Víkurfréttir - 12.02.2015, Page 10
10 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Mikilvægt að tryggja aðgengi
að hágæða neysluvatni
XXSveitarfélagið Vogar hefur undanfarið átt í viðræðum við HS Veitur
þess efnis að tekið verði í notkun nýtt vatnsból, sunnan Reykjanes-
brautar. Sú staðsetning er álitin betri trygging fyrir gæðum vatnsins,
ekki síst ef einhverskonar mengunarslys yrði á Reykjanesbraut.
Í Vogum er starfrækt vatnsveita sem er í eigu sveitarfélagsins. Vatnsveitan
kaupir kalt vatn í heildsölu af HS Veitum hf., en vatnið kemur úr vatns-
bóli í eigu fyrirtækisins og er staðsett í Vogavík. Skemmst er að minnast
mengunar sem varð vart í vatnsbólinu s.l. haust, en þá mældist lítils háttar
mengun í kjölfar mikilla rigninga sem urðu í byrjun september.
Fyrirhuguð uppbygging Stofnfisks hf. í Vogavík ýtir einnig undir að vatns-
ból sveitarfélagsins verði fundinn nýr og öruggari staður, segir í fréttabréfi
Ásgeirs Eiríkssonar, bæjarstjóra í Vogum, sem hann sendi frá sér í dag. Á
síðasta fundi bæjarráðs var ákveðið að fallast á endurskoðun vatnsverðs
til veitunnar. Samningur Vatnsveitunnar og HS Veitna er frá árinu 2001.
Vatnsverð samkvæmt samningnum hefur einungis hækkað sem nemur
vísitöluhækkun síðan þá. Mikilvægt er að trygga íbúum sveitarfélagsins
aðgengi að neysluvatni í hæsta gæðaflokki og er endurskoðun samningsins
liður í því.
Verði að taka fyrir mál landeigenda
XXHæstiréttur hefur fellt úr gildi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem
vísaði frá máli landeigenda á Vatnsleysuströnd á hendur Orkustofnun
og Landsneti. Landeigendurnir krefjast þess að ákvörðun Orkustofn-
unar um að heimila Landsneti að leggja háspennulínu á landi þeirra
verði felld úr gildi. Vefur RÚV greinir frá.
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði málinu frá dómi, sem snýst um Suðurnes-
jalínu 2, á þeim grundvelli að landeigendurna skorti lögvarða hagsmuni af
úrlausn málsins. Á það féllst hæstiréttur ekki og taldi þvert á móti að land-
eigendurnir hefðu beina og lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Héraðs-
dómi var því gert að taka málið til efnislegrar meðferðar, segir í frétt RÚV.
Vogabúar fá vefgátt
XXSveitarfélagið Vogar leitast stöðugt við að bæta þjónustuna, m.a. á
vettvangi stjórnsýslunnar. Á árinu 2015 gerum við ráð fyrir að taka í
notkun rafræna íbúagátt. Þetta kemur fram í vikulegu fréttabréfi bæjar-
stjórans í Vogum.
Aðgengi að gáttinni verður á heimasíðu sveitarfélagsins. Með tilkomu vef-
gáttarinnar verður unnt að sinna ýmsum erindum án tillits til þjónustutíma
bæjarskrifstofu. Umsóknareyðublöð verða aðgengileg í gáttinni, og unnt að
fylla þau út og senda inn með rafrænum hætti.
Upplýsingar um álagningu fasteignagjalda verður aðgengileg, sem og við-
skiptayfirlit vegna greiðslu gjalda til sveitarfélagsins. Íbúar munu hafa tök á
að sjá stöðu á sínum málum við sveitarfélagið á hverjum tíma í vefgáttinni.
Útrétta, sendast og sækja
fundi á nýjum þjónustubíl
– Sveitarfélagið Vogar kaupir fjölnotabíl
XXSveitarfélagið Vogar festi á dögunum kaup á nýjum þjónustubíl fyrir
sveitarfélagið. Í vikulegu fréttabréfi bæjarstjóra til starfsmanna sveitar-
félagsins segir að um er að ræða lítinn fjölnotabíl. Bæði er unnt að nota
hann sem sendibíl og einnig til að sækja fundi, sinna útréttingum o.fl.
Komið hefur verið upp sameiginlegu bókunarkerfi fyrir bílinn, þannig
að þeir sem þurfa að sinna erindum fyrir sveitarfélagið geta bókað bílinn
og notað hann í stað þess að leggja til eigin bíl og fá greitt kílómetragjald.
Bíllinn er af gerðinni Volkswagen Caddy og er með sparneytinni díselvél.
Heilsustyrkir endurskoðaðir í Vogum
XXUm nokkurra ára skeið hefur Sveitarfélagið Vogar greitt starfsfólki
bæjarfélagsins styrki til heilsueflingar, gegn framvísun kvittunar fyrir
árskorti í líkamsrækt, sund eða vegna kaupa á útivistarfatnaði eða öðru
sambærilegu.
Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum segir að greiðslum þessum hefur verið
ætlað það hlutverk að hvetja starfsfólk til að ástunda heilbrigðan lífsstíl og
stunda reglubundna hreyfingu. Á síðasta fundi bæjarráðs var fjallað um
heilsustyrkina og ákveðið að taka reglurnar til endurskoðunar. Markmiðið
með endurskoðuninni er ekki síst að uppfæra reglurnar og með því móti
skoða vandlega hvernig styrkirnir megi sem best virka sem hvatning til
bættrar heilsu.
