Víkurfréttir - 19.06.2014, Side 16
fimmtudagurinn 19. júní 2014 • VÍKURFRÉTTIR16
VIKAN Á
VEFNUM
Elfa Falsdóttir
Það vantar Saffran í
Keflavik
Esther Elín
Bróðir minn var samt
bara spurður hvort
hann væri að kaupa
auka bragðarref fyrir
Hunter í ísbúðinni áðan #égdey
Rúnar Gissurarson
Þó svo að seasonið
sé búið hjá guðjóni
árna, þarf hann
þà að slútta mínu
líka? #metabolic
#coachGuðjón
Egill Birgisson
Afhverju horfir
maður alltaf i bak-
sýnisspegilinn þegar
maður keyrir fram hjá
löggu!
Elfa Hrund
Guttormsdóttir
Stoltið okkar hún Vig-
dís Finnbogadóttir
heillaði alla upp úr
skónum á Nordisk Forum í Malmö.
Sólveig Steinunn
Bjarnadóttir
20:05...svona eru
menn spenntir fyrir
HM
Birgitta María
Vilbergsdóttir
Alveg hreint ótrúlegt
að á morgun séu liðin
20 ár frá því að pabbi
minn varð fimmtugur og dró
fánann að húni í skrúðgarðinum
í annað sinn, hitt skiptið var árið
1969. Ég var fjallkona Keflavíkur
þennan dag 1994, en það var
einmitt í síðasta skipti sem það
háttarlag var á vegna samein-
ingar Hafna, Keflavíkur og Njarð-
víkur fyrr þetta sumar. Við fórum í
myndatöku í tilefni dagsins og var
það vel. Þessi dagur verður mér
ávallt kær.
www.rekstrarland.is Skeifunni 11 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Láttu Rekstrarland
létta þér lífið
Ítrustu kröfur um hreinlæti
Við eigum hreinsiefni sem mæta þörfum hvers og eins hvort sem um er að ræða
létt þrif eða sérþrif. Hágæðahreinlætisvörur og þrifaáhöld fyrir heimili, stofnanir
og fyrirtæki. Allt þetta og miklu meira í Rekstrarlandi.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi
í síma 515 1100 eða í útibúum Olís um land allt.
Rekstrarland leggur mikla áherslu á vistvænar og umhverfisvottaðar vörur.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
41
72
2
vf.is -mundi
How do you like
Iceland, Hunter?FiMMtudAGuriNN 19. júNí 2014 • 24. tÖLuBLAÐ • 35. ÁrGANGur
Mikið tjón varð þegar Sædís Bára GK gjöreyðilagðist í eldi í bruna sem varð
í Sandgerðishöfn sl. föstudag. Báturinn
varð alelda á örskammri stund og fékkst
ekki við neitt ráðið. Sædís Bára GK var
bundin við norðurgarð Sandgerðishafnar.
Lágsjávað var þegar eldurinn kom upp og
vindátt þannig að eld og reyk lagði upp með
bryggjukantinum og yfir bryggjuna. Þetta
gerði slökkvistarf erfiðara því erfitt var að
komast að eldinum og ljóst að enginn var
að fara um borð í bátinn til að ráðast gegn
eldinum.
Allt tiltækt slökkvilið frá starfsstöð Bruna-
varna Suðurnesja í Sandgerði og fjölmennt
lið frá Reykjanesbæ voru þegar kölluð út.
Þykkur reykjarbólstur frá brunanum sást
alla leið til Keflavíkur enda eldurinn mikill
í bátnum og þá læsti eldurinn sig fljótlega í
fríholt á bryggjunni.
Fljótlega tókst að ráða niðurlögum eldsins
en þá var reyndar orðið lítið eftir af bátnum
og hann rústir einar í höfninni. Miklar
skemmdir urðu einnig á bryggjunni þar sem
fríholtin brunnu sem og bryggjutré og raf-
magnsskápur með öllu sem í honum var.
Þá hitnaði bryggjan mikið í brunanum og
spurning sett við styrk í steypunni þar sem
mesta bálið logaði.
Eldur kom aftur upp í flaki Sædísar Báru GK
síðar um daginn. Flakið var híft á flutningabíl
að kvöldi föstudagsins og það flutt til rann-
sóknar.
Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi þegar
slökkvistarf stóð yfir.
Mikið tjón í bruna í Sandgerðishöfn
n Fiskibáturinn Sædís Bára GK varð eldi að bráð: