Víkurfréttir - 23.01.2014, Side 23
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. janúar 2014 23
Taekwondo fjöl-
skyldan sigursæl
á Reykjavíkurleik-
unum
u Um síðastliðna helgi var
haldið fjölgreinamótið Reykja-
víkurleikarnir (Reykjavík Int-
ernational Games) í sjöunda
sinn. Þar var keppt í taekwondo á
laugardag og sunnudag. Keflvík-
ingar mættu með gott lið eins og
venjulega og uppskáru ríkulega.
Meðal keppenda var svartabeltis-
fjölskyldan Kolbrún Guðjóns-
dóttir með dótturina Ástrósu
Brynjarsdóttur og soninn Jón
Steinar Brynjarsson. Þau gerðu
sér lítið fyrir og sigruðu keppni
í hópatækni en það er þegar
allir keppendur liðsins þurfa að
sameina fyrirfram ákveðnar bar-
dagahreyfingar á sem bestan hátt.
Ekki bara sigruðu þau þar heldur
sigruðu Kolbrún og Ástrós líka
í paratækni og Ástrós sigraði í
einstaklingstækni. Ástrós var svo
valin keppandi Reykjavíkurleik-
anna í taekwondo þar sem hún
var með fjögur gull af fjórum
mögulegum. Ástrós er núverandi
íþróttamaður Reykjanesbæjar,
íþróttakona Keflavíkur og taek-
wondo kona Íslands.
Kristmundur Gíslason sigraði
stærsta flokk mótsins með ótrú-
legum hætti en hann vann alla
bardaga á áðurnefndri 12 stiga
reglu. Það er ekki algengt að
sjá slíkan mun í eins sterkum
flokki og þessi flokkur var. Krist-
mundur hefur verið á góðri sigl-
ingu síðustu misseri og meðal
annars nælt sér í gullverðlaun á
þremur síðustu mótum.
ÍR-ingar of stór biti
fyrir kempurnar
uGömlu brýnin í b-liði Kefla-
víkur mættu ofjörlum sínum
á þriðjudag þegar þeir máttu
sætta sig við 139-90 tap á úti-
velli í 8-liða úrslitum Powerde-
bikars karla. Sigur ÍR var aldrei
í hættu en þó sýndu leikmenn
Keflvíkinga gamalkunna takta
inni á milli. Gunnar Einars-
son skoraði 23 stig fyrir Kefl-
víkinga í leiknum og Sverrir Þór
Sverrisson var með 15. Magnús
Gunnarsson sneri svo aftur
eftir meiðsli og skoraði 11 stig í
leiknum.
Hrannar bikarmeist-
ari í Danmörku
u Keflvíkingurinn Hrannar
Hólm varð um helgina bikar-
meistari með liði sínu SISU í
Danmörku, en Hrannar hefur
nú þjálfað liðið undanfarin ár og
skilað fjölda titla í hús.
Lið Hrannars vann 79-59 sigur
en þetta mun vera í fjórða sinn
sem Hrannar vinnur bikarinn í
Danmörku.
VILT ÞÚ SPENNANDI OG LÍFLEGT
STARF Í FERÐAÞJÓNUSTU?
Bílaleiga AVIS og Budget er ein stærsta bílaleiga í heimi og starfar í 180 löndum með yfir 5.000 leigustöðvar. Á Íslandi er AVIS og Budget ört vaxandi fyrirtæki með leigustöðvar um
allt land og geta viðskiptavinir AVIS og Budget leigt bíla við öll tækifæri. Hjá AVIS og Budget starfar öflugur og reyndur hópur fólks sem vinnur ávallt með þjónustu og áreiðanleika
að leiðarljósi. Leitast er við að skapa starfsfólki gott starfsumhverfi og aðstöðu en ánægja starfsfólks og viðskiptavina er lykilatriði í velgengni AVIS og Budget.
Umsóknir sendist á atvinna@alp.is merkt „Sumarstarf“.
Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2014.
Sölufulltrúar – Sumarstarf
Starfið felur í sér afgreiðslu á bílaleigubílum.
Unnið er samkv. 2-2-3 vaktakerfi
á dag-, kvöld- og næturvöktum.
Almennar hæfniskröfur:
• Bílpróf er skilyrði
• Tungumálakunnátta er skilyrði
(helst 2 tungumál)
• Tölvuþekking
• Lipurð í mannlegum samskiptum,
ásamt framúrskarandi þjónustulund
• Hreint sakavottorð
• Jákvæðni, frumkvæði og dugnaður
• Snyrtimennska
• 20 ára lágmarksaldur
Helstu verkefni:
• Afhending og móttaka bílaleigubíla
• Gerð leigusamninga
• Samskipti við erlenda og innlenda viðskiptavini
• Sala til erlendra og innlendra viðskiptavina
Þrif á bílum – Sumarstarf
Starfið felur í sér þrif á bílaleigubílum.
Unnið er samkv. 2-2-3 vaktakerfi
á dag-, kvöld- og næturvöktum.
Almennar hæfniskröfur:
• Bílpróf er skilyrði
• Lipurð í mannlegum samskiptum,
ásamt framúrskarandi þjónustulund
• Hreint sakavottorð
• Enskukunnátta
• Jákvæðni, frumkvæði og dugnaður
• Snyrtimennska
• 20 ára lágmarksaldur
Helstu verkefni:
• Þrif á bílum – að innan og utan
• Yfirferð á ástandi bíls
• Akstur
Sumarstarf á verkstæði
Starfið felur í sér almenna vinnu
á dekkja- og smurverkstæði.
Almennar hæfniskröfur:
• Bílpróf er skilyrði
• Meirapróf er kostur
• Lipurð í mannlegum samskiptum,
ásamt framúrskarandi þjónustulund
• Hreint sakavottorð
• Jákvæðni, frumkvæði og dugnaður
• Snyrtimennska
• 20 ára lágmarksaldur
Nes lagði
Keflvíkinga
10-7
Íþróttafélagið Nes og úrvals-deildarlið Keflavíkur í knatt-
spyrnu öttu kappi í Reykjanes-
höllinni í vikunni þar sem Nesarar
fóru með sigur af hólmi. Staðan í
leikslok var 10-7 og greinilegt að
menn voru með markaskóna vel
reimda í leiknum. Á heimasíðu
Keflvíkinga segir að það sé vel við
hæfi að þessi ágætu félög mæt-
ist í vináttuleik enda séu margir
leikmenn Nes meðal dyggustu
stuðningsmanna Keflavíkur. Á
heimasíðu Nes á Facebook má sjá
margar skemmtilegar myndir frá
leiknum.