Víkurfréttir - 14.04.2005, Blaðsíða 27
VÍKURFRÉTTIR I 15. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 14. APRÍL 2005 I 27
Garður fær ekki
byggðakvóta
Umsókn sveitarfélags-ins Garðs um byggð-arkvóta var hafnað af
sjávarútvegsráðuneytinu. Þetta
kemur fram í bókun bæjar-
stjórnar frá 6. apríl.
Ástæða þess er sú að ekki hefur
verið um samdrátt að ræða í
aflaheimildum í bænum, heldur
aukning.
stuttar
F R É T T I R
Tekinn réttindalaus
á vinnuvél
Lögreglan í Keflavík stöðvaði
á mánudag ökumann fyrir að
aka án ökuréttinda. Hann ók
vinnuvél og hafði heldur ekki
öðlast réttindi á hana.
Þá var e inn öku mað ur
kærður fyrir of hraðan akstur
á Reykjanesbraut. Mældist
hann á 115 km. hraða að því
er fram kemur í vefdagbók
Lögreglunnar í Keflavík en
það er vitaskuld 90 km. há-
markshraði á Reykjanesbraut.
Fann hassmola í
gamla bænum
Á t t a á r a d r e n g u r s e m
var við leik á Íshússstíg í
Reykjanesbæ í gær fann þar
hassmola og kom með heim
til sín. Drengurinn vissi að
sjálf sögðu ekki um hvað
var að ræða, en grunsemdir
vöknuðu hjá foreldrum hans
sem gerðu lögreglu viðvart.
Grunur þeirra reyndist á
rökum reistur þar sem þetta
var rúmlega fjögurra gramma
þungur hassmoli vafinn í um-
búðaplast.
Foreldrar drengs ins, sem
vildu ekki láta nafns síns
getið, sögðu í samtali við Vík-
urfréttir að drengnum hefði
skiljanlega brugðið er í ljós
kom að um eiturlyf var að
ræða.
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222