Víkurfréttir - 08.05.2014, Side 12
fimmtudagurinn 8. maí 2014 • VÍKURFRÉTTIR12
Þegar ég var ungur, bara lítill strákur í grunnskóla, þá fannst
mér ég alltaf vera
svolítið útundan.
Ég upplifði mig
ekki sem hluta af
neinum hóp og var
fljótur að uppgötva
að ég hlyti að vera
eitthvað skrítinn.
Mér fannst það ekki gaman, ég hló
af því og gerði grín af því og fór að
segja ósannar sögur af sjálfum mér
til þess að sanna fyrir hinum krökk-
unum að ég væri sko kannski skrít-
inn en samt væri ég mjög töff. Það
var svo mikilvægt að vera töff. Sem
barn laug ég svo mikið að öðrum
og sjálfum mér að ég var farinn að
trúa lyginni, búa í henni. Þannig
var ég farinn að byggja upp sjálfan
mig út frá einhverjum atvikum
sem gerðust aldrei og láta þau samt
móta mig sem einstakling, falskan
einstakling. Það þarf ekki að spyrja
að því en fljótlega eftir grunnskóla-
gönguna sprakk sápukúlan sem ég
bjó í og ég brotnaði saman.
Við gerum þetta stundum, þá meina
ég við öll, við ljúgum að okkur. Það er
ekki alltaf meðvitað, kannski sjaldn-
ast meðvitað, en okkur finnst þægi-
legt að búa til nýjan sannleika eða
afbaka það sem fyrir er til að sætta
okkur við það sem við erum eða það
sem við höfum. En þessi árátta okkar
um að reyna að vera eitthvað annað
en við erum er veruleikaflótti sem
mun aðeins uppskera svo miklu fleiri
vandamál og vanlíðan en sápukúlan,
sem við vildum gjarnan búa í, leysir.
Til þess að leitast við að leysa vand-
ann þurfum við að horfast í augu við
hann.
Horfumst í augu við vandann
og vinnum í honum
Í dag er Reykjanesbær svolítið eins
og ég þegar ég var barn að ljúga að
sjálfum mér og öðrum. Svo föst er
stjórn bæjarfélagsins í viðjum sjálfs-
blekkingar að það er ekki nokkur
vegur að sjá hvað við höfum og hvert
við stefnum. Reykjanesbær er 20 ára
í ár, er það ekki tilvalinn tími til að
sprengja sápukúluna, horfast í augu
við vandamálin og fara að vinna í
okkar málum?
Gunnar Hörður Garðarsson
6. sæti á framboðslista Samfylk-
ingarinnar og óháðra í Reykjanesbæ
Þegar ég ákvað að bjóða mig fram til starfa fyrir bæinn
okkar fyrir fjórum
árum fékk ég það
skemmtilega verk-
efni að gegna for-
mennsku í fræðslu-
ráði. Ég hef lengi
haft mikinn áhuga á
skólamálum frá því
að vera sjálfur í skóla í rúm 20 ár og
einnig eftir að hafa fylgt börnunum
mínum í gegnum skólakerfið. Það
gerðum við hjónin með mjög gagn-
virkum hætti m.a. í gegnum for-
eldrafélögin og sat ég í foreldraráði
Holtaskóla í nærri 10 ár. Því var ég
fullur tilhlökkunar að beita mér í
þessum málaflokki.
Frá því að einsetning skóla gekk í
garð árið 2000 hefur skólastarf verið
að mótast og þróast á alla vegu og
mikil orka og fjármagn farið í upp-
byggingu mannvirkja og búnaðar.
Síðasta kjörtímabil tókum við þá
ákvörðun að einbeita okkur að innra
starfinu og stefna að bættum námsár-
angri með markvissum aðgerðum.
Með samstilltu átaki skólaskrifstofu,
skólastjórnenda, foreldra, kennara
og annarra starfsmanna skóla hafa
framfarir verið miklar og vakið
verðskuldaða athygli um land allt.
Starfað hefur verið eftir Framtíðar-
sýn Reykjanesbæjar í skólamálum og
fékk verkefnið sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir nýsköpun í opinberri þjón-
ustu og stjórnsýslu. Niðurstöður úr
samræmdum prófum hafa verið sér-
stakt ánægjuefni síðustu tvö árin því
árangur hefur stigmagnast og erum
við nú yfir landsmeðaltali í 5 af 7
greinum og höfum náð að vera meðal
þeirra efstu í stærðfræði í 4. bekk. Við
teljum að með skarpri framtíðarsýn
og samstilltu átaki getum við bætt
árangurinn enn frekar.
