Víkurfréttir - 04.12.2014, Síða 16
16 fimmtudagurinn 4. desember 2014 • VÍKURFRÉTTIR
Pá l l Va l u r B j ö r n s -
son þingmaður
Bjartrar fram-
t í ð a r s e g i r
þingsályktunar-
t i l l ö g u n a v e l
til þess fallna að þoka málum á
Suðurnesjum áfram. „Það er al-
veg rétt sem sagt hefur verið og
komið hefur fram að undanförnu
að margar skýrslur hafa verið
skrifaðar og mörg loforð verið
gefin en ekkert gerist. Atvinnulíf
á Suðurnesjum er að taka vel við
sér og margt er í pípunum sem
skapa mun mikla atvinnu á næstu
misserum. Ég tel að með því að
skipa þennan starfshóp fimm
sérfræðinga úr ráðuneytunum
ásamt sveitarstjórnamönnum á
svæðinu komi eingöngu til með
að hjálpa til við að koma mál-
unum á enn betri rekspöl. Það
hefur ekki farið fram hjá neinum
að ástandið á Suðurnesjum á
undanförnum árum hefur verið
alvarlegt og enn er langt í land
með að það verði viðunandi og
ekki síst í stærsta bæjarfélaginu.
Leita verður allra leiða til þess að
koma því til hjálpar og ekki síst að
gefa íbúum þess von um að betri
tímar séu í vændum. Við sem að
þessari tillögu stöndum trúum
því að þessi samstarfshópur geti
verið einn liður í því að að tekið
sé á málefnum Suðurnesjabúa
með skipulögðum hætti og það
verði til þess að snúa þeirri slæmu
þróun sem átt hefur sér stað á
svæðinu hraðar við.
Hvað finnst þér um að ekki fleiri
þingmenn af Suðurnesjum hafi
verið meðflutningsmenn? Og
um þær skýringar sem þeir gáfu
í Víkurfréttum?
Ég er að sjálfsögðu verulega ósáttur
við það, það hefði gefið þessari til-
lögu miklu meira vægi ef stjórnar-
þingmennirnir á svæðinu hefðu
verið meðflutningsmenn. Það segir
sjálft. Ég gef svo sem ekki mikið
fyrir þessar skýringar sem þeir gefa
á þessari afstöðu en virði þær samt.
Þeir telja sig geta komið málunum
betur áfram með því að þrýsta á
framkvæmdavaldið og er það gott
og vel. Ég er bara ekki að sjá það
gerast, því miður. Eitt af mark-
miðum ríkistjórnarinnar var að
auka opinber störf út á landsbyggð-
inni og flytja stofnanir út á land.
Þann fjórða október í fyrra flutti
Silja Dögg Gunnarsdóttir þings-
ályktunartillögu um fela innanrík-
isráðherra að hefja undirbúning að
flutningi Landhelgisgæslunnar til
Reykjanesbæjar. Á þessari tillögu
voru allir þingmenn Suðurnesja
fyrir utan Vilhjám Árnason og
Ragnheiði Elínu Árnadóttur. Þessi
tillaga er gott dæmi um flutning
stofnunar sem um ríkir víðtæk sátt,
starfsmenn almennt mjög hlynntir
henni. Landhelgisgæslan rekur
nú þegar hluta starfsemi sinnar
á svæðinu og flutningur hennar
myndi eingöngu efla og styrkja
starfsemi hennar. Hver urðu örlög
þessarar tillögu? Hún fékkst ekki
einu sinni rædd í nefnd og dagaði
uppi. Hún hefur reyndar verið
endurflutt á þessu þingi. Í stað þess
að samþykkja þessa góðu tillögu
þá ákváðu tveir ráðherrar Fram-
sóknarflokksins að flytja Fiskistofu
út á land án nokkurar umræðu og
í algerri andstöðu við alla starfs-
menn stofnunarinnar.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit mennta-
málaráðherra og mikinn þrýsting
frá þingmönnum svæðisins þá
hefur Fisktækniskólinn ekki fengið
þjónustusamning sem hann hefur
barist fyrir í nokkur ár. Keilir var
gert að taka á sig lækkun vegna að-
haldskröfu stjórnvalda einn skóla
og fær ekki húsaleigusamning
eins og sambærilegir skólar, þrátt
fyrir þrýsting þingmanna. Þann-
ig að það fæst ekki séð að þessir
góðu stjórnarþingmenn sem ég
veit að eru að leggja sig alla fram
hafi mikið að segja þegar að kemur
að ákvörðunum sem varða Suður-
nes. Margir vildu meina að síðasta
ríkistjórn hafi verið á móti atvinnu-
uppbyggingu í Helguvík og um leið
og ríkistjórn Sjálfstæðismanna og
Framsóknarmanna tæki við myndi
allt fara á fulla ferð þar. Hefur það
gerst? Nei. Tæpum tveimur árum
eftir stjórnarskipti er allt við það
sama í Helguvík.
