Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.2014, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 08.05.2014, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 8. maí 2014 • VÍKURFRÉTTIR14 Nú þegar sumarið er komið þá fara börnin á stjá á reiðhjólum, hjólabrettum, hlaupa- hjólum og blessuðum vespunum. Því miður er það þannig að allt of fáir eru að nota hjálma á þessum fararækjum. Þó að börnin ykkar séu ekki á mikilli ferð á hjólunum og þau fari varlega og allt það þá er það bíllinn sem gæti hugsanlega ekið á barnið þitt sem er það hættulega. Bifreiðinni er kannski ekið á 50-60 km hraða og höggið sem myndast við slíkan árekstur er lífshættulegt fyrir barnið, þó að það hafi bara ætlað sér að hjóla varlega, bara vera á gangstéttinni og fara hægt. Bifreiðin vegur allt að nokkrum tonnum. Foreldrar verða að átta sig á því hvað getur gerst við slíkan árekstur, ég veit það því miður sjálfur og hef því miður komið oftar en einu sinni að ljótum slysum þar sem hjálmur hefði getað bjargað öllu. Sem betur fer hef ég líka komið að slysum þar sem hjálmurinn bjargaði öllu. Við foreldrar viljum ekki að börnin okkar verði bundin við hjólastól eða með alvarlegan heila- skaða, við viljum ekki að börnin okkar upplifi hræðilegan sársauka eða þaðan af verra. Sérstak- lega ekki ef við hefðum getað komið í veg fyrir það með því einu að kenna barninu að nota hjálm. Ábyrgðin er hjá okkur foreldrunum. Með sumarkveðju, Sigvaldi Arnar Lárusson, lög- reglumaður og foreldri. -aðsent pósturu vf@vf.is Árið 2013 þurftu 557 einstakl-ingar að leita fjárhagsaðstoðar til Reykjanesbæjar, sem samsvarar nær 4% af heildaríbúa- fjölda bæjarins. Þar af bættust 146 að- ilar við á árinu 2013 þegar þeir duttu út af atvinnuleysis- skrá. Í ár er áætlað að við bætist um 160 manns. Kostnaðurinn við fjár- hagsaðstoðina hefur hækkað um 250% frá árinu 2007. Þessar tölur eru sláandi og mikið áhyggjuefni. Ljóst er að hrinda verður af stað öfl- ugu átaksverkefni í atvinnumálum. Uppbyggingin í Helguvík mun von- andi fyrr en síðar skila traustum og vel launuðum störfum, en fólk er orð- ið langþreytt á ofnotuðum loforðum bæjaryfirvalda um að verkefnin séu alveg að skella á. Búið er að senda út ótal fréttatilkynningar og efna til borðaklippinga og formlegra undir- skrifta milli sveitarfélaga, einkaaðila og ríkis. Það er meira að segja búið að reisa risavaxið stálgrindarhús utan um álver. En ekkert gerist og störfin láta standa á sér. Hér verða bæjaryfir- völd að vinna miklu nánar með ríkis- stjórninni um að ryðja burt óþarfa hindrunum í orkumálum frá því í tíð síðustu ríkisstjórnar. Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn hafa gert of mikið af því að tala upp ein- stök verkefni í stað þess að einbeita sér að raunhæfum verkefnum á völdum sviðum. Þeir hafa t.d. gjör- samlega hunsað ferðamannaiðnað- inn ef frá eru talin nokkur skilti með- fram Reykjanesbrautinni eða risa- vaxið hálftómt Víkingaminjasafn sem enginn sækir. Atvinnuþróunarfélagið Heklan á Ásbrú er góður vettvangur til að styðja við bakið á frumkvöðlastarf- semi. Þar eru nú þegar í gangi mörg spennandi verkefni sem geta skilað fjölbreyttum störfum í framtíðinni. En frumkvöðlastarfsemi er lang- hlaup sem krefst fjárfestinga. Með því að efla Hekluna meðal annars með bættri tengingu við atvinnulífið og ýmiss konar samtök, er hægt að skapa enn fleiri tækifæri í ferðaþjón- ustu, iðnaði, nýsköpun og annarri þjónustu. Með samstilltu átaki í atvinnumálum, með áherslu á verkefni sem skila störfum strax, er hægt að koma áður nefndum einstaklingum, sem eru við það að festast í félagslega kerfinu, til sjálfsbjargar. Tökum til og hefjum uppbyggingu! Davíð Páll Viðarsson er í 3. sæti á Á-listanum. Frjálst afl – fyrir ykkur! ■■ Davíð Páll Viðarsson skrifar: ■■ Sigvaldi Arnar Lárusson lögreglumaður og foreldri skrifar: ■■ Baldvin Gunnarsson skrifar:Atv inna Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. óskar