Víkurfréttir - 08.05.2014, Page 18
fimmtudagurinn 8. maí 2014 • VÍKURFRÉTTIR18
-fréttir pósturu vf@vf.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnar-
kosninga, sem fram eiga að fara 31. maí 2014, er hafin
hjá sýslumanninum í Keflavík. Hún verður sem hér segir á
skrifstofum sýslumannsins í Keflavík, Vatnsnesvegi 33,
Reykjanesbæ og Víkurbraut 25, Grindavík:
Reykjanesbær:
• Alla virka daga frá kl. 08:30 til 19:00
• Laugardaginn 10. maí frá kl. 10:00 til 12:00
• Laugardagana 17. og 24. maí frá kl. 10:00 til 14:00
• Á uppstigningardag, fimmtudaginn 29. maí frá kl. 10:00 til 14:00
• Á kjördag, laugardaginn 31. maí frá kl. 10:00 til 14:00
Grindavík:
Opið virka daga og á uppstigningardag sem hér segir:
• Til og með 23. maí frá kl. 08:30 til 13:00.
• Dagana 26.- 28. og 30. maí frá kl. 08:30 til 18:00.
• Á uppstigningardag, fimmtudaginn 29. maí, frá kl. 10:00 til 14:00.
Atkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum og hjúkrunar- og
dvalarheimilum aldraðra fer fram 26. til 28. maí nk.
skv. nánari auglýsingu á viðkomandi stofnunum.
Sýslumaðurinn í Keflavík
5. maí 2014
Þórólfur Halldórsson sýslumaður
Auglýsing um atkvæðagreiðslu
utan kjörfundar
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
ALB10DAS 10,8V Li-Ion
Bor/skrúfvél 1,4Ah 30Nm
14.890
ALM18DB 18V Li-Ion
borvél 2,8Ah 38Nm
39.990
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Asaki VERKFÆRI
AR636 18V Skrúfvél
Ni-Cd 2,0Ah 158Nm
18.890
ALM14DF 14,4V Li-Ion
herðsluskrúfvél
2,8Ah 135Nm
36.890
ALM18DB 18V Li-Ion
borvél 2,8Ah 38Nm
39.990
ALM18DD 18V
höggborvél Li-Ion 2,8Ah
38Nm 2 hraðar
41.890
***** 5 stjörnu verkfæri
14.165
27.665 29.925
29.925
25% kynningarafsláttur í maí
Asaki verkfæri
fyrir iðnaðarmanninn
31.420
11.165
ATH: Tvær rafhlöður, taska
og hraðvirkt hleðslutæki
fylgir hverri hleðsluvél!
AM18DWE 18V NI-CD
borvél Ah 38N.m.
18.990AM14DW 14,4V NI-Cdborvél 1,5 Ah 36N.m
16.990 14.242
12.742
Grindavíkurbær hefur gert hre y f isamninga v ið 45
starfsmenn til næstu fimm mán-
aða þar sem starfsmenn nýta sér
vistvænar samgöngur eins og
hjólreiðar eða göngu á leið til og
frá vinnu og/eða til ferða á vegum
vinnuveitanda. Hreyfisamningur
er kr. 5.000 á mánuði, sem greið-
ist út mánaðarlega. Styrkur þessi
er undanþeginn staðgreiðslu skv.
reglum um skattmat vegna tekna
manna tekjuárið 2014. Um til-
raunaverkefni er að ræða í sumar.
Starfsfólk þarf að skila þarf inn
hreyfidagbók til forstöðumanns í
hverjum mánuði. Verkefnið fer vel
af stað og er mikil ánægja ríkjandi
meðal starfsfólks.
Í Grindavík eru kjöraðstæður
fyrir starfsfólk að ganga eða hjóla
til vinnu. Aðstæður í Grindavík
eru þannig að tiltölulega stutt er
á milli staða og ekki er miklum
brekkum eða hæðum fyrir að fara.
Mikið átak hefur verið unnið í gerð
göngustíga, t.d. upp að Þorbirni, út
í Þórkötlustaðahverfi og niður við
höfn. Þessir stígar nýtast hjólreiða-
fólki jafn vel og þeim sem ganga sér
til heilsubótar. Einnig hefur verið
gert átak í því að auka öryggi í um-
ferðinni og sérstaklega í kringum
skólastofnanir og íþróttamann-
virki. Allt er þetta liður í því að
bæta umhverfis- og eða samgöngu-
mál fyrir íbúa Grindavíkur.
Hjólað á milli stofn-
ana bæjarins
Nú gefst starfsfólki fjögurra stofn-
ana hjá Grindavíkurbæ tækifæri
til þess að fara á reiðhjóli á milli
stofnana bæjarins þegar þeir þurfa
að sinna erindum starfs síns vegna.
Þetta er liður í því að hvetja starfs-
menn til þess að leggja bílnum og
nota hjól til að fara á milli staða.
Vegalengdir á milli stofnanna
Grindavíkurbæjar eru tiltölulega
þægilegar fyrir þennan umhverfis-
væna samgöngumála.
Keypt hafa verið fjögur reiðhjól í
þetta tilraunaverkefni. Skylda er að
nota hjálm og vesti þegar farið er
á milli stofnana og er hver einasta
ferð skráð niður í dagbækur til að
sjá hversu notkunin er mikil til að
meta áframhaldið á verkefninu.
Mikil ánægja er á meðal starfsfólks
viðkomandi stofnana með þetta
umhverfisvæna verkefni.
