Víkurfréttir - 14.04.2005, Blaðsíða 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Áhorfendur voru ekki sviknir af tónleikum Hljóma og Karlakórsins Heimis sem fóru fram í Stapa á laugardag. Þar sungu sveit-
irnar saman og í sitthvoru lagi margar af helstu
perlum Hljóma og Gunnars Þórðarsonar í bland
við nokkur sígild dægur- og sönglög.
Húsfyllir var í Stapanum þar sem gestir nutu sín
í hljómþýðum söng, en hápunkturinn var án efa
þegar Engilbert Jensen og Óskar Pétursson, stór-
söngvari og kynnir kvöldsins, sungu saman Bláu
augun þín og allur salurinn tók undir.
Á sunnudag lauk tónleikaröð þeirra Hljóma og
Heimis í Háskólabíói, en til stendur að halda fleiri
tónleika á næstunni. Fyrst á Akureyri í byrjun
næsta mánaðar.
8 Menningin blómstrar á Suðurnesjum:
Eftirbátur víkingaskipsins Íslendings var afhjúpaður á vel heppnuðu málþingi um „Nýtt landnám og sögutengda ferðaþjón-
ustu” sem haldið var í samvinnu Reykjanesbæjar
og Evrópuverkefnisins Destination Viking Saga-
lands síðastliðinn föstudag.
Gunnar Marel Eggertsson, skipstjóri Íslendings,
smíðaði eftirbátinn eftir víkingaskipinu stóra en
slíkir bátar voru oft hafðir í eftirdragi á sjóferðum
víkinga - og þaðan kemur nafnið.
Við afhöfnina tók Söngsveitin Víkingar lagið
að víkingasið en að lokinni athöfninni færðu
málþingsgestir sig yfir í Duushús þar sem boðið
var upp á fjölda forvitnilegra fyrirlestra um vík-
ingaarfleið og tengsl hennar við ferðaþjónustu í
landinu.
Eftirbátur Íslendings afhjúpaður
Glæsilegir tónleikar
Hljóma og Heimis