Víkurfréttir - 30.06.2005, Qupperneq 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
Brotist var inn í bifreið af gerðinni Pontiac GRAND AM sem stóð
á bryggjunni í Sandgerði ein-
hvern tímann fyrir 17. júní
síðastliðinn.
Um stórþjófnað var að ræða
þar sem ýmsum búnaði var
stolið sem er að verðmæti 300
þúsund krónur auk skemmda
á bifreiðinni sem eru á hálfa
milljón.
Tekinn var skjár, kassettu-
tæki, tónjafnari, geislaspilari,
4 rása 1200 watta magnari,
tveir 300 watta hátalarar, tveir
400 watta hátalarar ásamt
tveimur rafmagnsgeymum.
Þeir sem eitthvað vita um
þetta innbrot eða geta gefið
upplýsingar um grunsam-
legar mannaferðir á bryggj-
unni eru vinsamlegast beðnir
um að hafa samband við Lög-
regluna í Keflavík.
Einn var fluttur á Heil-brigð is stofn un Suð-ur nesj a (HSS) eft ir
tveggja bíla árekstur á gatna-
mótum Faxabrautar og Skóla-
vegar, laust fyrir klukkan 19
á mánudag. Aðrir voru fluttir
til aðhlynningar, upp á HSS að
skýrslutöku lokinni og fengu
svo að fara heim.
Að sögn lögreglu virðist sem
ökumaður Nissan bifreiðarinnar
hafi ætlað að taka framúr Benz
bifreiðinni en lenti í stað þess á
afturenda bílsins. Nissanbíllinn
lenti í nærliggjandi garði en að
sögn húseiganda voru heimilis-
menn innanhúss þegar slysið
varð.
Töluvert sér á bílunum og telja
má öruggt, með að skoða fram-
rúðu Nissan bifreiðarinnar, að
farþegi í bílnum af gerðinni
Nissan hafi ekki verið í bílbelti.
Stjórþjófnaður í
Sandgerði
Alls sóttu 235 nýnemar um skólavist í Fjöl-brautaskóla Suðurnesja. Að sögn Krist-jáns Ásmundssonar er vonast til að allir
nemendur fái inngöngu í skólann. „Þetta er allt
spurning um ígildi sem skólinn fær greitt fyrir
frá ríkinu. En skólinn er með ígildi fyrir um 810
nemendur.“
Ekki þýðir það að pláss sé fyrir 810 nemendur en
ígildið er reiknað út frá heildar einingafjölda allra
nemenda skólans sem er svo deilt á meðal eininga-
fjölda nemenda. „Fjölbrautaskólinn hefur pláss
fyrir þessa nemendur en með nýnemum eru þeir
orðnir yfir 1000. Þetta er allt spurning um hversu
marga við fáum að taka inn.“
„Það eru nýnemarnir sem ganga fyrir en þeir sem
eru eldri og hafa áður sótt um skólavist en snúist
hugur um að stunda nám lenda aftar í röðinni,“
sagði Kristján og bætti við að í fyrra hafi lang-
flestir fengið inngöngu í skólann og því líklegt að
sama væri upp á teningnum núna.
Í landsfréttum hefur komið fram að allir nýnemar
muni fá inngöngu í framhaldsskólum landsins, þó
að hlutfall þeirra sem sækja um nám væri hærra
en áður. Í fyrra biðu nýnemar í óvissu um skóla-
vist langt fram á sumarið en vonast er til að sú bið
styttist með tilkomu nýja innritunarkerfisins sem
fjölbrautaskólar nota.
margret@vf.is
Vonast til að allir nýnemar fái inngöngu
Einn á HSS eftir bílslys
Tvær bifreiðar skullu saman á Reykjanes-brautinni síðdegis á
föstudaginn en enginn slas-
aðist.
Áreksturinn varð við ytri
enda tvöföldunar Reykja-
nesbrautar en tvennt var í
hvorum bílnum. Bif reið-
arnar skullu saman þegar
önnur bifreiðin ætlaði að
skipta um akrein. Mik il
mildi er að ekki fór verr því
báðar bifreiðarnar enduðu
á tengingunni á milli akrein-
anna. Litlu munaði að önnur
bifreiðin hafnaði á umferð
úr gangstæðri átt.
Árekstur á
Brautinni
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222