eftir að ráða til starfa vélfræðing eða vélstjóra í Kölku, brennslustöð fyrirtækisins. Unnið er á vöktum. Starfssvið felst m.a. í stjórnun á brennslulínu stöðvarinnar, viðhaldi og þrifum á vélbúnaði, tækjum o.fl. Umsækjendur þurfa að hafa góða samskiptahæfileika, geta unnið sjálfstætt og undir álagi. Umsækjendur þurfa að hafa góða tölvufærni og enskukunnáttu. Kalka er eina sorpbrennslustöðin sem starfrækt er hér á landi og var tekin í notkun árið 2004. Stöðin er tæknilega fullkomin og þar starfa um 20 manns. Upplýsingar veitir Ingþór Karlsson í síma 862-3505. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist til ingtor@kalka.is fyrir 19. maí 2014. Flugstöð Leifs Eiríkssonar er alþjóðleg flugstöð og staðsett hér hjá okkur í nágrenni Reykja- nesbæjar. Hún er m i k i l v æ g s a m - gönguæð fyrir alla landsmenn og mjög mikilvæg fyrir at- vinnulífið hér hjá okkur. Hún skapar ekki bara störf heldur fylgja henni fjölmörg af- leidd störf sem og möguleikar varð- andi uppbyggingu ferðaþjónustu á Suðurnesjum. En við þurfum að nýta þá möguleika sem staðsetning hennar gefur okkur betur en nú er. Rétt skal vera rétt Gallinn er hins vegar sá að flugvöllur- inn er eyrnamerktur REYKJAVÍK. Á flugmiðanum þurfum við að breyta áfangastað (destination) í Keflavík International Airport. Þá eru ferða- menn sem eru að koma hingað til landsins á réttri leið inn í landið. Ekki á leið til Reykjavíkur heldur að lenda á Keflavík International Airport. Mér finnst ekki rétt að afvegaleiða ferða- menn eins og gert er með þessum hætti. Reykjanes er spennandi áfangastaður Breytingin á nafni áfangastaðar myndi hafa mikla þýðingu fyrir sam- félagið okkar og möguleika varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu. Þegar við pöntum okkur ferð til útlanda þá skoðum við t.d. á netinu áður en við förum hvað hægt er að hafa fyrir stafni á áfangastað. Ef áfangastaður flugvallar væri Keflavík, ekki Reykja- vík, þá myndi fólk fletta upp á netinu hvað hægt væri að gera á því svæði. En eins og við vitum þá er margt að skoða hér á Reykjanesinu, t.d. Brúna milli heimsálfa, Gunnuhver, Codl- and, Víkingaheima, Bláa lónið auk fjölmargra annarra áfangastaða og gönguleiða. Tengja ferðaþjónustuna við fiskiðnaðinn Möguleikar til áframhaldandi upp- byggingar ferðaþjónustu á Reykja- nesi eru óþrjótandi. Ég sé t.d. fyrir mér hótel og gistisvæði við höfnina við Fitjar í Njarðvík og alls konar atvinnutengdan ferðamannaiðnað á svæðinu frá Fitjum að Víkinga- heimum. Ég hef heyrt nefnt að fram- kvæmdafólk hafi sýnt því áhuga að kaupa Slippinn í Njarðvík, þ.e. aðal- bygginguna við Sjávargötuna. Þar dreymir fólk um að reka gististað og ég sé fyrir mér möguleika á veitinga- stað og afþreyingu tengda grunnat- vinnuvegi okkar, fiskiðnaði. Rekstur Víkingaheima til einkaaðila Hugmyndin um fiskiþorpið sem grundvöllur að sögu- og menn- ingartengdri ferðaþjónustu er mjög áhugverð og vel gerleg. Þetta er allt spurning um vilja og framsýni. Ég tel mikilvægt að Víkingaheimar verði seldir eða settir í leigu til einkaaðila. Svæðið í kring er hægt að nýta mun betur sem og safnið og það sem það hefur upp á að bjóða. Þar er t.d. hægt að vera með ýmsa afþreyingu, t.d. kæjakróður, köfun, sjóþotuleigu, fjöl- skyldugarð og vera með menningar- tengdar lifandi sýningar, s.s. víkinga- bardaga og slíkt. Við þurfum að hugsa fram í tímann, horfa á tækifærin sem svæðið býður og vinna okkar vinnu. Það gerir það enginn fyrir okkur. Baldvin Gunnarsson, framkvæmda- stjóri og skipar 7. sæti á lista Framsóknar í Reykjanesbæ Það er ýmislegt að athuga við frumvarp ti l breytingu á lögum um veiði- gjöld nr. 74/2012 sem lagt hefur verið fram í þinginu, en það ber líka með sér jákvæðar lag- færingar frá fyrri l ö g u m . O k k u r hefur ekki borið gæfa til að leggja frumvarpið fyrr fram og við erum í annað sinn að framlengja lög um veiðigjald til eins árs. Við