Hvað finnst þér að við getum
gert til þess að efla samfélagið
og atvinnulífið hér á Suður-
nesjum?
Á Suðurnesjum eru gríðarleg tæki-
færi til staðar til þess að efla og
styrkja samfélögin. Eins og fram
hefur komið áður þá er margt
í bígerð sem efla mun atvinnu á
Suðurnesjunum. Nægir þar að
nefna fyrirhugaða hótelbyggingu
við Bláa lónið sem mun skapa fjöl-
mörg störf í framtíðinni ekki bara
við hótelið sjálft heldur mun þetta
skapa mörg afleidd störf í ferða-
þjónustunni. Stækkun flugstöðvar-
innar er svo annað verkefni sem
mun fara í gang á næstunni og mun
einnig skapa fjölmörg störf. Þó gæti
komið bakslag í þau áform þar sem
að meirhluti fjárlaganefndar setur
fram hugmyndir þess efnis að láta
Isavia greiða ríkinu arð upp á 700
milljónir, peninga sem áttu að fara í
frekari uppbyggingu á flugstöðinni
og umhverfi hennar.
Það hefur verið mikil gróska í ný-
sköpun upp í Eldey og hana verður
að styrkja ennfrekar og síðan
verður að skjóta styrkari stoðum
undir menntastofnanirnar á svæð-
inu. Það er lykilatriði að þær fái að
dafna og þroskast samfélaginu öllu
til heilla. En fyrst og fremst þurfum
við Suðurnesjamenn að standa
saman í blíðu og stríðu og leita allra
leiða til þess að gera þetta frábæra
svæði enn betra til búsetu. Mögu-
leikarnir liggja út um allt og það
er ríkisvaldsins að skapa aðstæður
fyrir frumkvöðla og fyrirtæki að
hasla sér völl til þess að hefja hér
starfsemi. Þessi þingsályktunartil-
laga er einn liður í því.
-þingmenn pósturu vf@vf.is
Oddný Harðardóttir, þing-kona Samfylkingar, lagði
fram á Alþingi á dögunum
þingsályktunar-
tillögu um efl-
ingu atvinnulífs
og samfélags á
Suðurnesjum.
Oddný og Páll
Valur Björns-
son, þingmaður
Bjartrar framtíðar, voru einu
þingmenn Suðurnesja sem komu
að tillögunni. Í síðasta tölublaði
Víkurfrétta svöruðu þingmenn
svæðisins fyrir það að hafa ekki
stutt tillöguna. Bæði Oddný og
Páll eru ósátt við þá ákvörðun
þingmannana og gefa lítið fyrir
svör þeirra.
Oddný segir að vissulega hafi
verið hugað að atvinnulífinu með
ýmsum hætti hér á Suðurnesjum
en árangurinn hafi of oft látið á
sér standa. „Við skulum þó ekki
gera lítið úr þeim árangri sem
hefur náðst. Atvinnuleysið hefur
farið úr 15% þegar það var mest í
um 5% sem það er þessa dagana.
Engar töfralausnir liggja á lausu og
verða ekki gripnar upp úr grjótinu.
Hér hefur verið einblínt um of á
stórar og dýrar hugmyndir eins og
t.d. stóriðju eða álver sem hefur
átt að leysa allan vanda og nánast
fylla upp í það skarð sem brottför
varnarliðsins skyldi eftir. Vandinn
liggur mun dýpra. Hér var iðulega
atvinnuleysi löngu áður en varnar-
liðið fór og tengdist m.a. því að fisk-
veiðikvóti var seldur frá svæðinu
eins og kunnugt er. Sú áhersla sem
ég hef lagt á að efla menntunar-
stig og að efla nýsköpun og þróun
sprotafyrirtækja er ekki út í bláinn.
Það er enginn vafi á því að það er
það sem mun skila okkur flestum
atvinnutækifærum og bættum lífs-
kjörum til lengri tíma.
Finnst þér að þú hefðir getað gert
meira fyrir svæðið þegar þú varst
fjármálaráðherra?