„Niðurstaðan er jákvæð og ljóst
að reksturinn er á réttri leið og
í samræmi við markmið sem
bæjarstjórnin setti sér undir lok
árs 2010 og aftur fyrir síðustu
fjárhagsáætlun. Við erum að
ráðast í miklar framkvæmdir án
þess að taka lán og því er mikil-
vægt að bæjarsjóður skili góðum
afgangi á næstu árum,“ segir
Róbert Ragnarsson bæjarstjóri
í fréttatilkynningu frá Grinda-
víkurbæ. Hann vill þakka þennan
viðsnúning í rekstri bæjarins
samstilltu átaki bæjarstjórnar og
starfsfólks bæjarins sem hafi lagt
sitt af mörkum við ýmsar hag-
ræðingaraðgerðir. „Á sama tíma
hefur gengið vel í undirstöðuat-
vinnuvegunum okkar, sjávarút-
vegi og ferðaþjónustu, þannig að
atvinnuþátttaka og tekjur hafa
verið að hækka.“
Betri afkoma en gert
var ráð fyrir
Ársuppgjör Grindavíkurbæjar og
stofnana fyrir árið 2013 var lagt
fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Grindavíkurbæjar 29. apríl. Enn
fremur kemur fram í tilkynningu
að rekstrarniðurstaðan sé betri
en áætlanir gerðu ráð fyrir en 180
milljón kr. rekstrarafgangur varð í
fyrra sem er um 24 mkr. betri af-
koma en ráð var fyrir gert. Munar
þar mestu um að rekstrartekjur eru
210 mkr. yfir áætlun, þar á meðal
útsvar tæplega 87 mkr. og framlag
úr Jöfnunarsjóði rúmlega 46 mkr.
Fjárfesting upp
á 1.5 milljarða
Gert er ráð fyrir fjárfestingu upp á
1.565 mkr. á næstu fjórum árum.
Í uppbyggingu eru íþróttamann-
virki, bygging bókasafns og tónlist-
arskóla við grunnskólann. Fram-
kvæmdirnar verða fjármagnaðar
með veltufé frá rekstri og um 500
mkr. af handbæru fé. Því þarf ekki
að taka lán til framkvæmdanna en
á móti kemur að reksturinn mun
þyngjast þegar mannvirkin verða
komin í notkun.
Útsvarshlutfall úr
14,28% í 13,99%
Vegna jákvæðrar rekstrarniður-
stöðu var ljóst að útsvarstekjur
ársins 2013 yrðu nokkuð umfram
áætlun. Því var samþykkt að lækka
útsvarshlutfall vegna ársins 2014 úr
14,28% í 13,99%, sem er með því
sem lægst gerist á landinu. Áætl-
anir til ársins 2017 gera ráð fyrir
jákvæðum þriggja ára rekstrar-
jöfnuði. Skuldahlutfall Grinda-
víkurbæjar er um 63%, en hámark
samkvæmt sveitarstjórnarlögum
er 150%.
Handbært fé 9
milljónum hærra
Heildareignir í samanteknum
reikningsskilum A og B hluta eru
7.821,5 mkr. Heildarskuldir og
skuldbindingar eru 1.437,1 mkr.
Þar af eru lífeyrisskuldbindingar
um 441,2 mkr. Næsta árs greiðsla
lífeyrisskuldbindinga er 19,9 mkr.
Langtímaskuldir eru 740,7 mkr. og
næsta árs afborganir eru 43,3 mkr.
Eigið fé í samanteknum reiknings-
skilum er 6.384,4 mkr. og er eigin-
fjárhlutfall 81,6%. Handbært fé
hækkaði um 89,0 mkr. frá fyrra ári
en áætlun gerði ráð fyrir lækkun að
fjárhæð 345,9 mkr.
■■ Jákvæð rekstrarafkoma Grindavíkurbæjar:
Útsvar með því lægsta á landinu
Starfsmenn Grindavíkurbæjar
hjóla og ganga til og frá vinnu
Starfsfólk Grindavíkur-
bæjar hjólar í vinnuna.
Í framhaldi af samþykkt bæj-arráðs í vetur um stefnu-
mótunarvinnu um íþróttamál
í Grindavík, hafa Grindavíkur-
bær og aðalstjórn UMFG skrifað
undir samkomulag sem felur í sér
að Grindavíkurbær veitir UMFG
10.000.000 kr. styrk sem skiptist
þannig:
1.) 2.000.000 kr. til að koma til
móts við útgjöld deilda vegna 16 -
18 ára starfs.
2.) 2.000.000 kr. til að koma á sam-
ræmdu bókhaldi á milli deilda og
aðalstjórnar sem er í umsjá aðal-
stjórnar.
3.) 6.000.000 kr. til að koma til
móts við afreksstarf UMFG.
Aðalstjórn UMFG hefur í samráði
við deildir félagsins samþykkt nán-
ari skiptingu fjármagnsins á milli
deildanna.
Eftirfarandi skilyrði eru sett fyrir
greiðslu til afreksstarfs allra deilda:
a. Styrkurinn nær eingöngu til
ferðakostnaðar, þjálfararalauna,
sjúkraþjálfunar, búningakostnaðar,
dómarakostnaðar og þátttöku-
gjalda.
b. Gerð er sú krafa að jafnréttis-
sjónarmið gildi við úthlutun innan
deilda UMFG.
c. Allar deildir þurfa að skila inn
greinargerð til frístunda- og menn-
ingarnefndar eigi síðar en 31.
janúar 2015 þar sem gerð er grein
fyrir ráðstöfun styrksins og nánari
sundurliðun.
Á myndinni eru Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Gunnlaugur Hreinsson,
formaður UMFG að takast í hendur eftir undirritun samningsins. Myndin
er tekin við nýtt íþróttamannvirki sem rís þessa mánuðina og í baksýn er
Grindavíkurvöllur en þar hefst keppni innan skamms.
Skrifað undir afrekssamning við UMFG