Víkurfréttir - 14.04.2005, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Myllubakkaskóli
Nem end ur í Myllu-b a k k a s k ó l a m u n u frumsýna söngleikinn
Hattur og Fattur í sal skólans
á þriðjudag. Alls munu 38 nem-
endur úr 4.-10. bekk taka þátt
í sýningunni, sem er tileiknuð
minningu Vilhjálms heitins
Ketilssonar skólastjóra.
Æfingar hafa staðið yfir í um
tvo og hálfan mánuð og segja
aðstandendur sýningarinnar að
krakkarnir hafi staðið sig frábær-
lega þó að svona kosti auðvitað
mikla vinnu. Stjórnendur sýn-
ingarinnar eru þær Íris Dröfn
Halldórsdóttir, Freydís Kneif
Kolbeinsdóttir og Gunnheiður
Kjartansdóttir.
Í sýningunni eru 12 lög sem allir
þekkja og syngja nemendurnir
sjálfir allar raddir og bakraddir,
en auk þess er mikið dansað.
Lögin sem krakkarnir syngja
verða til sölu á sýningunum,
en krakkarnir tóku lögin upp á
geisladisk hjá Geimsteini.
Leikritið fjallar um geimver-
urnar Hatt og Fatt sem koma frá
plánetunni Úrídúx. Þeir lenda á
Íslandi, í miðjum Reykjanesbæ,
þar sem þau hitta fyrir þau Óla
og Rósu. Hattur og Fattur ving-
ast við krakkana og lenda með
þeim í ýmsum ævintýrum.
Meðal leikenda í sýningunni
eru þau Brynjar Sigurðsson,
sem leikur Óla, og Lilja Rut Jóns-
dóttir sem er dansari og söngv-
ari.
Brynjar, sem er í 7. bekk, segir
að þetta sé í fyrsta sinn sem
hann leikur á sviði. „Þetta er
mjög gaman og ég hlakka til að
sýna,” sagði þessi efnilegi leikari
sem segist þó ekki viss um að
hann ætli að feta leiklistarbraut-
ina í framtíðinni.
Lilja Rut er í 9. bekk og hefur
æft dans af kappi frá því hún
var lít il. „Þetta er rosa lega
skemmtilegt, sérstaklega á æf-
ingum. Svo er þetta líka góður
félagsskapur.”
Fyrstu tvær sýningarnar eru ein-
ungis fyrir nemendur, en fyrsta
almenna sýningin verður á mið-
vikudagskvöld.
Hattur og Fattur í minningu
Vilhjálms skólastjóra
©RITSTJÓRNAR BRÉFHilmar Bragi BárðarsonF R É T T A S T J Ó R I S K R I F A R
Í nógu að snúast á Víkurfréttum!
Blaðamenn Víkurfrétta hafa haft í nógu að snúast
síðustu daga. Tímarit Víkurfrétta var klárað í
prentun um hádegi á þriðjudag eftir erfiða
fæðingu. Því miður líða alltof margir mánuðir á
milli blaða. Síðasta blað í haust og nú er sumarið
handan við hornið. Blaðið hefur hins vegar aldrei
verið stærra en kaupendur TVF fá nú 72 síður af
Suðurnesjaefni á næsta blaðsölustað. Tímaritið
er áhugavert og markmið þess er að höfða til sem
flestra. Efni þess er kynnt ítarlega í þessu tölublaði
Víkurfrétta og því óþarfi að rekja efni blaðsins
hér.
Netsíðan okkar var að slá enn eitt aðsóknarmetið í
síðustu viku. Rúmlega 23.000 notendur og 56.000
innlit eru staðreynd og þessar tölur höfum við
aldrei séð svona háar áður. „Bein útsending“ á
golfi á Hafnarfjarðar-hluta vefsíðu Víkurfrétta
vakti athygli og þar fylgdust fjölmargir með gengi
Ólafar Maríu Jónsdóttur á atvinnumannamóti
í golfi á Kanaríeyjum. Blaðamaður Víkurfrétta
fylgdi Ólöfu eftir hvert fótmál í fjóra daga og
nákvæmar lýsingar á gengi hennar á mótinu var
að finna á vefnum á slóðinni vf.is og vikurfrettir.is.
Einnig lásu margir íþróttafréttir á vf.is og fylgdust
þar með baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik. Þá hefur mátt fletta hundruðum
ljósmynda í myndagallerýum sem hafa verið gerð
aðgengilegri á vefnum. Fréttaþjónusta Víkurfrétta
á Netinu er eins og best gerist. Eingöngu
Morgunblaðið, Vísir og Ríkisútvarpið eru stærri í
fréttum á Netinu og Víkurfréttir fylgja fast á hæla
þessara miðla og eru með öflugustu fréttaþjónustu
af svæðinu!
Margskonar nýjungar eru á teikniborðinu eða
eru að komast á framkvæmdastig í tengslum við
netmiðilinn okkar. Íþróttaumfjöllun verður öflug í
sumar. Þá mega notendur eiga von á því að fara að
sjá meira af lifandi myndum inni á netinu þegar
sumarið gengur í garð. Víkurfréttir eru að koma
sér upp búnaði til fullvinnslu á sjónvarpsefni og
netsíðan mun njóta góðs af því. Þannig verða
settar inn lifandi myndir með völdum fréttum.
Einnig verður boðið upp á hljóðupptökur. Frá
þessu verður greint nánar þegar nær dregur.
Markaðsdeild Víkurfrétta hefur nýlokið útgáfu á
Reykjaneskorti á íslensku og ensku sem er dreift
í tugþúsundaupplagi um allt land. Þá er hafin
vinna við sumarblað Víkurfrétta, sem jafnframt
er dreift um landið og höfðar til Íslendinga og
er ætlað að benda þeim á kosti Reykjaness þegar
ferðalög innanlands eru annars vegar. Það er því
óhætt að segja að við á Víkurfréttum sitjum ekki
auðum höndum þessa dagana.
Bestu kveðjur, Hilmar Bragi Bárðarson.
Meðal leikenda í sýningunni eru þau Brynjar Sigurðsson, sem leikur
Óla, og Lilja Rut Jónsdóttir sem er dansari og söngvari.