Víkurfréttir - 13.10.2005, Blaðsíða 1
�������������������������������� ��������������������������
41. tölublað •
26. árgangur
Fimmtudaguri
nn 13. októbe
r 2005
90,1% Suðurnesjamanna lesa Víkurfréttir vikulega
AÐSETUR: GRUNDARVEGUR 23 • 2. HÆÐ • 260 REYKJANESBÆR • SÍMI 421 0000 • WWW.VF.IS • FRÉTTAVAKT: 898 2222
Vikurfrettir_HEKLU_borði_fin2.FH11 Tue Apr 05 14:42:09 2005 Page 1
Composite
C M Y CM MY CY CMY K
Haustdagar 2005 hefjast í dag en þeir munu standa fram á mánudag. Fjöldinn allur af verslunum og öðrum
fyrirtækjum býður upp á glæsileg tilboð á Haustdögum. Í Víkurfréttum í dag er að finna auglýsingar frá
þessum aðilum en samtökin Betri bær og Víkurfréttir standa saman að Haustdögum.
SJÁIÐ MYNDIR ÚR
BACHELOR-HÚSUNUM
Í BLAÐINU Í DAG!
Haustdagar hefjast í dag
Ekkert verður að sameingu sveitarfélaga á Suðurnesjum. Sameiningartillaga við Garð og Sandgerði var samþykkt í kosningum í
Reykjanesbæ, en kosningaþátttaka var afleit svo ekki
sé meira sagt. Alls greiddu 1027 atkvæði þar sem
729 voru samþykk sameiningu (71.2%), en 284 mót-
fallnir (27.7%). Auðir og óglidir seðlar voru 14.
Garðbúar kolfelldu hinsvegar sameininguna. Kjörsókn
var 69% og greiddu 631 atkvæði. Nei sögðu 463, eða
73,4%. Já sögðu 164 eða tæp 26% og auðir og ógildir
voru 4.
Kjósendur í Sandgerði höfnuðu einnig sameiningu
við Garð og Reykjanesbæ með afgerandi hætti. 634
greiddu atkvæði, eða 63% atkvæðabærra kjósenda og
voru einungis 55 kjósendur samþykkir sameiningu,
eða 8.7%. Mótfallnir sameiningu voru 577 eða 91%
kjósenda. Auðir og ógildir seðlar voru 5 talsins.
Ekki verður af sameiningu Hafnarfjarðar og Vatns-
leysustrandarhrepps. Sameiningin var samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta í Hafnarfirði en hins vegar
felld nokkuð afgerandi í Vogunum.
Í Vatnsleysustrandarhreppi fóru kosningar þannig: Á
kjörskrá voru 651 og 489 greiddu atkvæði eða 75%.
Já sögðu 154 eða 31,5% og nei sögðu 334 eða 68,5%,
auðir og ógildir voru 1.
LÍTILL VILJI TIL SAMEININGAR