Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.09.2005, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 29.09.2005, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR I 39. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 29. SEPTEMBER 2005 I 21 Jæja, gott fólk. Þá er lokið enn einu tímabili hjá ung-lingadeild R/V (Reynis/ Víðis) og aftur er verið að fara af stað eftir sumarfrí. Stjórn unglingadeildar R/V hefur samþykkt að ganga aftur til samninga við Grindavík í kvennaboltanum sem gaf svo góða raun á síðasta tímabili og spila undir merkjum GRV. Tímabilið hefur verið frábært og öllum flokkum hefur gengið vel. Þar af er helst að nefna að í fyrsta skipti í sögu félaganna Reynis og Víðis er kominn Ís- landsmeistaratitill. Hér á eftir er gengi flokkanna sumarið 2005 rakið. Kvennabolti GRV: 7 fl. Tóku þátt á Símamóti með góðum árangri. 6 fl. Nóatúnsmeistarar og Síma- mótsmeistarar. 5 fl. Hraðmótsmeistarar á Síma- móti og Suðurnesjameistarar A og C liða. 4 fl. Faxaflóameistarar, Suður- nesjameistarar og Íslandsmeist- arar (7m) auk 2. sætis á Síma- móti. 3 fl. Faxaflóameistarar, Suður- nesjameistarar og 2. sæti á Ís- landsmóti. Karlabolti RV 7 fl. Suðurnesjameistarar og KB- mótsmeistarar. 6 fl. Stóðu sig með sóma á þeim mótum sem þeir tóku þátt í. 5 fl. Halda sér í B-riðli á Íslands- móti. 3. sæti á KB móti í Borga- nesi. 4 fl. Komust í 8 liða úrslit á Ís- landsmóti og 2. sæti á KB móti í Borganesi. 3 fl. Stóðu sig með sóma á þeim mótum sem þeir tóku þátt í. Þetta sýnir það að félögin eru á réttri leið í uppbyggingu á barna og unglinga starfi Svona starf hefur mikið forvarn- argildi og byggir upp og eflir sjálfstraust hjá einstaklingum og heldur ungu fólki frá því að fara villur vega. Eru forráða- menn barna því hvattir til þess að styðja börn sín til að fara að æfa fótbolta . Þegar fjöldinn er ekki nægilega mikill til að halda úti flokkum í byggðalögum þarf að fara á milli bæja. Við það verð ur rekstur á barna- og unglinga- starfi óneitalega meiri, en það á að gera allt til að halda þessu samstarfi gangandi og geta verið með alla flokka og gefa öllum sem hafa áhuga á fótbolta tæki- færi til að vera með. Það er einlægur vilji og metn- aður unglingadeildar félaganna að byggja upp öflugt starf í kring um börn og unglinga bæj- arfélaganna. Ef við höld um ekki ótrauð áfram að byggja upp þá ýmist hætta börn eða leita til annarra félaga sem sjá hag sinn að halda úti yngri flokkum og byggja þannig grunn að frábærum ein- staklingum í meistaraflokki. Þráinn Maríusson, formaður B a r n a - o g u n g l i n g a r á ð s Reynis. Körfuknattleiksmaður-inn Logi Gunnarsson, frá Njarð vík, gerði í síðustu viku eins árs samning við þýska körfuknattleiksliðið Bayreuth. Logi sem leikið hefur tvö síðustu tímabil með Giessen 46ers hefur þegar leikið þrjá æf ingaleiki með Bayreuth. Liðið er í þýsku 2. deildinni og á sér nokkra sögu í þýska boltanum en liðið varð m.a. meistari árið 1989. Þau Hrefna Guðmunds-dóttir og Jónas Guðni Sævarsson voru kjörin bestu leikmenn meistaraflokks karla og kvenna á loka hófi knattspyrnudeildar Keflavíkur í Stapa um liðna helgi. „Ég er mjög sáttur við þessi verð- laun og tel mig hafa unnið fyrir þeim með góðu sumri. Viður- kenning af þessu tagi ýtir meir á það að gera betur næst og jafn- vel að þetta geti orðið til þess að maður fái sjéns erlendis,“ sagði Jónas Guðni í samtali við Víkurfréttir en að lokum vildi hann koma á framfæri þakklæti til þeirra sem kusu sig besta leik- mann Keflavíkurliðsins í sumar. „Það er mikil vinna sem liggur að baki þessum verðlaunum. Sumarið var mjög skemmtilegt og gaman að komast upp í úr- valsdeild og standa sig svona vel, að ná að halda sér í deildinni,“ sagði Hrefna í samtaldi við Vík- urfréttir. „Það er óljóst hvort ég haldi áfram í knattspyrnu en ef svo fer þá verð ég líkast til áfram hjá Keflavík. Einnig vil ég koma á framfæri þökkum til Ásdísar og Dodda þjálfaranna og stelpn- anna í liðinu,“ sagði Hrefna að lokum. Þar voru einnig veittar fjöl- margar aðrar viðurkenningar og fylgja þær helstu hér á eftir: 2. fl. karla: Besti félaginn: Heiðar Arnarsson. Mestu framfarir: Garðar Eðvaldsson. Besti leikmaðurinn: Ólafur Berry. Mfl. kvenna: Besti félaginn: Ágústa Jóna Heiðdal. Efnilegasti leikmaðurinn: Elísabet Ester Sævarsdóttir. Besti leikmaðurinn: Hrefna Guðmundsdóttir. Gullskór: Nína Ósk Kristinsdóttir 9 mörk. Silfurskór: Vesna Smiljkovic 5 mörk. Mfl. karla: Besti félaginn: Guðmundur Steinarsson. Efnilegasti leikmaðurinn: Baldur Sigurðsson. Besti leikmaðurinn: Jónas Guðni Sævarsson. Gullskór: Hörður Sveinsson, 9 mörk. Silfurskór: Guðmundur Steinarss. 7 mörk. Jónas og Hrefna best í Keflavík Sneri aftur eftir 23 árMynd/Jón Örvar VF-m ynd/Þorgils Framhald á samstarfi Reynis og Víðis Samdi við Bayreuth Sýnishorn af verðlaunagripum sumarsins hjá Reyni/Víði og GRV. Liðsmenn GRV fagna góðum árangri eins og svo oft áður í sumar. Íþrótta- og æskulýðsfröm-uðurinn Stefán Bjarkason reimdi á sig körfubolta- skóna í fyrsta sinn um árabil í Reykjanesmótinu í körfuknatt- leik á mánudag. Stefán, sem lauk ferli sínum með meistaraflokki með Kefla- vík árið 1982, fékk sæti í liðinu eftir að Rúnar Magnússon, gam- all nemandi Stefáns úr Njarðvík- urskóla, keypti sætið á árlegu uppboði á herrakvöldi UMFN síðasta haust og eftirlét það Stef- áni. „Það var skemmtilegt að fá að taka fram skóna að nýju og ég var hissa á því hvað ég fékk að spila mikið. Ég átti nokkur skot sem geiguðu, en í síðustu sókn- inni setti Einar þjálfari upp kerfi fyrir mig og ég náði þriggja stiga skoti rétt áður en flautan gall og það fór ofaní.“ Eftir leikinn spurði Stefán leik- menn Njarðvíkur í gríni hvenær næsta æfing væri, en hann játar að sennilega séu hans bestu ár að baki. Hann muni því láta ungu mönnunum eftir sætið í liðinu. VF-m ynd/Atli M ár

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.