ålesund gerðu jafn- tefli við norsku risana í Ros- enborg 2-2 í norsku úr- valsdeild- i n n i s í ð - ast lið inn laugardag þ a r s e m R o s e n - borg náði að jafna á síðustu mínútum leiksins. Haraldur lék allan leikinn og sagði í samtali við Víkur- fréttir að honum hafi gengið vel í miðvarðarstöðunni á troðfullum leikvelli í Þránd- heimi. Hægt er að lesa viðtal við Harald og kærustu hans, Ingu Láru, í nýju tímariti Víkurfrétta sem komið er á næsta blaðsölustað. Gerir það gott í Noregi Lo g i G u n n a r s s o n , körfuknattleiksmaður frá Njarðvík, lét ljós sitt skína með félagsliði sínu, Giessen 49’ers í þýsku úrvals- deildinni á laugardaginn. Logi, sem hefur ekki fengið að leika neitt að ráði í vetur, skor aði 12 stig og gaf 5 stoðsendingar á 14 mínútum. Hann hleypti lífi í leik sinna manna sem sigruðu á end- anum, 99-83, og var Logi hylltur ákaft af stuðnings- mönnum Giessen í lok leiks. Á heimasíðu Njarðvíkinga kemur fram að þjálfari liðs- ins þakkaði Loga sérstaklega fyrir sigurinn sem kom liðinu í sjötta sæti deildarinnar. Þar er einnig haft eftir Loga að hann vonist eftir að fá fleiri tækifæri eftir frammistöð- una. Logi nýtti tækifærið Hefur unnið 19 titla með Njarðvík Nýr golfkennari hefur tek ið til starfa hjá G o l f k l ú b b i S u ð - urnsja. Hann heit ir Paul Stoll er og er 32 Eng lend- ingur. Paul kom til landsins í vik- unni og er strax byrjaður að kenna byrjendum sem lengra komnum í æfingahúsi GS við Hafnargötu 2 í Keflavík. Paul gerðist PGA golfkennari árið 1992 og hefur kennt síðan bæði í heimalandi sínu og víðar annars staðar, s.s. i Svíþjóð, Tyrklandi, Malasíu, Austurríki, Slóveníu og Póllandi en breskir golfkennarar hafa verið mjög vinsælir víða um heim. Paul hóf að leika golf aðeins tólf ára og stefndi á að verða atvinnumaður í golfi og gerði góða tilraun til þess en ákvað að snúa sér frekar að golfkennslu sem væri öruggari starfsvett- vangur til framtíðar. „Mér líst mjög vel á aðstæður hér hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Ég hef ekki leikið Hólmsvöll en það sem ég hef séð líst mér vel á. Aðstæður til golfkennslu eru fínar í Leirunni og einnig í æfingahúsinu og ég vonast eftir góðu samstarfi við golfara á Suðurnesjum”, sagði Paul. Hægt er panta tíma hjá Paul beint í gsm: 898-0087 og hjá GS í síma 421-4103. Nýr golfkennari til GS

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.