Ég hef aldrei kveinkað mér undan
gagnrýni sem byggir á rökum en
sú gagnrýni sem ég varð fyrir þann
tíma sem ég var fjármálaráðherra
frá þeim sem styðja þá flokka sem
eru nú í ríkisstjórn fannst mér
ósanngjörn. Þau sem hæst létu þá
eru þau sömu og sitja aðgerðalaus
við stjórnartaumana núna. Miðað
við þær aðstæður sem þjóðarbúið
var í þá var heilmargt gert í minni
tíð sem ráðherra og sneri ekki að-
eins að Suðurnesjum. En aðstæður
ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðar-
dóttur og þeirrar sem nú situr eru
gjörólíkar, nánast eins og svart og
hvítt. Vinstri stjórnin var að róa líf-
róður á þjóðarskútunni til að forða
þjóðargjaldþroti. Þá fer enginn í
kaffi- eða kokteilboð. Og okkur
tókst að rétta þjóðarbúið við þó
að staðan væri nánast vonlaus. Þá
voru einfaldlega ekki til fjármunir
í ríkissjóði til að leggja í stór verk-
efni, en við komum þó ýmsu til
leiðar. Ég sé að Páll Jóhann nefnir
það sérstaklega að „tveir fjármála-
ráðherrar hafi ekkert gert.“ Það er
nánast fyndin staðhæfing. Hann
ætti e.t.v. að rifja upp árangur
þeirra ríkisstjórna sem hér sátu í
miðju svokölluðu „góðæri“. Hvaða
verkefni skyldu þau hafa stutt hér
á Suðurnesjum? Man það nokkur?
Við, í miðri efnahagskreppu,
gerðum fjóra fjárfestingarsamn-
inga á Suðurnesjum, sem er meira
heldur en var gert á sama tíma á
öðrum stöðum samtals á land-
inu öllu. Þeir sneru að álverinu í
Helguvík, kísilverksmiðju í Helgu-
vík og gagnaveri Verne Holding á
Ásbrú ásamt fiskvinnslu í Sand-
gerði. Ástæðan fyrir því að álverið
fór ekki af stað hefur ekkert með
ríkisstjórn að gera, hvorki þessa né
þá fyrri. En ég sé að enn eru sjálf-
stæðismenn að tala digurbarka-
lega um að „ýta á Landsvirkjun.“
Hvað eru þeir að tala um? Að orka
til álvers hér sé niðurgreidd af al-
menningi? Eigum við að taka þá
peninga frá heilbrigðiskerfinu eða
menntakerfinu? Nær væri að tala
fyrir því að við Íslendingar njótum
arðs af auðlindum okkar.
Ég vil líka nefna að við lögðum
mikið á okkur til að efla tækifæri
til menntunar á svæðinu í miðri
efnahagskreppu og það skilaði
sér til fjölmargra, í Fjölbraut,
MSS, Keili, Fiskvinnsluskólanum
og Þekkingarsetrinu í Sandgerði.
Þá gerðum við uppbygginguna á
Nesvöllum mögulega. Þetta var
gert þrátt fyrir þrönga stöðu ríkis-
sjóðs. Vegna sérstöðu svæðisins og
mikils skulda- og greiðsluvanda
heimila var sett á laggirnar sérstök
velferðarvakt fyrir Suðurnesin og
útibú Umboðsmanns skuldara var
opnað í Reykjanesbæ.
Nú er staða ríkissjóðs allt önnur
en var á árunum 2009-2013 og
kominn tími til að byggja á þeim
mikla árangri sem við náðum í
vinstri stjórninni. Og hvað er þá
gert? Hækkaður matarskattur á al-
menning og komugjöld og kostn-
aður einstaklinga vegna þjónustu
heilbrigðiskerfisins hækkaður um-
talsvert en á sama tíma er gefinn
stórafsláttur á veiðigjöldum til
útgerðarinnar sem skiptir millj-
örðum. Það væri nú hægt að gera
ýmislegt fyrir þá peninga til dæmis
í öldrunarmálum, heilbrigðiskerf-
inu eða skólunum.
Enginn tillaga er að hálfu ríkis-
stjórnar Sjálfstæðismanna og
Framsóknar um ríkisstuðning við
nauðsynlegar framkvæmdir við
Helguvíkurhöfn vegna Kísilversins.
Það gerir hins vegar Samfylkingin
ásamt öðrum flokkum í minnihlut-
anum. Vinstristjórnin samþykkti
að þegar fyrirvörum í samningum
um atvinnuuppbyggingu yrði af-
létt þá fengi Helguvíkurhöfn sömu
fyrirgreiðslu og höfnin á Húsavík
vegna iðnaðarsvæðisins á Bakka.
