Víkurfréttir - 28.09.2006, Síða 15
KEFLAVÍK - KR
Bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli kl. 14:00 á laugardag
ÁFRAM KEFLAVÍK - BIKARINN HEIM
Hefur leikið með
báðum liðum
Haukur Ingi Guðnason hefur leikið bæði með KR og Kefla-vík. Hann varð bikarmeistari
1997 með Keflavík og síðar varð hann
Íslandsmeistari með KR. Haukur segir
að ef Keflavík skori á undan á laugardag
geti það opnað leikinn og þá séu Keflvík-
ingar jafnvel líklegri til þess að bæta við.
Rétt eins og aðrir leikmenn Keflavíkur
1997 fór Haukur ekki varhluta af bikar-
tísku liðsins. „Ég var með rautt skegg í
fyrri leiknum gegn ÍBV, reyndar var þetta
ekki skegg, bara húðin á mér, maður var
svo ungur að það varð að mála skeggið
á mig,“ sagði Haukur og hló. „Fyrir síð-
ari leikinn lét ég svo aflita á mér hárið,
meira að segja Hrafnkell læknir var með
aflitað hár það árið,“ sagði Haukur sællar
minningar. Haukur segir Keflavík hafa
verið hvað sókndjarfasta liðið í sumar en
að á móti hafi KR verið varnarsinnaðasta
lið deildarinnar síðari hluta tímabilsins.
„KR-ingar voru að fá mikið af mörkum
á sig í upphafi leiktíðar en Teitur las stöð-
una rétt og KR fór að halda hreinu og
vinna sína leiki 1-0. Það gæti orðið erfitt
fyrir Keflavík að lenda undir á móti KR
því þeir eru vel skipulagðir í vörninni en
ef Keflavík skorar á undan er allt opið,“
sagði Haukur.
Bikarblað
Henti skónum upp í stúku
Ég henti skónum upp í stúku þegar við unnum 2004,“ sagði Þórarinn Brynjar Kristjánsson spurður hvort hann ætlaði að spila í sömu skóm og gegn KA. Tóti
setti tvö fyrstu mörkin gegn KA í bikarnum 2004 og lagði
þar með grunninn að sigri Keflavíkur í leiknum.
„Þetta voru örugglega svartir Pumaskór, ég þarf að fá mér nýtt
par fyrir laugardaginn og þeir fjúka aftur upp í stúku ef við
vinnum,“ sagði Þórarinn sem varð einnig bikarmeistari með
Keflavík árið 1997 og þá aðeins 16 ára gamall. Þórarinn kom
þá inn á sem varamaður í báðum framlengingunum gegn ÍBV,
en það árið urðu leikirnir tveir. „Ég skoraði í undanúrslitum
1997 gegn Leiftri og það var mitt fyrsta bikarmark fyrir Kefla-
vík,“ sagði Þórarinn sem er kominn með hanakamb núna en
flestir muna eflaust eftir Keflvíkingum 1997 þegar þeir mættu
með aflitað hár gegn ÍBV. „Meira að segja Maggi Þorsteins er
búinn að krúnuraka sig núna. Við erum bara að peppa okkur
saman og hafa gaman af þessu,“ sagði Þórarinn og lofaði að
Keflvíkingar myndu mæta flottir til leiks á laugardag.