Á kjörtímabilinu hafa orðið mikil
umskipti í hópi skólastjórnenda
og hafa öflugir reynsluboltar látið
af störfum eftir áratuga framlag til
skólastarfs hér í bæ og má þar nefna
gömlu kennarana mína Jóhann Geir-
dal og Gunnar Jónsson sem fékk sitt
fyrsta hlutverk á kennaraferlinum að
koma mér og mínum skólafélögum
til manns og stóð sig afar vel. Við
höfum borið þá gæfu að í okkar
skólasamfélagi reyndust vera mjög
verðugir arftakar og er ég afar ánægð-
ur með skipan í skólastjórastöður.
Þar fer fagfólk með mikinn metnað
og ekki þurfti að leita út fyrir póst-
númerin okkar til að finna hæfileika-
ríka einstaklinga. Einum skólastjóra
var bætt við á tímabilinu þegar Háa-
leitisskóli fékk sitt sjálfsstæði en hann
hafði verið útibú frá Njarðvíkurskóla.
Mikil aukning er í nemendafjölda á
Ásbrúarsvæðinu og í Innri-Njarðvík
og er það verkefni næsta kjörtímabils
að mæta þeirri aukningu enn frekar.
Haustið 2012 var viðbygging við sér-
deildina Ösp, í Njarðvíkurskóla, tekin
formlega í notkun og er aðstaðan nú
til mikillar fyrirmyndar. Deildin
starfar eftir þeim grunngildum að
fötluð börn eigi kost á skólagöngu
í heimabyggð sinni eins og önnur
börn. Er okkur bæjarbúum mikill
sómi af starfi deildarinnar.
Reykjanesbær fer fyrir sveitar-
félögum í spjaldtölvuvæðingu innan
grunnskólanna. Einn árgangur
í hverjum skóla hefur nú fengið
spjaldtölvur til notkunar í kennslu
og verður einum árgangi bætt við á
hverju ári á unglingastigi. Verkefnið
er mjög spennandi og gefur það ótal
tækifæri til fjölbreyttari kennsluhátta
og eykur námsáhuga nemenda, bætir
aðgengi að upplýsingum og jafnar
aðstöðumun heimilanna.
Nýlegar kannanir og úttektir á skóla-
starfi í Reykjanesbæ gera ekkert
annað en að gefa okkur byr undir
báða vængi því almenn ánægja er
meðal foreldra með nám og kennslu
barna í grunnskólum bæjarins sam-
kvæmt Skólavoginni. Námsmats-
stofnun birti á dögunum skýrslu um
ytra mat á Myllubakkaskóla sem náði
til stjórnunar, náms og kennslu, innra
mats og lesturs. Heildarniðurstaðan
var afar jákvæð og er enn ein vís-
bendingin um það góða starf sem
unnið er í öllum grunnskólunum
okkar.
Leikskólarnir gegna lykilhlutverki í
að undirbúa börnin okkar fyrir fram-
tíðina. Læsi í sem víðustum skilningi
er stór þáttur í skólastarfinu og eru
leikskólar Reykjanesbæjar orðnir
landsþekktir fyrir áherslur sínar á
stærðfræði og læsi. Reglulega koma
hópar leikskólakennara úr höfuð-
borginni og öðrum sveitarfélögum til
að kynna sér starf skólanna hér í bæ.
Stór hluti barna sem koma frá leik-
skólunum eru læs þegar þau hefja sitt
grunnskólanám og þarf ekki að orð-
lengja hvað það gerir mikinn gæfu-
mun í þeim verkefnum sem þeirra
bíða.
Síðast en alls ekki síst skal nefna Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar sem er
loksins kominn í húsnæði sem mætir
öllum kröfum sem hægt er að gera
til tónlistarskóla. Hið nýja húsnæði
í Hljómahöll er afar vel búið hljóð-
færum og öðrum búnaði. Tengslin
við Hljómahöllina gefur síðan tæki-
færi sem felst í frábærri aðstöðu til
tónleikahalds af ýmsu tagi. Er ég
óendanlega stoltur af að hafa tekið
þátt í að klára það verkefni sem faðir
minn, Rúnar Júlíusson, vann ötullega
við að koma í framkvæmd.
Af verkefnum hvers sveitarfélags taka
skólarnir til sín mest fjármagn og er
það mín skoðun að gott skólastarf
sé hornsteinn hvers samfélags. Við
viljum að krökkunum okkar líði vel í
skólanum og nái þar góðum árangri.
