Víkurfréttir - 29.09.2005, Qupperneq 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is, postur@vf.is
Þorgils Jónsson, sími 421 0003, gilsi@vf.is, sport@vf.is
Atli Már Gylfason, sími 421 0014, atli@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0001, jbo@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og www.vikurfrettir.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband
við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222
RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA
Kallinn á kassanum
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Samhæfni.ai 9/21/05 1:42:24 PM
Velkomin í Sveitarfélagið Reykjanes
ÞAÐ KOM AÐ ÞVÍ að sameiningarumræðan fór
af stað, enda orðið stutt til kosninga um samein-
ingu sveitarfélaganna Reykjanesbæjar, Sandgerð-
isbæjar og Sveitarfélagsins Garðs. Það er broslegt
að sjá það hvernig andstæðingar sameiningar hafa
engin rök fyrir málflutningi sínum, nema að vísa
til gamallar sögu og vísa í einhver gömul gildi.
KALLINN VAR TIL SJÓS í gamla daga með
skipsstjóranum Ásgeiri Hjálmarssyni, þó svo það
hafi verið í mjög stuttan tíma. Kallinn var alltaf
svo sjóveikur, þannig að sú atvinna vék fyrir starfi
á Vellinum forðum daga. Nú heldur Ásgeir utan
um sögu Garðsins í glæsilegu byggðasafni á Garð-
skaga og hann ritar grein á vef Víkurfrétta í síð-
ustu viku þar sem hann ræðir sameiningarmálin.
Safnstjóranum af Garðskaga er tíðrætt um söguna,
eins og hún verði tekin af fólki við sameiningu.
Svo verður ekki. Sveitarfélagið Garður er glænýtt
sveitarfélag, byggt gömlum grunni Gerðahrepps,
sem stofnaður var 1908. Það eru ekki mörg ár
síðan Kallinn las viðtal við Sigurð Jónsson, núver-
andi bæjarstjóra í Garði, þar sem hann sagði að
það væri betra að vera stór á meðal hreppa en lítill
á meðal bæjarfélaga. Nú er Garðurinn ekki lengur
stór hreppur, heldur lítill bær. Væri þá ekki betra
að vera stór á meðal bæja og sameinast í nýtt sveit-
arfélag með Reykjanesbæ og Sandgerði? Þarna
væru Garðmenn ekki að fórna neinum gömlum
gildum, enda búnir að loka sögunni um Gerða-
hrepp og nýbyrjaðir að skrifa sögu bæjarfélags.
KALLINN LAS ÞAÐ einnig í grein Ásgeirs að frá
árinu 2000 hafi verið úthlutað 200 íbúðarlóðum í
Garðinum. Íbúum hefur fjölgað. Kallinn veit það
að íbúðir fyrir eldra fólk eru þarna stór póstur
og skipta tugum og það eru ekki mörg ár síðan
stöðnun var á byggingamarkaði í sveitarfélaginu.
Þá lætur nærri að 10% íbúa í Garði séu erlent
farandverkafólk, sem vonandi er að festa rætur í
Garðinum sem og annars staðar, því ekki veitir
af fjölbreytni í menningu og mannlíf lítilla sveit-
arfélaga.
ÁSGEIR SEGIR í grein sinni: „Garðmenn hafa
alla tíð verið sjálfstæðir og hafa haft metnað fyrir
því að standa á eigin fótum“. Kallinn lagðist í
svolitla söguskoðun vegna þessa. Garðmenn hafa
verið háðir öðrum sveitarfélögum um hafnarað-
stöðu svo áratugum skiptir. Sundkennsla skóla-
barna fór fram bæði í Njarðvík og Sandgerði þar
til fyrir fáum árum. Garðmenn hafa notið góðs
af samstarfi sveitarfélaganna á Suðurnesjum, sem
kostað er af Reykjanesbæ af 3/4 hlutum. Þá segir
Ásgeir: “Ég velti því mikið fyrir mér þessa dagana,
hvort þessi uppbygging haldi áfram í Garðinum
ef af sameiningu við önnur sveitafélög verður að
ræða, ég fyrir mína parta efast um það“. Af hverju
ætti uppbyggingin ekki að halda áfram? Sami
söngur heyrðist úr Njarðvík og sérstaklega Innri
Njarðvík fyrir síðustu sameiningarkosningar fyrir
rúmum áratug. Sjáum hvað er að gerast í Innri
Njarðvík í dag. Hverfið er að verða svo stórt að
gamlir Keflvíkingar hafa nú áhyggjur af því að
Njarðvík sé að verða stærri en Keflavík. Ásgeir
segir: “Samstarf við nágrannasveitafélögin hefur
verið með miklum ágætum í ára tugi, og getur vel
verið það áfram um ókomin ár“.
ÞARNA VARÐ KALLINUM LJÓST að Ásgeir
yrði ánægður í sameinuðu sveitarfélagi, enda sam-
starfið með ágætum og því ætti það ekki að verða
svoleiðis áfram þegar Garðmenn hafa áhrif á það
hverjir skipa bæjarstjórn í nýju sameinuðu sveit-
arfélagi. Í hvað eru menn að halda í sveitarfé-
lagi eins og Garði? Húsnæði bæjarskrifstofunnar
eða skemmuna sem hýsir áhaldahúsið? Skólinn
verður áfram til staðar, samkomuhúsið, byggða-
safnið og sólsetrið á Garðskaga. Hvað gæti breyst?
Stórt og öflugt sveitarfélag hefur alla burði til
að halda áfram uppbyggingu í Garðinum. Í stað
þess að þróa byggðina áfram upp á Vogastapa, þá
mætti vel fjölga íbúum í Garðinum um 500-1000
á stuttum tíma. Iðnaður sem í dag á heima í Helgu-
vík gæti allt eins verið staðsettur í iðnaðarsvæði í
Garði og lengi mætti telja.
KALLINN GÆTI vel tekið saman sama pakka
fyrir íbúa í Sandgerði. Kallinn lætur nú staðar
numið að sinni og segir fullum fetum að samein-
ing sveitarfélaga er vænlegur kostur? Og hvað
á sveitarfélagið að heita? Það hefur hvergi verið
sagt að það eigi að heita áfram Reykjanesbær að
lokinni sameiningu. Sveitarfélagið Reykjanes skal
það heita.
ENDILEGA sendið Kallinum línu á kallinn@vf.is
Auglýsingasíminn
virka daga kl. 9-17
421 0000
90,1% lesa Víkur-
fréttir í hverri viku!