Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.02.2015, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 12.02.2015, Blaðsíða 23
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 23 Kvennalið Kef lav íkur í körfuknattleik varð fyrir miklu áfalli í sigurleiknum gegn Val um helgina í Dominos deild- inni. Bandaríski leikmaðurinn Carmen Tyson Thomas rif- beinsbrotnaði í leiknum og eru litlar líkur á því að hún taki þátt í bikarúrslitaleiknum gegn Grindavík þann 20. febrúar. „Hún er rifbeinsbrotin og verður frá í einhvern tíma. Hún er hörkutól en er kvalin þessa dag- ana. Við verðum að sjá hvernig staðan á henni verður eftir 2 vikur þegar kemur að stóra deginum. Læknirinn sagði að hún mætti ekki vera í neinum „contact“ í fjórar vikur. Þannig að við vonum að tíminn verði góður við okkur,“ sagði Falur Harðarson formaður kkd. Keflavíkur um ástandið á Thomas sem er besti leikmaður liðsins. Hún hefur skorað um 27 stig að meðaltali í leik og tekið um 13 fráköst. Áfall fyrir Keflavík - Thomas rifbeinsbrotinn og óvíst með bikarúrslitaleikinn Það er áhugaverður leikur í Dominosdeild karla í kvöld í körfunni. Þar tekur Njarðvík á móti Grindavík í Ljónagryfjunni og hefst rimman kl. 19.15. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið enda fer að styttast í úrslitakeppnina. Njarðvík er í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig en Grindavík er í því 9. með 14 stig. Átta efstu liðin komast í úrslita- keppnina og það er lítill munur á liðunum í sætum 3.-9. þegar fimm umferðir eru eftir að deildarkeppn- inni. „Leikurinn leggst bara prýðilega í mig, þetta verður án efa hörkuleikur eins og gjarnan þegar þessi lið mætast. Ekta „Suðurnesjaslagur,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Njarðvíkur og ítrekaði að mikilvægi leiksins væri mikið fyrir bæði liðin. „Það eru mörg lið á svip- uðum stað í deildinni og baráttan um sæti í úrslita- keppninni því hörð.“ Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Grindavíkur er með góða tilfinningu fyrir leiknum sem leggst vel í hann. Leikurinn leggst vel í mig. Það er stutt eftir af mótinu og við erum eins og staðan er ekki á meðal átta efstu. Hver einasti leikur er gríðarlega mikilvægur í bar- áttunni um sæti í úrslitakeppninni. Njarðvík hafa verið á góðu róli eftir áramót og við þurfum að sýna okkar besta til að leggja þá að velli,“ sagði Sverrir Þór. Suðurnesjarimma í Ljónagryfjunni - fimm leikir eftir í Dominosdeild karla og styttist í úrslitakeppnina H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 5- 01 01 AF ÞVÍ AÐ LÍFIÐ ER SKEMMTILEGT Nú er gaman að vera hjá Sjóvá, því þessa dagana fá 22.060 tjónlausar og skilvísar fjölskyldur í Stofni endurgreiddan hluta af iðgjöldum síðasta árs. Við erum stolt af því að vera eina tryggingafélagið sem umbunar viðskiptavinum sínum á þennan hátt. Þú sækir endurgreiðsluna á Mínar síður á sjova.is ENDUR- GREIÐSLA STOFN ÞESS VEGNA ERTU HJÁ SJÓVÁ djasskvöld á stefnumótum seiðandi djass á föstudagskvöld k l . 21 .00 sögustund í barnakróknum: á laugardögum klukkan þr jú les munda úr bókum fyr i r börnin stefnumót // hafnargötu 28 // s ími 421-1999 // kaffistefnumot. is opnunart ímar: 9.00-22.00 þr i-fim // 9.00-2.00 fös 10.00-2.00 lau // 11 .00-17.00 sun // lokað á mánudögum tómas jónsson - píanó birgir steinn theódórsson - bassi kr istófer rodr iguez svönuson - trommur fram koma aðgangur ókeypis

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.