Víkurfréttir - 08.05.2014, Page 3
– að betra skóla-, íþrótta- og tómstundastarfi
Skólar í fremstu röð
Framfarir hafa verið miklar á síðasta kjörtímabili og munum við halda
áfram að starfa eftir Framtíðarsýn Reykjanesbæjar.
Spjaldtölvuvæðing skólanna
Reykjanesbær hefur tekið forystu í spjaldtölvunotkun í íslensku
skólasamfélagi.
Forvarnir á unglingastigi
Fylgjum eftir einum besta árangri á landinu í forvörnum gegn áfengi,
fíkniefnum og tóbaksnotkun unglinga.
Öflugt foreldrastarf
Samstarf foreldra við skólasamfélagið er grunnurinn að þeim góða árangri
sem náðst hefur í leik- og grunnskólunum á síðustu árum.
Sveigjanlegri opnunartími leikskóla
Könnum áhuga foreldra á því að hafa sveigjanlegri opnunartíma leikskóla.
Fjölbreytni í skólastefnum
Við viljum auka fjölbreytni við rekstur og leita leiða til að bjóða upp á ný
grunnskólaúrræði í samstarfi við rekstraraðila á því sviði.
Morgun- og hádegisverður í grunnskólum
Við viljum bjóða ókeypis hafragraut í morgunmat fyrir þau börn sem þess
óska.
Við munum áfram bjóða ódýrar og hollar hádegismáltíðir í grunnskólunum
og leyfa börnunum að taka þátt í að móta matseðlana með rafrænum
kosningum.
Sköpum tónlistarmenn
Með tilkomu Hljómahallar fengu nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
bestu aðstæður til tónlistarnáms sem í boði eru hérlendis. Við ætlum að
skapa áfram jarðveg sem gefur af sér færustu og frægustu tónlistamenn
landsins.
Samstarf við íþróttahreyfinguna
Vinnum áfram með íþróttafélögunum að því að styrkja innra starf
félaganna og aðstöðu.
Rekstrar- og þjónustusamningar
Styðjum áfram íþrótta-, menningar- og tómstundarfélög í bænum með
rekstrar- og þjónustusamningum líkt og verið hefur og tryggjum þannig
fjölbreytni þeirrar starfsemi sem í boði er fyrir íbúa.
Hærri styrkir til umönnunar, íþrótta og tómstunda
Við munum halda áfram að leita leiða til að lækka kostnað foreldra
við íþróttir og tómstundir barna m.a. með hækkun íþrótta- og
tómstundastyrkja.
Við munum einnig stuðla að því að umönnunargreiðslur hækki strax á
næsta ári.
Endurvekjum frístundarútuna
Við ætlum að leggja enn frekari áherslu á að íþróttaæfingar geti
farið fram á starfstíma skólans og kanna hvort unnt sé að endurvekja
„frístundarrútuna“ þar sem börnum var ekið frá skóla og á æfingar.
Ungmennaráð – 88 húsið
Ungmennaráð hefur verið bæjarstjórn til ráðgjafar um fjölmörg verkefni
sem unga fólkið telur að leggja eigi áherslu á í bænum. Við ætlum að hlúa
vel að þessu samstarfi og því góða starfi sem fram fer innan 88 hússins og
útfæra það enn frekar.
xdreykjanes.is
Vinnum áfram
Vinnum áfram
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ
Á kosningamiðstöð okkar að Hafnagötu 90 bjóðum við uppá súpu í hádeginu á virkum dögum,
við grillum pylsur á milli kl. 14 og 16 á laugardögum og bökum saman vöfflur alla sunnudaga frá 14 til 16.
Líttu við!