Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.2014, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 08.05.2014, Blaðsíða 6
fimmtudagurinn 8. maí 2014 • VÍKURFRÉTTIR6 Framkvæmdir eru hafnar við nýtt gagnaver Advania í Reykja- nesbæ. Gagnaverið rís upp af Fitjum í Njarðvík á svæði sem við flest þekkjum sem Patterson-flugvöll. Undanfarið hefur mátt sjá stórvirkar vinnuvélar á svæðinu og langir vinnudagar hjá iðnaðarmönnum. Byggingin sem rís á svæðinu verður 2500 fermetrar en á þessu svæði við Patterson er gert ráð fyrir enn frekari starfsemi t.a.m. fyrir gagnaver. Svona framkvæmd skiptir miklu fyrir atvinnulífið á svæðinu og hlutirnir munu gerast hratt. Þannig gera áætlanir ráð fyrir að byggingin verði risin í júní og að starfsemi gagnaversins verði komin í gang á þessu ári. Í viðtali á forsíðu Víkurfrétta í dag segir Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflug- vallar: „Við erum búin að vinna í því á undanförnum árum að mark- aðssetja svæðið fyrir þennan iðnað. Verne fór af stað fyrir nokkrum árum síðan og hefur verið í sinni uppbyggingu en það er ánægjulegt að sjá fleiri aðila velja þessa staðsetningu, Ásbrú, fyrir sín gagnaver. Á margan hátt er þetta mjög ánægju- legt og líka það að þetta er fyrsta nýbyggingaframkvæmdin hér á svæðinu. Hver hefði trúað því fyrir nokkrum árum, þrátt fyrir allan þennan byggingafjölda hér, að það væri þegar farið að byggja húsnæði undir nýjan rekstur hér á svæðinu“. Það svæði sem heyrir undir Ásbrú er mun meira en bara gamla byggðin á Keflavíkurflugvelli. Ásbrú er í raun allt það svæði sem áður heyrði undir Varnarliðið. „Þetta eru um 50 ferkílómetrar lands í kringum Keflavíkurflugvöll sem við erum að þróa og höfðum það hlutverk að markaðssetja og skipuleggja og draga starfs- semi á. Og þetta svæði sem er hérna niðri á Fitjum er í jaðri þess og við settum inn í aðalskipulag Reykjanesbæjar ákveðinn reit sem við ætluðum undir þessa gagnaversuppbyggingu fyrir nokkrum árum. Það er mjög ánægjulegt að sjá að fyrstu skrefin eru stigin í uppbyggingu þar og ég held að það sé alveg ljóst að þetta mun mynda grunninn að miklu meiri uppbyggingu á þessum reit,“ segir Kjartan Þór. Kosningamánuðurinn Gengið verður til bæjarstjórnakosninga í lok þessa mánaðar. Fjörið er að byrja, kosningaskrifstofurnar hafa opnað og handaböndum fjölgar. Frambjóðendur eru duglegir að senda frá sér greinar og líf er að færast í stjórnmálaumræðuna. Spennan magnast örugglega í brjóstum þeirra sem lifa og hrærast í pólitíkinni. Landslagið er að breytast og framboðin eru fleiri en fyrir síðustu kosningar. Á forsíðu Víkurfrétta í dag er vitnað í skoðanakönnun sem Talnakönnun ehf. gerði í Reykjanesbæ í byrjun mánaðar. Þá hefur heyrst að unnið er að frekari skoðanakönnunum í Reykjanesbæ. Kosningar vinnast hins vegar ekki í skoðanakönnunum. Án efa spennandi að fylgjast með könnunum en það er hins vegar raunveruleikinn sem kemur upp úr kjörkössum á kjördag sem ræður úrslitum. Það er stutt til kosninga en án efa á mikið eftir að gerast þangað til. Nýtt gagna- ver í Reykja- nesbæ -ritstjórnarbréf vf.is Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Hilmar Bragi Bárðarson skrifar SÍMI 421 0000 Mynd: Gísli Dúa//Texti: Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is Kristján Jökull Marinósson er tólf ára og sem lítill hnokki var hann sífellt sveiflandi prikum og hinu og þessu eins og golf- kylfu. Á þriðja aldursári fór hann svo fyrst í golf, sló tvö högg og púttaði svo beint ofan í holu. Þá var ekki aftur snúið og í dag er hann með 18 í forgjöf, sem þykir mjög gott fyrir strák á hans aldri. Hefur átt fjögur golfsett „Ég er búinn að eiga fjögur golfsett. Hef fengið nýtt sett eftir því hversu mikið ég hef stækkað,“ segir Krist- ján Jökull og bætir við að hann noti allar kylfurnar í pokanum. Það er greinilegt að þessi ungi kylfingur er vel að sér um kylfurnar því hann fer í það að fræða blaðamann að- eins um þær. „Það er erfiðara fyrir suma að nota „driverinn“ því hann er þungur og kylfuhausinn stór. En þeir eru misjafnir.