Víkurfréttir - 08.05.2014, Síða 8
fimmtudagurinn 8. maí 2014 • VÍKURFRÉTTIR8
540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is
Eymundsson Leifsstöð óskar eftir harðduglegum
og brosmildum starfskrafti í afgreiðslustarf.
Um sumarstarf er að ræða og er vinnutíminn 9-17.
Hæfniskröfur:
Góð tungumálakunnátta
Reynsla af afgreiðslu-
störfum æskileg
Rík þjónustulund og jákvæðni
Hæfni í mannlegum
samskiptum
Hugurinn ber þig hálfa leið!
...í Eymundsson ertu aðeins nær
Viðkomandi þarf að geta hafið
störf 1.júní nk.
Áhugasamir vinsamlegast
sendið fyrirspurnir og umsóknir
á atvinna@eymundsson.is
fyrir 15. maí nk.
Gaf tíu poka til fyrirtækja
„Ég útbjó og fór af stað með tíu
matarpoka með hádegismat og
ýmislegt sem þarf yfir daginn, s.s.
safa, þeyting, te og millimál. Valdi
svo tíu fyrirtæki, þar sem tölu-
verður umgangur viðskiptavina er,
og gaf þeim pokana. Út frá því fór
boltinn að rúlla og ég hef ekki þurft
að auglýsa neitt,“ segir Halla. Fjöldi
skammta sem hún framleiðir fer
upp í 60 á dag.
Í gömlu hafnarvigtinni
Halla byrjaði heima en vegna þess
ekki má selja mat sem heimatil-
búinn voru pokarnir svokallaðir
námskeiðspokar. „Ég setti með
matnum áætlun um næringu
og málsverði á miða ásamt inni-
haldslýsingu og fræðslu um ein-
staka mat. Þannig mátti ég selja
matinn og gerði það í eitt ár.“ Hún
fékk síðan aðstöðu á Mamma Mia
um tíma og færði sig svo í hús-
næði gömlu hafnarvigtarinnar við
Hafnargötu fyrir innan við ári.
Þá hafði verið þar hágreiðslustofa
en Halla skipti um gólfefni, setti
millihurð og bætti við tækjum. Í
framleiðslunni segist Halla reyna
að hafa allt hráefni hreint og líf-
rænt. „Ég næ að gera það mikið
þrátt fyrir að það sé dýrt. Svo sæki
ég alltaf íslenskt til bænda ef það
er hægt. Ég sækir m.a. allan fisk í
Vísi og kjúklingakjöt í kjúklingabú
föður míns, Svans, sem hefur verið
kjúklingabóndi í Grindavík í 30 ár.“
Auðvelt pöntunarkerfi
Halla segir fólk vera farið að hugsa
meira um heilsuna en áður og
gaman sé að sjá hvað því finnst gott
að sem hún býður upp á. „Einn
sagði: Það getur bara ekki verið að
þetta sé hollt því þetta er svo gott!“
Margir karlmenn ákveði oft að
hollur matur sé óspennandi og ekki
góður. Hjá Höllu er hægt að velja
um hádegismat, þeyting, eftirrétt,
millimál o.s.frv. „Pizzurnar mínar
eru öðruvísi en fólk á að venjast og
mjög vinsælar, sem og vefjurnar.
Ég gef út matseðil á netinu og er
með fasta liði á honum ásamt inni-
haldslýsingum svo að auðvelt er að
panta daginn áður en afhending
fer fram. Maðurinn minn, sem
er kerfisfræðingur í hugbúnaðar-
gerð, bjó til pöntunarkerfi á netinu
fyrir fyrirtæki og þau fá þá bara
skýrslu þar sem þau geta séð hvað
hver starfsmaður pantaði og það er
dregið af launum. Sum fyrirtæki
niðurgreiða líka. Hver starfsmaður
pantar því fyrir sig,“ segir Halla.
Mamma kemur daglega og
hjálpar
Rekstur svona fyrirtækis eins og
hennar segir hún engan veginn
ganga upp nema eiga góða að.
„Mamma er með mér á hverjum
degi. Hún ætlaði að vera öðru
hverju en kemur hingað og er
allan daginn. Eftirspurnin hefur
leitt mig á þann stað sem ég er í
dag. Ég ætlaði að vera bara með
framleiðslu fyrir einstaklinga en
það hefði ekki gengið eitt og sér,
þrátt fyrir að margir komi við.“
Þess vegna er Halla er með fram-
leiðslu fyrir fyrirtæki líka og sendir
um Suðurnes og einnig til höfuð-
borgarsvæðisins, þar sem maður-
inn hennar starfar. Í Reykjanesbæ
skutlar hún pöntunum í Sporthúsið
og þangað sækir fólk sinn skammt,
sem kominn er um hálf ellefu á
morgnana.
Fékk frjálsar hendur í eld-
húsinu
Spurð um hvenær áhugi á matar-
gerð hafi kviknað segir Halla að
amma hennar og mamma hafi
alltaf verið svakalega duglegar
í eldhúsinu. „Þær hafa líka verið
duglegar að koma með nýjungar
og gert sjálfar frá grunni. Ég fékk
frjálsar hendur með að baka og elda
hvenær sem er. Svo á ég eldri systur
sem er svo mikið í heilsupælingum,
jógakennari, með heilun og fleira.
Ég hef sankað að mér þekkingu frá
henni.“ Þegar uppi er staðið segir
Halla það sem skiptir máli sé að
borða fjölbreytt og geta melt það
sem maður innbyrðir. „Vita hvað
maður setur ofan í sig og hvað fer
vel í mann. Borða reglulega hollt
og gott og þá er hægt að leyfa sér
meira,“ segir hún að endingu.
„Það getur bara ekki verið að þetta
sé hollt því þetta er svo gott“
■■ Framleiðir hollustu í Grindavík:
Pizzur og vefjur vinsælastar
Halla María Svansdóttir hafði lengi gælt við þá hugmynd að opna kaffihús í Grindavík.
En fyrir tveimur árum ákvað hún að setja á stofn fyrirtæki sitt, Halla@heima þar sem hún
framleiðir hollustuvörur fyrir einstaklinga og fyrirtæki.