Þegar ég lít yfir þau verkefni sem
unnist hafa á síðasta kjörtímabili þá
get ég ekki annað en verið mjög kátur
en er jafnframt fullur tilhlökkunar að
fylgja þessu góða starfi eftir. Ég vona
svo sannarlega kæri kjósandi að þú
gefir mér tækifæri til þess.
Baldur Guðmundsson
formaður fræðsluráðs og fram-
bjóðandi á lista Sjálfstæðisflokksins
-póstkassinn pósturu vf@vf.is
Kr
ist
inn
Ha
lld
ór
a
Ha
lld
ór
Bja
rn
ey
Gu
ðm
un
du
r
Ko
lbr
ún
Framsókn í Reykjanesbæ
framsokn.com
Betri bæjarstjórn skilar meiri árangri
Öll þurfum við mannfólkið á öryggi að halda til þess að við
fáum þrifist og að
okkur líði vel. Að
vera óöruggur er
ávísun á vanlíðan.
Hins vegar er það
æði misjafnt hvað
það er sem stuðlar
að óöryggi fólks.
Það eru þó nokkrir sameiginlegir
grunnþættir sem skipta okkur máli
og ef þessir þættir eru til staðar í
tilveru hvers og eins, þá má ganga
að því sem vísu að viðkomandi geti
unnið þannig úr lífi sínu að hann
geti verið sáttur við hlutskipti sitt.
Það skiptir mig t.d ekki miklu máli
hvort ég eigi nýjan bíl en það myndi
hafa veruleg áhrif á líðan mína ef ég
gæti ekki gefið börnunum mínum
að borða.
Við verðum síðan alltaf að gera ráð
fyrir því að þarfir okkar séu mis-
munandi og að þær breytist eftir ævi-
skeiðum. Ég er í allt annarri stöðu
sem einstaklingur en þegar ég er
orðinn pabbi hvað þá afi, sem ég varð
fyrir skemmstu. Öll langar okkur
til að lifa og njóta, að lífið sé ekki
bara strit og áhyggjur heldur fullt að
áægjulegum tilefnum þar sem við
gleðjumst hvert með öðru.
En það er bara þannig að við komum
til leiks í þennan heim með mis-
jafna forgjöf og möguleikar okkar
eru ekki þeir sömu. Hvað gerum við
þá? Hvernig eigum við sem hópur að
bregðast við því? Erum við tilbúin til
að gefa aðeins eftir af því sem við sjálf
höfum á milli handanna ef það gæti
orðið til þess að einhverjir fái notið
á sama hátt og við? Erum við sem
samfélag tilbúin til að vinna að því
að fjölga möguleikum þeirra sem búa
við minna öryggi en flest okkar.
Ég er næstum því viss um að flest
okkar geta svarað þessum spurn-
ingum játandi því þannig náum við
að virka sem samfélag, þannig aukum
við öryggið og þannig gerum við eitt-
hvað sem skiptir máli.
Guðbrandur Einarsson
í framboðið fyrir Beina leið
■■ Guðbrandur Einarsson skrifar:
■■ Gunnar Hörður Garðarsson skrifar:
■■ Baldur Guðmundsson skrifar:
Hvað er það sem skiptir máli?
Barnið sem var alltaf að ljúga
Hvað hef ég svo verið að gera í skólamálum?
www.vf.is
LESTUR
VINSÆLASTI
FRÉTTAMIÐILL Á
SUÐURNESJUM
+
83%
Styrktarfélagið G öngum saman efnir til vorgöngu
fyrir alla fjölskylduna víða um
land á mæðradaginn, sunnu-
daginn 11. maí, kl. 11.00. Í
Reykjanesbæ verður gengið frá
íþróttahúsinu við Sunnubraut
og verða tvær vegalengdir í boði,
rúmir 2 km og rúmir 5 km.
Þetta er í þriðja skipti sem þessi
ganga fer fram í Reykjanesbæ og
hvetjum við ALLA til að mæta.
Gangan er gjaldfrjáls en göngu-
fólki gefst kostur á að styrkja
rannsóknir á brjóstakrabbameini,
með frjálsum framlögum eða
með því að festa kaup á vörum
sem hafa verið hannaðar fyrir
Göngum saman og má nefna
Mundaboli, buff ofl. Forsala á
vörum verður í Nettó föstudaginn
9. maí frá kl. 15.00 - 18.00.
Þá verða til sölu kaffi, brjósta-
bollur og annar varningur að
göngu lokinni og andvirði þeirra
sölu rennur óskert til Göngum
sama.
Undirbúningshópur Göngum
saman á Suðurnesjum
Mæðradagsganga
Göngum saman
– sunnudaginn 11. maí kl. 11 í Reykjanesbæ
Fylgist einnig með umræðunni á vf.is