Víkurfréttir - 06.02.2014, Blaðsíða 4
fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR4
-fréttir pósturu vf@vf.is
Tækifæri í atvinnuuppbygg-ingu á norðurslóðum voru
kynnt fyrir fyrirtækjum á Suður-
nesjum í síðustu viku. Þá fór fram
fyrsti kynningarfundur verk-
efnisstjórnar á vegum Heklu-
nnar- Atvinnuþróunarfélags
Suðurnesja, Samtaka atvinnu-
rekenda á Reykjanesi og Isavia
um ný tækifæri í atvinnuupp-
byggingu á norðurslóðum. Hátt í
eitthundrað manns sóttu fundinn
sem haldinn var í Eldey, þróunar-
setrinu á Ásbrú.
Helstu tækifæri Suðurnesjamanna
í þjónustu við norðurslóðir er að
á Keflavíkurflugvelli verði staðsett
björgunarmiðstöð fyrir norður-
slóðir vegna þeirra verkefna sem
unnið er að t.a.m. vegna opnunar
siglingarleiða og í tengslum við
olíuleit við austurstönd Grænlands,
svo dæmi séu tekin.
Fjórir aðilar fluttu fyrirlestra á
fundinum og sögðu frá gangi mála
í þessu stóra verkefni. Guðmundur
Pétursson, formaður SAR, Sam-
taka atvinnurekenda á Reykjanesi
sem sá um undirbúning fundar-
ins sagðist afar ánægður með þær
upplýsingar sem komu fram og
þá framtíðar möguleika sem væru
fyrir Suðurnesjamenn í tengslum
við norðurslóðir.
Tækifæri fyrir Suðurnesja-
menn á norðurslóðum
Útibú Landabankans í Sand-gerði fagnaði 50 ára afmæli
síðastliðinn föstudag. Af því til-
efni færðu bæjarstjórinn, Sig-
rún Árnadóttir, og forseti bæjar-
stjórnar, Ólafur Þór Ólafsson, El-
ísu Baldursdóttur þjónustustjóra
veglegan blómvönd. Elísa hefur
starfað við bankann í tæp 30 ár,
eða frá því hún var 17 ára. Nem-
endur 3. bekkjar grunnskólans
kíktu við og sungu afmælissöng-
inn. Myndaalbúm lágu frammi
fyrir viðskiptavini að skoða og
gestir og gangandi gæddu sér á af-
mælisköku og öðrum kræsingum
n Stór tímamót í Sandgerði:
Landsbankinn fimmtugur
Ólafur Þór Ólafsson, Elísa Baldursdóttir og Sigrún Árnadóttir.
Starfskonur Landsbankans, Guðrún Sig-
ríður Helgadóttir, Hrönn Hjörleifsdóttir,
Sigrún Ragnarsdóttir, Guðrún Jóna Ara-
dóttir og Elísa Baldursdóttir.
Grunnskólabörn sungu
afmælissönginn og gæddu
sér á veitingum.
Viðskiptavinur og fyrrum
starfsmaður skoðar albúm.
Mörghundruð nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla
á Suðurnesjum kynntu sér störf
um 60 manns í íþróttamiðstöð-
inni við Sunnubraut í morgun.
Víkurfréttir voru á staðnum og
tóku myndir og einnig viðtöl við
nokkra viðstadda. Áhugasvið
nemendanna voru fjölbreytt og
þeir voru vel undirbúnir með
tilbúnar spurningar. Flestir
nemendur spurðu um laun og
vinnutíma en lengd náms og
atvinnumöguleikar fylgdu þar
fast á eftir. Einn hafði ákveðið
fyrir 12 árum að verða kokkur
og annar hafði gert myndbönd í
6 ár og stefnir í kvikmyndagerð.
Þá var ein stúlka harðákveðin
í að verða lögregla. Almenn
ánægja var meðal nemenda
og þeirra sem standa að kynn-
ingunni, sem síðast var árið
2010. Auðvelt var að fá fólk
til að kynna störf sín og það í
sjálfboðavinnu utan venjulegs
vinnutíma.
n Vel heppnuð starfakynning fyrir grunnskólanema:
„Hvað færðu í laun?“
ERUM FLUTTIR
Á IÐJUSTÍG 1C
VIÐ HLIÐINÁ SS
BÍLALEIGUNNI
Iðjustíg 1c - sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
BÍLAVIÐGERÐIR-PARTASALA
Orlofshús VSFK
Páskar 2014
Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út um páskana:
2 hús í Svignaskarði
3 hús í Húsafelli
2 hús í Ölfusborgum
2 hús í Hraunborgum
1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h á Akureyri
Útleigutímabil er frá miðvikudeginum 16. apríl til og með
miðvikudeginum 23. apríl 2014.
Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins og er umsóknarfrestur
til kl. 15:00 föstudaginn 7. mars 2014.
Úthlutað verður samkvæmt punktaker.
Orlofsstjórn VSFK
HONDA
CR-V
BÍLL ÁR
SINS 201
4
Á ÍSLAN
DI Í FLOK
KI JEPPA
OG JEP
PLINGA
*
HONDA CR-V KOSTAR FRÁ 5.290.000 EYÐSLA FRÁ 4,5L/100km
www.honda.is
*
S
kv
. v
al
i B
an
da
la
gs
ís
le
ns
kr
a
bí
la
bl
að
am
an
na
, B
ÍB
B
.
Njarðarbraut 15 • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 7800 • www.bernhard.is