“ Skemmtilegast að spila með pabba Faðir Kristjáns Jökuls, lögreglu- maðurinn Marinó Már Magnús- son, hefur stundað golf í fjölda- mörg ár og tekur soninn oft með sér. Kristján Jökull segir ekki marga foreldra taka börnin sín með. „Skemmtilegast við golfið er að spila með pabba. Hann er aðeins betri en ég.“ Þeir feðgar fóru saman um liðna páska til Englands með félögum sínum í Golfklúbbi Suður- nesja. Svo á hann einn golfvin og þeir spila töluvert saman tveir í Leirunni. Byrjaði að æfa 4 ára Einnig f innst Kristjáni Jökli skemmtilegt að spila og keppa og að það reyni á hann. „Það er erf- iðast fyrir flesta að ná góðri sveiflu. Ef þú sveiflar vitlaust getur bolt- inn farið bara eitthvert út í loftið en ef sveiflan er rétt er hægt að stýra því hvert boltinn fer.“ Hann hefur ekki tölu á hversu mörgum mótum hann hefur tekið þátt í. „Ég hef a.m.k. tekið þátt í öllum meistaramótum síðan ég fór að æfa golf fjögurra ára og hefur oftast gengið mjög vel. Þegar ég keppi við unglinga víða að á landinu þá er ég svona meðalmaður en þegar ég er heima að keppa við sama aldurs- hóp er ég oftast í einu af þremur efstu sætunum.“ Adam Scott og Birgir Leifur bestir Kristján Jökull segist æfa helst á hverjum degi í öllum veðrum. Best sé að spila í logni og ekki miklum hita. Þá hefur hann sankað að sér töluverðu af golfbolum og -húfum. „Stærsta fyrirmynd mín er Ástral- inn Adam Scott. Hann er með svo flotta sveiflu. Af íslenskum golf- urum er Birgir Leifur Hafþórsson bestur. Ég stefni jafn langt og hann og langar að verða atvinnumaður,“ segir Kristján Jökull að endingu. „Pabbi er aðeins betri en ég“ ■■ Ungur Reykjanesbæingur ætlar að verða atvinnukylfingur: Umhverfis- og auðlindaráð-herra, Sigurður Ingi Jó- hannsson, veitti Kaffitári Kuð- unginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðu- neytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síð- asta ári. Viðurkenningin var veitt í síðustu viku. Kaffitár hlýtur Kuðunginn fyrir öflugt umhverfisstarf fyrirtækisins allt frá stofnun þess árið 1990. Segir meðal annars í rökstuðningi val- nefndar að eigendur þess hafi verið brautryðjendur varðandi meng- unarvarnir í framleiðslu og um- hverfisvottun kaffihúsa auk þess sem þau hafi lagt áherslu á að kaupa hráefni „án krókaleiða“, beint frá þeim bændum sem rækta það. Kaffihús Kaffitárs hafi verið þau fyrstu hér á landi til að fá vottun umhverfismerkisins Svansins árið 2010 og sem ein vinsælasta kaffi- húsakeðja landsins hafi fyrirtækið þannig orðið öflugur boðberi um- hverfisvænna hátta meðal almenn- ings. Hugað sé að umhverfismálum allt frá hinu smæsta til hins stærsta, hvort sem um eru að ræða borð- tuskur sem notaðar eru á kaffihús- unum eða mengunarvörnum kaffi- brennslunnar. Verðlaunagripurinn, Kuðungur- inn, sem Kaffitár hlaut, er að þessu sinni eftir listamanninn Bjarna Sigurðsson. Þá öðlast fyrirtækið rétt til að nýta merki verðlaunanna í kynningu á starfsemi sinni. Kaffitár hlaut kuðunginn Ég hef tekið þátt í öllum meistara- mótum síðan ég fór að æfa golf fjögurra ára

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.