Víkurfréttir - 11.08.2005, Qupperneq 15
VÍKURFRÉTTIR I 32. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 11. ÁGÚST 2005 I 15
Sandgerðisdagar voru settir með glæsibrag í Samkomuhúsi bæjar-
ins á föstudagskvöld. Óskar Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar, setti
Sandgerðisdaga og Jóhannes Kristjánsson var veislustjóri, hann stóð
sig að vanda með prýði og kitlaði hláturtaugarnar hjá gestum.
Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson tóku lagið með miklum til-
þrifum og Brynja Dögg Jónsdóttir lék nokkur lög á þverflautu.
South River Band spilaði nokkur vel valin lög en á meðan setningar-
athöfnin stóð sem hæst busluðu krakkarnir í sundlauginni þar sem
fjörugt sundlaugarpartý var haldið fyrir krakka í 7.-10. bekk.
Sú skemmtilega uppákoma átti sér stað að söngvarinn Raggi Bjarna
fann nafna sinn, Ástvald Ragnar Bjarnason, í salnum og gladdi hann
með því að gefa honum áritað eintak af nýju geislaplötunni sinni.
Var sá síðarnefndi í skýjunum yfir þessum glaðningi.
Auglýsingasíminn er 421 0000
90,1% LESTUR VÍKURFRÉTTA Á SUÐURNESJUM
MIKIÐ FJÖR Á SANDGERÐISDÖGUM
Söngvarinn Raggi Bjarna fann nafna sinn,
Ástvald Ragnar Bjarnason, í salnum og
gladdi hann með því að gefa honum árit-
aðan geisladisk.