Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.2005, Page 20

Víkurfréttir - 14.04.2005, Page 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! SG Bílar ehf. bílasala eru orðn ir um boðs aðilar Evró, sem selur húsbíla, tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi á Suðurnesjum. SG Bílar verða með stórsýningu á allri vöru sem Evró selur á næstunni. Nú þegar eru komnir nokkrir hús- bílar til sýnis. Hjólhýsi og felli- hýsi eru væntanleg. Merkin sem SG Bílar verða með eru í húsbílum og hjólhýsum eru Adria, Hymer og Miller. Í fellihýsum eru það Fleetwood og hin vinsælu A hús. Ennfremur verða þeir með notaða húsbíla og fellihýsi til sölu. Einnig vilja þeir minna á heimasíðuna sem er www.sgbilar.is og einnig er hægt að fara inná heimasíðu Evró, www.evro.is og skoðað úr- valið sem þar er og haft síðan samband við sölumenn hjá SG Bílum. SG Bíla vantar notaðar bifriðar á söluskrá hjá vegna mikillar sölu undarfarið ennfremur notaða tjaldvagna, hjólhýsi og fellihýsi því efturspurnin er þegar orð- inn mikill, segir í tilkynningu frá SG Bílnum. SG Bílar með húsbíla, fellihýsi og hjólhýsi 8 Bílasalan SG Bílar: Tónlistarskóli Reykja-nes bæj ar er að fá í heimsókn big-band frá Færeyjum, Skansa Big-band. Hljómsveitin er frá Þórshöfn og er skipuð frekar ungum nem- endum. Skansa Big-band og Léttsveit Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar, bæði yngri og eldri deild, halda tónleika í Reykja- nesbæ, þriðjudaginn 19. apríl kl. 19.30 á sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Skansa Big-band og Léttsveit TR munu síðan taka þátt í hinum árlega Stórsveitadegi Stórsveitar Reykjavíkur, sem fram fer í Ráð- húsi Reykjavíkur, laugardaginn 23. apríl frá kl. 12.30 - 17.00. Léttsveit TR, yngri, mun spila kl.14.30, Skansa Big-band mun spila kl. 15.30 og Léttsveit TR, eldri, mun spila kl.16.00. Stór- sveit Reykjavíkur mun svo ljúka Stórsveitadeginum og spila kl.16.30. Skansa Big-band frá Færeyjum og Léttsveit Tónlist- arskólans 8 Eysteinn Eyjólfsson skrifar: Eins og flestum er kunn-ugt þá eru formanns-kosningar í Samfylking- u n n i á n æ s t a leyti. Í framboði eru tveir mikil- hæf ir for ystu- menn, þau Össur Skarphéðinsson formaður Sam- fylkingarinnar og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varaformaður flokksins. Einn maður - eitt atkvæði Tilhögun kosninganna undir- strikar að í engum stjórnmála- flokki á Íslandi fer fram eins lýð- ræðislegt val á forystu. Í þessu vali eru allir flokksmenn jafnir, hér gildir sú einfalda regla að einn maður fer með eitt at- kvæði. Kjör seðl ar verða send ir út til flokksmanna 22. apríl sam- kvæmt kjörskrá sem staðfest er 15. apríl og er um póstkosningu að ræða. Kjörseðlar þurfa að hafa borist skrifstofu flokksins að Hallveig- arstíg 1 Reykjavík fyrir kl. 18:00 19. maí n.k.. Úrslit in verða kynnt á landsfundi Samfylking- arinnar 20. maí 2005. Kjörskrá lokar kl. 18:00 15. apríl Í Reykjanesbæ er starfandi stórt og öflugt Samfylkingarfélag og vil ég hvetja félagsmenn okkar til að nýta sér þann mikilvæga lýðræðislega rétt sem felst í for- mannskjörinu til þess að hafa áhrif á framtíð flokksins. Ég vil einnig hvetja hina fjöl- mörgu stuðningsmenn okkar og kjósendur til þess að skrá sig í flokkinn fyrir kl. 18:00 föstudag- inn 15. apríl og öðlast þannig rétt til að taka þátt í stefnu- mótun flokksins og formanns- kosningunni. Hægt er að hafa samband við undirritaðan í síma 698 1404 eða á netfangið eysteinne@hot- mail.com. Einnig er hægt að hafa samband við skrif stofu Samfylkingarinnar í síma 414 2200. Með lýðræðiskveðju, Eysteinn Eyjólfsson formaður Samfylkingar- innar í Reykjanesbæ Taktu þátt í lýðræðislegu vali Eig enda skipti vor u á veit inga staðn um Ma m m a M í a f y r i r skemmstu. Ólafur Viggó Sig- urðsson tók við pizzuspað- anum og rekur nú staðinn ásamt konu sinni, Elvu Dögg Sverrisdóttur. „Við tókum við fyrsta febr- úar og viðtökurnar hafa verið mjög góðar,” sagði Ólafur í samtali við Víkurfréttir og þakkar fyrir sig. Ólafur er ekki alls ókunnugur í eldhús- inu, en hann starfaði áður á Glóðinni. Hann segir stefnuna hjá sér vera að auka fjölbreytni á matseðli. „Við ætlum að fara í gang með samlokubáta á næstunni og ég vona að við- tökurnar verði enn betri þá.” Nýr eigandi Mamma Mía í Sandgerði

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.