Nú hefur fyrirvörum verið aflétt
vegna kísilversins í Helguvík en
engin ríkisstyrkur eins og þeir fá
fyrir norðan. Það verður saga til
næsta bæjar ef þingmenn stjórnar-
meirihlutans í Suðurkjördæmi
greiða atkvæði gegn þeirri tillögu
okkar í minnihlutanum. En ríkis-
stjórnin gerir hins vegar tillögum
um að teknar verði 700 milljónir
frá ISAVIA sem átti að nýta til
framkvæmda á Keflavíkurflugvelli.
Ríkisstjórnin skerðir beinlínis at-
vinnuuppbyggingu á Suðurnesjum
með þessum hætti. Finnst Suður-
nesjamönnum það ásættanlegt?
Við í vinstristjórninni vorum með
fyrirætlanir um flutning Land-
helgisgæslunnar til Suðurnesja,
sem mér finnst enn vera algerlega
borðleggjandi. Sú hugmynd náði
ekki fram að ganga þá en enn er
komin tillaga þar um en meiri
hlutinn virðist ekki tilbúinn til að
styðja hana þrátt fyrir áform um
að flytja aðrar ríkisstofnanir frá
höfuðborgarsvæðinu. Síðan finnst
mér tilvalið að innanlagsflugið
verði fært hingað suðureftir, það
væri góð nýting á fasteignum og
fjármunum.
Hvað finnst þér um að ekki fleiri
þingmenn af Suðurnesjum hafi
verið meðflutningsmenn? Og um
þær skýringar sem þeir gáfu í Vík-
urfréttum?
Ég viðurkenni að ég var fyrir von-
brigðum með það en ég gef svo sem
lítið fyrir þessar skýringar þeirra.
Við þingmenn Suðurkjördæmis
höfum staðið saman um málefni
kjördæmisins og erum t.d. öll
flutningsmenn að þingsályktunar-
tillögu um flutning Landhelgis-
gæslunnar hingað. Þau fundu það
ekki hjá sér að styðja það að gerð
yrði tímasett aðgerðaráætlun fyrir
okkur á Suðurnesjum um hvernig
efla megi atvinnulíf hér og sam-
félag en þau studdu þingsályktun
um uppbyggingu í Húnavatnssýslu
á vorþinginu! Það er bara ekki nóg
að rífa kjaft á heimavelli en standa
svo ekki í lappirnar þegar á hólm-
inn er komið. Það þekkjum við í
mannlífinu. Kannski hafa þau ekki
fengið leyfi frá flokksforystunni
til að taka undir tillögurnar, hvað
veit ég.
Hvað finnst þér að við getum gert
til þess að efla samfélagið og at-
vinnulífið hér á Suðurnesjum?
Við verðum að horfast í augu við
vandann og taka á honum þar
sem hann er. Það er ekki hægt að
horfa fram hjá því að hér eru veikir
innviðir. Þeir koma skýrast fram í
of lágu menntunarstigi og afleið-
ingum langvarandi atvinnuleysis.
Það gerir vandann svo ennþá
erfiðari viðureignar að nánast er
búið að keyra Reykjanesbæ í þrot.
Mikill og erfið vinna er framundan
hjá nýjum meirihluta við að rétta
af fjárhagsstöðu bæjarins. Nú er
stærsta sveitarfélagið á Suður-
nesjum nær eignalaust, í gjörgæslu
eftirlitsnefndar sveitarfélaga og
mun ekki geta beitt sér neitt sem
heitir í fjárfestingum eða atvinnu-
ppbyggingu. Við þessari stöðu
verður að bregðast og í þeim til-
gangi var tillaga mín samin. Vand-
inn sem varð til við brottför hersins
og efnahagshrunsins hefur magn-
ast vegna þess að íbúum svæðis-
ins fjölgaði mjög mikið á árunum
fyrir efnahagshrun og fjárhags-
erfiðleikar stærsta sveitarfélagsins
verður til þess að svæðið stendur
mun veikara en ella. Í þessari stöðu
tel ég og aðrir meðflutningsmenn
tillögunnar að nauðsynlegt sé að
Alþingi feli ríkisstjórninni að láta
vinna tímasetta aðgerðaáætlun í
samráði við sveitarstjórnarmenn á
Suðurnesjum sem miði að því að
efla atvinnu og samfélag á svæðinu.
„Það er bara ekki nóg að rífa kjaft á heimavelli en
standa svo ekki í lappirnar þegar á hólminn er komið“
Segir Oddný Harðardóttir um fjarveru þingmanna af Suðurnesjum í tillögu um eflingu atvinnulífs og samfélags á Suðurnesjum.
Á Suðurnesjum eru gríðarleg tækifæri