-fréttir pósturX vf@vf.is
Spjaldtölva gefin til
Hæfingarstöðvarinnar
XXVerkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og ná-
grennirs styrkir Lionsklúbb Njarðvíkur á hverju ári
með því að kaupa af þeim happdrættismiða í jóla-
happdrætti þeirra.
Félagið hafði heppina með sér og vann Lenovo spjald-
tölvu í happdrættinu nú fyrir jólin. Ákveðið var að gefa
Hæfingarstöðinni á Suðurnesjum spjaldtölvuna ásamt
því að gefa kaffistofu hæfingarstöðvarinnar kr.20.000,-
vöruúttekt í Nettó. Gjöfin nýtist þeim á hæfingarstöð-
inni vel þar sem meðal annars er hægt að nýta hana til
þjálfunar.
Gaf grunnskólum Reykjanesbæjar lokaverkefni sitt
Að a l h e i ð u r H a n n a Björnsdóttir færði
nýlega öllum sex grunn-
skólum Reykjanesbæjar
eintak af spilinu „Frá toppi
til táar“. Aðalheiður fékk
styrk úr Skólaþróunarsjóði
Manngildissjóðs árið 2013
til að ljúka við gerð spilsins,
en það var lokaverkefni
hennar til B.Ed.-prófs.
Spilið er byggt á kennslu-
fræðilegum áherslum og
gildum námsefnis í líffræði
á miðstigi og áherslum í
Aðalnámskrá grunnskóla/
Greinasvið 2013. Spilinu er
ætlað að vekja áhuga og auka
þekkingu á námsefninu,
ásamt því að stuðla að fjöl-
breyttum kennsluaðferðum í
náttúrufræði.
Aðalheiður, sem hefur
starfað við grunnskóla í
Reykjanesbæ, hefur nú selt
útgáfuréttinn til Náms-
gagnastofnunar. Gylfi Jón
Gylfason, f ræðslustjóri
Reykjanesbæjar, tók við gjöf-
inni höfðinglegu.
Sjónvarp Víkurfrétta á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30
Við verjum góðum tíma í Keflavíkurkirkju í þessum þætti en aldarafmæli kirkjunnar
verður fagnað um komandi helgi. Séra Skúli S. Ólafsson er í viðtali, einnig Arnór Vilbergsson
organisti og nokkrir kórsöngvarar. Í síðari hluta þáttarins förum við svo í parayoga.
Viltu auglýsa í Sjónvarpi Víkurfrétta?
Nánari upplýsingar gefur Páll Ketilsson á pket@vf.is
Aldarafmæli Keflavíkurkirkju
og slakandi parayoga
Öskudagur er orðinn sá dagur ársins sem börnin
bíða með mikilli eftirvæntingu.
Þá er sköpunarkraftinum gefinn
laus taumur og börnin mæta í
skólann í nýjum hlutverkum sem
þau sjálf hafa valið sér sem ofur-
hetjur, prinsessur, uppvakningar
eða hvaðeina annað sem þeim
finnst heillandi. Skólastarfið er
að sjálfsögðu í takt við þá sem
þangað mæta og öskudagsfjör í
algleymingi.
Að skóladegi loknum hópast
börnin niður í bæ og ganga á milli
fyrirtækja, syngja lög sem þau hafa
æft og fá að launum smáræðis
glaðning. Mörg barnanna leggja
mikið upp úr atriðinu sínu og hafa
lagt sig fram um að æfa það vel og
gera það skemmtilegt. Aðrir veðja
á Gamla Nóa og láta það duga, því
uppskeran er jú líklegast sú sama.
Í ár verða breytingar á þeirri dag-
skrá sem Reykjanesbær hefur
staðið fyrir. Í stað dagskrár sem
verið hefur í Reykjaneshöllinni
verður nú boðið upp á viðburð í
Fjörheimum (88 Húsinu). Þar gefst
þeim börnum sem vilja, kostur á
að mæta á tímabilinu
frá kl. 12-15 og flytja á
sviði öskudagsatriðið
sitt undir yfirskriftinni
Öskudagur „Got Talent.“ Sérstök
dómnefnd veitir verðlaun fyrir
bestu/skemmtilegustu atriðin og
myndir af öllum atriðum verða
birtar á facebook síðu Reykja-
nesbæjar og e.t.v. víðar. Börnum
á öllum aldri er velkomið að taka
þátt og þeir foreldrar sem tök hafa
á eru einnig hvattir til að líta við.
Með þessum viðburði eru börnin
hvött til að leggja sig fram um að
búa til flott og skemmtileg atriði
sem þau geta stolt sýnt hvert öðru
og haft gaman að og þannig hnýtt
endahnútinn á viðburðaríkan dag.
Skráning verður á staðnum.
ÖSKUDAGUR „GOT TALENT“
Í REYKJANESBÆ
ATVINNA
Vantar bifvélavirkja eða vanan verkstæðismann til starfa.
Nauðsynlegt að umsækjendur séu bæði talandi á Íslensku og skrifandi.
Umsóknum svarað á staðnum.
Njarðarbraut 1 - 260 Reykjanesbæ - Sími: 421 8085 - Farsími: 857 9979