Víkurfréttir - 30.06.2005, Qupperneq 1
�������������������������������� ��������������������������
�����������������������������������������������������������
���������������������
��������
Vikurfrettir_HEKLU_borði_fin2.FH11 Tue Apr 05 14:42:09 2005 Page 1
Composite
C M Y CM MY CY CMY K
26. tölublað •
26. árgangur
Fimmtudaguri
nn 30. júní 20
05
90,1% Suðurnesjamanna lesa Víkurfréttir vikulega
AÐSETUR: GRUNDARVEGUR 23 • 2. HÆÐ • 260 REYKJANESBÆR • SÍMI 421 0000 • WWW.VF.IS • FRÉTTAVAKT: 898 2222
FLUGHERINN AÐ TAKA VIÐ
Ný matvöruverlsun mun opna í Njarðvík á morgun, föstudag,
þegar verslunin Kostur
opnar þar sem Fíabúð var
áður. Undanfarið hafa staðið
yfir miklar breytingar á
húsnæði verslunarinnar og
sagðist Rúnar Lúðvíksson,
verslunarmaður, bjartsýnn
á hverfisverslunina.
Kostur opnar
í Njarðvík
- á morgun
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli:
Byggðasafnið á Garðskaga opnar formlega í nýju safnahúsi nk. sunnudag, 3. júlí. Þá opnar einnig nýr útsýnis-
og veitingastaður á Garðskaga, Flösin, sem verður opinn alla daga kl. 13 - 24. Þar eru í boði léttar veitingar og
hægt að njóta útsýnis á Garðskaga. Byggðasafnið er opið kl. 13-17 alla daga og á sama tíma er hægt að fara
upp í Garðskagavita á sama tíma. Aðalsmerki safnsins á Garðskaga er vélasafn Guðna Ingimundarsonar, sem er
stórmerkilegt, en Guðni hefur síðustu ár gert upp fjölda véla úr bátum og öðrum farartækjum. Þá verður einnig
á safninu elsti bátur Íslands. Sjón er hins vegar sögu ríkari og því vert að kíkja í safnið á Garðskaga næsta
sunnudag eða einhvern annan dag í sumar. Myndin er úr safninu þar sem unnið er að undirbúningi sýningar og
því „allt í drasli“ eins og sjá má á myndinni. Það sem sumir telja drasl, finnst öðrum vera safngripir og þeir eru
margir ómetanlegir á safninu í Garði. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Fróðlegt og skemmtilegt safn opnar á Garðskaga
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Víkur-frétta mun flugherinn taka við rekstri her-stöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli 1. október
á næsta ári og er undirbúningsvinna vegna þess í
fullum gangi hjá hernum.
Flugherinn mun byrja hægt og rólega að taka við
verkefnum frá 1. október á þessu ári til 30. september
á næsta ári. Til marks um þessa yfirtöku er flugher-
inn nú þegar farinn að ræða olíusamninga og deildir
innan hersins eru farnar að skoða það sem þarf að
lagfæra og endurnýja á herstöðinni fyrir flugherinn.
Þau verkefni sem flugherinn mun taka við frá með 1.
október á þessu ári eru t.d. samningar við hin ýmsu
fyrirtæki og má þar nefna ÍAV, Keflavíkurverktaka og
olíufélögin.
Samkvæmt sömu heimildum er nú verið að kanna
hversu mikið fjármagn þarf til þess að vera með
fjórar þotur á Íslandi allan ársins hring en hingað
til hafa þoturnar ekki haft fasta viðveru hér á landi.
Þoturnar munu koma frá flugvelli breska flughersins
RAF sem staðsettur er í Lakenheath í Englandi en þar
er stærsti floti F-15 þotna í Evrópu.
Samkvæmt heimildum Víkurfrétta hafa komið
hingað menn frá flughernum til að kanna aðstæður
og það staðfestir Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi
Bandaríkjahers, í samtali við Víkurfréttir í dag. „ Það
gefur augaleið að úr því að þessi lausn hafi verið í
deiglunni á undanförnu þá hafi komið hingað aðilar
frá Flughernum til að kanna aðstæður ef að til þess
kæmi að þeim yrði falið að taka við rekstrinum.”