Víkurfréttir - 28.04.2005, Side 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
öKASSINNPÓST
Á fundi forsætisráðherra hér suðurfrá nýlega kom margt athyglisvert fram
- ekki síst um Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar. Halldór Ásgrímsson
upplýsti að þegar hann kom í
utanríkisráðuneytið 1995 hafi
fjárhagsstaða
FLE verið dap-
urleg. Ekki var
farið að greiða
niður skuldir
af byggingunni
o g á h e n n i
h v í l d u d ý r
og óhagkvæm lán. Ráðherra,
með þáverandi aðstoðarmanni
sínum (Suðurnesjamanninum
Hilmari Þór Hilmarssyni), byrj-
aði að endurfjármagna stöðina
með hagkvæmari lánum og
skipulagði niðurgreiðslu lán-
anna. Stærsta breytingin var
þó sú að breyta fyrirtækinu í
hlutafélag. Við munum mörg
eft ir því hvern ig við brögð
stjórnarandstöðunnar urðu.
Þar höfðu margir uppi stór orð
um hversu hættuleg sú breyt-
ing yrði fyrir svæðið. En hefur
sú orðið raunin? Ekki aldeilis.
Fyrir utan það að borga niður
skuld ir af bygg ing unni þá
hefur verið fjárfest í stækkun
og breytingum fyrir um fjóra
milljarða króna. Í stað þess að
tekjur af FLE rynnu allar í rík-
iskassann þá hefur fyrirtækið
getað ráðstafað þeim til upp-
byggingar á svæðinu. Annars
hefði ríkissjóður tekið þær
all ar (eins og var áður) og
síðan þurft að ná fjármagni í
gegnum Alþingi til að byggja
upp. Allir vita hversu seint það
hefði gengið.
200 ný störf verða til á
næstunni.
Því má segja að breytingin á FLE
í sjálfstætt hlutafélag hafi lagt
grunninn að þeirri stækkun sem
orðið hefur þar á síðustu árum.
Kraftur í rekstrinum er meiri en
nokkru sinni og störfum hefur
fjölgað um nokkur hundruð á
fáum árum. Og mikið er í bí-
gerð. Því er spáð að enn eigi
eftir að fjölga þar um einhver
hundruð starfa. FLE er stóriðja
Suðurnesjamanna. Breytingin
í hlutafélagið FLE er grunnur
þess uppbyggingarstarfs. Hall-
dór Ásgrímsson hafði rétt fyrir
sér þegar hann lagði í þær breyt-
ingar en hinar hávaðasömu úr-
töluraddir fóru villur vega. Í
stjórnmálum er mikilvægt að
hafa skýra framtíðarsýn og kjark
til að fylgja þeim eftir. FLE er
gott dæmi um það. Yfir þús-
und Suðurnesjamanna njóta
góðs af því í dag þar sem FLE
er fjölmennasti vinnustaður
landsins. Ætla má að um 200
ný störf verði til um FLE á allra
næstu árum. Er þá ekki talin
með stækkun á stöðinni fyrir
um 4,5 milljarða. Þeir peningar
hefðu ekki fengist auðveldlega
úr ríkissjóði. Stjórn FLE hefur
hins vegar getað tekið þessa
ákvörðun vegna breytinganna
sem voru gerðar á forminu. FLE
er sannarlega kjarninn í atvinnu-
lífi okkar Suðurnesjamanna af
því réttar ákvarðanir hafa verið
teknar um rekstur hennar.
Hjálmar Árnason,
alþingismaður
Af hverju er FLE stærsti
vinnustaður landsins?
Karlakór Keflavíkur hélt vortónleika sína í Grindavíkurkirkju
föstu dag inn 22. apr íl kl.
20:30.
Komu þeir stormandi inn í
kirkjuna frá útidyrum syngj-
andi létt lag og stilltu sér upp
um alla vídd kirkjunnar, al-
veg ný uppstilling, og tókst
það vel. Nýr söngstjóri, Guð-
laugur Viktorsson, virtist hafa
góða stjórn á þessu öllu. Ein-
söngvarar eru Davíð Ólafsson
og Steinn Erlingsson. Þekktir
söngvarar skiluðu sínum
söng vel, gaman að heyra þá
frændur syngja.
Áður en varði var kom ið
hlé, sem er ótrúlegt því svo
gaman var að maður hrein-
lega gleymdi sér.
Eft ir hlé komu fram tveir
harmonikuleikarar. Rúss-
neskir tvíburar og alveg frá-
bærir tónlistarmenn. Spiluðu
þeir tvö lög við mikla hrifn-
ingu.
Ekki voru kór menn síðri
er þeir tóku til við sönginn
aftur. Nú fannst mér ég far-
inn að þekkja minn gamla
kór aftur.
Undirleikarar með kórnum
voru Sigurður Marteinsson,
píanóleikari, Þórólfur Ingi
Þórs son, bassa leik ari og
harmonikuleikararnir Júrí og
Vadim Fedorov.