verðum því að leggja okkur fram á síðustu dögum þingsins og ljúka málinu og vonandi tekst okkur að slípa frum- varpið til í meðförum þingsins. Í fyrsta lagi er frumvarpið að ganga lengra en ég hefði kosið og er frekar skattur en eðlilegt gjald fyrir að- gang að auðlindinni. Þá hef ég áhyggjur af því að lögin stuðli að enn frekari samþjöppun í greininni sem er þó ærin fyrir. Það er ekki til góðs að gengið verði lengra á því sviði. Samþjöppun var nauðsyn- leg á upphafsárum kvótakerfisins en nú höfum við gengið þann veg lengra en á enda. Við höfum mörg stór og glæsileg fyrirtæki í sjávar- útvegi sem geta betur staðið undir háum veiðigjöldum í skamman tíma og þau eru mikilvæg undir- staða fyrir greinina. Einstaklingsút- gerð er og hefur verið mikilvægur hluti atvinnulífsins í hinum dreifðu byggðum og þolir síður þetta háa gjald en það er mjög mikilvægt að við tryggjum útgerð og vinnslu á landsbyggðinni. Veiðigjald á að vera hóflegt gjald sem endurspeglar þau verðmæti og arð sem auðlindin skapar útgerðinni. Það gjald eiga allir að greiða óháð skuldastöðu fyrirtækjanna að mínu viti. Veiðigjald á að vera af lönduðum afla ekki úthlutuðum heimildum og mikilvægt að lögin taki þeim breyt- ingum. Það er óréttlátt að útgerðir greiði gjald af óveiddum tegundum. Á síðustu loðnuvertíð náðist ekki að veiða 163 þús. tonna kvóta sem var þó mjög lág úthlutun. Margar útgerðir áttu því óveiddar heimildir sem námu hundruðum og jafnvel þúsundum tonna sem þær greiddu engu að síður fullt veiðigjald fyrir. Náttúrulegar aðstæður geta valdið því að ekki náist allur úthlutaður kvóti og þá sérstaklega í uppsjávar- tegundum og því mikilvægt að binda gjaldið við landaðan afla. Þá er það andstætt minni hugmynd um veiðigjaldið að renta af fisk- vinnslu hafi íþyngjandi áhrif á gjaldið og það hefur sérstaklega slæm áhrif á þær útgerðir sem ekki eru tengdar vinnslu. Það er afar ósanngjarnt að einstaklingsútgerðir ótengdar fisk- vinnslunni greiði gjald grundvallað á hagnaði vinnslunnar. Við erum að tala um veiðigjald af auðlindinni ekki vinnslunni. Þar koma til annars konar hugmyndir t.d. markaðsgjald til að auglýsa íslenska framleiðslu eða það sem ég hef verið óþreyttur á að tala um, hækkun launa til fisk- vinnslufólks sem kæmi öllum aðilum best. Ég er reyndar ekki sérstaklega áhugasamur eða uppfinningasamur um skatta á fyrirtæki eða einstakl- inga. Samkvæmt lögunum er heildar- fjárhæð veiðigjalda ákveðin sem 35% af grunni sem er allur hagnaður (EBT) við veiðar og 20% af hagnaði fiskvinnslu. Þá má deila um veiði- gjaldið og hvað það leggst þungt á útgerðina en það er út úr öllu korti að útgerðir sem ekki eru tengdar vinnslu beri gjald vegna hagnaðar af fiskvinnslunni. Einstaklingsút- gerðir munu ekki hafa bolmagn til að standa undir slíku gjaldi og á end- anum gefast þær upp og samþjöppun í greininni verður meiri og alvarlegi en ástæða er til. Þá kemur veiðgjaldið misjafnlega niður á byggðum lands- ins og landsvæðum. Það er því margt sem þarf að skoða við veiðigjaldið og þingið þarf að ljúka við og samþykkja á næstu þremur vikum. Gjaldið er bráðabirgðagjald og sett á til eins árs. Ég hef talað fyrir einföldu hóflegu en lifandi veiðigjaldi sem tekur á breytingum á mörkuðum frá degi til dags. Einföld prósenta af verði á mörkuðum sem tekur mið af verðmæti hvers söludags landaðs afla er skiljanlegt og sanngjarnt kerfi. Núverandi kerfi byggir á rauntölum frá árinu 2012 sem var mjög gott ár í afkomu veiða og vinnslu en á árinu 2014 eru markaðir veikir og afurða- verð lægri og því ljóst að veiðigjaldið er of hátt miðað við forsendur í dag. Við höfum því verk að vinna og von- andi náum við lendingu sem sátt næst um. Ásmundur Friðriksson alþingismaður. ■■ Ásmundur Friðriksson skrifar: Óþolandi atvinnuástand í Reykjanesbæ Nóg að gera í Reykjanesbæ? Veiðigjald eða skattur Hjálmanotkun og umferðin AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.