Víkurfréttir - 28.04.2005, Side 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Árshátíð Grunnskólans í Sandgerði var haldin í íþróttahúsi bæjarins í síðustu viku. Þar var boðið upp á þrælskemmti-lega leiksýningu yngri bekkjanna þar sem rúmlega 100
börn tóku þátt.
Leikritið fjallaði m.a. um fólkið í „Kardemommugerði” og var byggt
á sögu Thorbjörns Egners.
Krakkarnir léku, dönsuðu og sungu af miklum móð og mátti sjá
fjölmarga sem hafa örugglega ekki sagt sitt síðasta á fjölum leikhús-
anna. Þá var leikmyndin glæsileg og sýndi hún Sandgerðisbæ með
húsum, fyrirtækjum, verslun og vitanum.
Foreldrar og aðrir áhugasamir fjölmenntu til að sjá skemmtunina
og var þéttsetinn áhorfendastúka sem klappaði leikurunum ungu
lof í lófa að lokinni sýningu. Þá var boðið upp á kaffi og meðlæti í
boði foreldra. Um kvöldið héldu eldri bekkir sína skemmtun í sam-
komuhúsinu og voru þar skemmtiatriði, söngur og dans eins og við
var að búast.
Að lok inni árs há tíð Grunnskólans í Sand-gerði á mið viku dag
fengu nemendur góða gjöf
frá Hitaveitu Suðurnesja, staf-
ræna vekjaraklukku sem hægt
er að nota til að minna börnin
á íþróttaæfingar, tónlistar-
skóla og hvað sem er ásamt
því að vekja þau í skólann.
Hita veit an ákvað á 30 ára
afmæli sínu þann 31. desem-
ber að í tilefni tímamótanna
skyldu öll grunnskólabörn á
veitusvæði HS, um 9000 tals-
ins, fá þessa gjöf. Þótti við hæfi
að hefja yfirreiðina í Sandgerð-
isskóla, þar sem Júlíus Jóns-
son, forstjóri HS, sleit einmitt
barnsskónum. Ellert Eiríksson,
stjórnarformaður Hitaveitu
Suðurnesja, afhenti ungum
Sandgerðingum klukkuna en
fyrsta eintakið afhenti hann El-
ínrósu Hrund Torfadóttur en
hún átti 9 ára afmæli daginn
eftir.
8 Árshátíð Grunnskólans í Sandgerði:
Kardemommugleði
Fengu vekjaraklukku frá Hitaveitunni
Soffía frænka lét ræningjana
fá það óþvegið