Var þet ta f rá bær söng-
skemmtun. Hefðu fleiri þurft
að hlusta því Grindavíkur-
kirkja er alveg frábært hús til
flutnings á tónlist. Hafið kæra
þökk fyrir ánægjulegt kvöld.
Jón M og Sonja
Frábær skemmtun á
kórtónleikumÁ hverju vori hugsa ég um það hve vinnustaðir í sam fé lag inu eru já-
kvæðir gagnvart því að taka á
móti 10. bekkingunum okkar.
Ég vil hér byrja á því að þakka
öllu því góða fólki sem leggur
hönd á plóg inn til þess að
nemendur okkar megi öðlast
þá frábæru reynslu sem þessi
starfskynning er þeim.
Á hverju vori fer 10. bekkur í
starfskynningu. Starfskynningin
hefur verið 2 dagar á vinnustað
að eigin vali. Miðað er við að
nemendurnir fái sjálfir að velja
sér vinnustað eftir áhugasviði
sínu.
Markmiðið með starfskynning-
unni er að vekja áhuga og um-
hugsun nemendana á þeim fjöl-
mörgu starfsvettvöngum sem
eru í boði í lífinu og gefa þeim
tækifæri á að kynnast þeim af
eigin raun, með þátttöku í því
starfi sem vekur áhuga þeirra.
Með þessu er einnig verið að
tengja saman skólastarfið og
atvinnulífið. Þetta er góð og
þroskandi reynsla fyrir krakk-
ana sem víkkar sjóndeildarhring
þeirra.
Annað sem er ávallt ofarlega í
huga námsráðgjafa að vori, er
prófkvíði. Og vil ég hér láta
fylgja smá samantekt sem ég hef
gert um prófkvíða og hvað má
gera til að vinna gegn honum.
Samantekt varðandi prófkvíða.
(efni fengið af netinu).
Há skól inn á Ak ur eyri og
Menntaskólinn við Hamrahlíð
eru tveir af þeim skólum sem
eru með gögn um prófkvíða á
sínum netsíðum. Hér er saman-
tekt á efni frá þeim og fleirum.
Kvíði fyrir próf er eðlilegur og í
sjálfu sér æskilegur en getur þó
farið að verka hamlandi ef kvíð-
inn fer úr böndunum.
Skiptar skoðanir eru á því hvað
veldur prófkvíða og getur það
verið mjög einstaklingsbundið
hver rót vandans er hjá hverjum
einstaklingi. (Ef kvíði sama
hver hann er, er sjúklega mik-
ill og ekkert virðist geta hamið
hann er ráðlagt að leita til sál-
fræðings og fá meðferð).
En þættir sem hafa gefist vel til
að ná niður prófkvíða eru eftir-
farandi:
Undirbúa sig vel fyrir próf, gera
vinnuáætlun um nám sitt, og
huga að því að skipuleggja tíma
sinn. T.d. alltaf hafa ákv. tíma á
dag í heimalærdóm.
Hafa jákvæðar væntingar.
Ef þú ert vel undirbúinn fyrir
próf og hefur trú á því að þér
gangi vel eru allar líkur á að
svo verði. Þannig er það að
hugarfarið skiptir miklu máli
og nauðsyn að temja sér já-
kvætt hugarfar. Ágætt getur
verið að segja aftur og aftur við
sjálfan sig, ég er rosalega góð/
ur í þessu. Jafnvel byrja hvern
morgun á að segja það við speg-
ilinn! Ekki hugsa neikvætt um
sjálfan þig eða getu þína. Ef
þannig hugsanir eru að læðast
inn stoppaðu þær með því að
segja í huganum , “nei , ég er
rosalega klár! Og kann þetta
alveg!”
Til að vera í góðu formi fyrir
próf, andlega og líkamlega, þarf
m.a. að huga að hollu mataræði,
rétt samsettri fæðu, og hreyf-
ingu!
Í prófinu sjálfu
Hlustaðu vel á allar munnlegar
leiðbeiningar við upphaf prófs.
Lestu vel allar skriflegar leiðbein-
ingar.
Lestu prófið yfir (áður en þú
byrjar að svara) og gangtu úr
skugga um að þú skiljir útskýr-
ingar og fyrirmæli. Ef þú þarft
að fá útskýringar merktu við þá
staði og spurðu kennarann.
Svaraðu spurningum sem þér
finnst auðveldar fyrst.
Athugaðu vægi spurninga og
áætlaðu tíma í þær út frá vægi.
Alltaf fara vel yfir próf áður en
þú skilar því!
Gangi þér vel og mundu, þú ert
frábær!
Með bestu kveðju, Sigríður Dúa
Goldsworthy
Námsráðgjafi Njarðvíkurskóla.
Starfskynningar 10. bekkinga!