Víkurfréttir - 28.09.2006, Qupperneq 25
25ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
Knattspyrnudeild Keflavíkur afhenti foreldrum Hugins Heiðars, sem átt hefur við alvarleg veikindi að stríða
frá fæðingu, peningagjöf að upphæð 100.000 kr. nú fyrr í vikunni. Fyrir nokkru stóð knattspyrnudeildin að
söfnun fyirir Huginn og mættu foreldrar hans, þau Guðmundur og Fjóla, til þess að taka á móti gjöfinni.
Huginn er tveggja ára gamall og sögðu foreldrar hans að nú gerði hann fátt annað en að hlusta á tónlist
og spá í fótbolta. Á myndinni eru frá vinstri, Ólafur Bjarnason, Jón Örvar Arason og Rúnar V. Arnarson frá
Keflavík ásamt þeim Guðmundi og Fjólu, foreldrum Hugins.
Safnaði stigum í Sviss
Jóhann Rúnar Kristjánsson hefur lokið þátttöku sinni á heimsmeistaramótinu
í borðtennis sem fram fór í
Sviss. Jóhann féll í fyrstu um-
ferð út úr opnum flokki en rak-
aði inn stigum í sitjandi flokki
og sagði þetta besta árangur
sinn á heimsmeistaramóti.
Í fyrstu umferð riðlakeppninnar
í sitjandi flokki hafði Jóhann
betur gegn tékkneskum spilara
3-2 og fór sú viðureign í odda-
lotu þar sem Jóhann hafði betur
11-9. Í öðrum leik í riðlakeppn-
inni mætti Jóhann frönskum
spilara sem var í 2. sæti á heims-
listanum og tapaði þar 3-1 og
missti því naumlega af því að
komast í átta manna úrslitin.
Fyrir HM var Jóhann í 19. sæti
á heimslistanum en gerir ráð
fyrir því að komast nokkrum
sætum ofar eftir keppnina þar
sem hann náði inn 150 stigum í
Sviss. „Þetta var skrýtið mót þar
sem bæði sitjandi heimsmeistari
og ólympíumeistarinn komust
ekki upp úr riðlakeppninni,“
sagði Jóhann og sagði árangur
sinn í Sviss einn þann besta
frá upphafi. Jóhann er í feikna-
formi þessa dagana og æfði
vel fyrir mótið í Sviss og hefur
m.a. bætt á sig um 10 kílóum af
vöðvamassa.
Arnar Freyr Jónsson fór á kostum í fyrsta nágrannaslag Njarðvíkur
og Keflavíkur í körfunni. Keflvíkingar urðu Húsasmiðjumeistarar í
körfuknattleik um síðustu helgi og lögðu þeir Njarðvíkinga 86-92
í Ljónagryfjunni. Þessi fyrsti nágrannaslagur liðanna sveik engan
þó liðin væru stödd í sínum undirbúningstímabilum. Arnar Freyr fór
mikinn í 3. leikhluta og félagar hans í Keflavík fylgdu eftir og höfðu að
lokum sigur. Góð fyrirheit fyrir körfuboltaveturinn framunda.