Víkurfréttir - 12.02.2015, Blaðsíða 21
21VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 12. febrúar 2015
-aðsent pósturu vf@vf.is
Tottenham Hotspur á marga stuðningsmenn á Íslandi –
ekki síst eftir að þeir léku gegn
Keflavík í Evrópukeppni árið
1971. Nýlega fórum við nokkrir
á leik á White Heart Lane. Byrj-
uðum á að sækja pubbinn The
Bricklayers þar sem heitustu
stuðningsmenn hittast til að hita
upp fyrir leik og æfa söngva. Var
sjálfur með íslenskan Spurs-trefil
um hálsinn.
Óhætt er að segja að hann hafi vakið
mikla athygli á The Bricklayers.
Einn heitasti stuðningsmaðurinn
kom til okkar og spurði hvaðan
við kæmum. Þótti honum ótrú-
legt að til væri öflugur Tottenham-
klúbbur á
Íslandi.
Hrópaði það yfir krána við mikinn
fögnuð viðstaddra. Vildi kapp-
inn, Pat Gordon, endilega skipta á
treflum. Nú sækir hann alla leiki
með Tottenham Iceland trefil en
ég ylja mér við trefil sem hefur sótt
fjöldann allan af leikjum. Vildi að
honum fylgdu textarnir sem hafa
komið úr hálsi fyrrum eigenda (lík-
lega ekki allir prenthæfir).
Pat þessi Gordon safnar leikskrám.
Mikið væri nú gaman að geta sent
honum leikskrána frá leik Totten-
ham í Keflavík árið 1971. Á einhver
hana til? Vinsamlegast hafið sam-
band við hjalmar@keilir.net.
Kærar kveðjur,
Hjálmar Árnason
■■ Hjálmar Árnason skrifar:
Leikskrá óskast
Hvað gerirðu eftir skóla?
Læri fyrir morgundaginn og hendi
mér í ræktina
Hver eru áhugamál þín?
Fótbolti, líkamsrækt og námið
Uppáhalds fag í skólanum?
Stærðfræði
En leiðinlegasta?
Ekkert eitthvað sérstakt
Ef þú gætir hitt einhvern
frægan, hver væri það?
Einnar nætur gaman með Beyoncé
væri ekki slæmt
Ef þú gætir fengið einn
ofurkraft hver væri hann?
Að geta notað 100% af heilanum
Hvað er draumastarfið
í framtíðinni?
Ég stefni á lögfræði
Hver er frægastur í
símanum þínum?
Albert Guðmunds
Hver er merki-
legastur sem þú
hefur hitt?
Hitti einu sinni Leoncie úti í búð
Hvað myndirðu gera ef þú
mættir vera ósýnilegur í einn
dag?
Væri ekki málið að kíkja
á Area 51?
Hvað er uppáhalds appið þitt?
Snapchat
Hvernig myndirðu lýsa
fatastílnum þínum?
Classy
Hvernig myndirðu lýsa þér
í einni setningu?
Ég er allt sem manninn þinn
dreymir um að vera.
Hvað er skemmtilegast
við Akurskóla?
Þormóður champ.
Hvaða lag myndi lýsa þér best?
Hot Nigga - Bobby Shmurda
Hvaða sjónvarpsþáttur
myndi lýsa þér best?
Person of Interest
Á hvaða braut ertu?
Ég er á félagsfræðibraut.
Hvaðan ertu og aldur?
Frá Keflavík og 19 ára.
Helsti kostur FS?
Úff ekki hugmynd bara sumir
kennarar fínir.
Áhugamál?
Fótbolti, körfubolti og tónlist.
Hvað hræðistu mest?
Held að það sé bara mikil hæð.
Hvaða FS-ingur er líklegur til
þess að verða frægur og hvers
vegna?
Fannar Orri verður frægur fót-
boltamaður í framtíðinni lofa
ykkur því.
Hver er fyndnastur
í skólanum?
Það er 100% hann Þorgils Gauti.
Hvað sástu síðast í bíó?
Minnir að það hafi verið Amer-
ican sniper.
Hvað finnst þér vanta í mötu-
neytið?
Meiri fjölbreytni.
Hver er þinn helsti galli?
Hvað ég á erfitt með að vakna.
Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í
símanum hjá þér? 1010, Snapchat
og Facebook.
Hverju myndirðu breyta ef þú
værir skólameistari FS?
Leyfa kanski aðeins fleiri skróp.
Hvernig finnst þér félagslífið
í skólanum?
Allt í lagi bara, mætti vera meiri
stemming.
Hvert er stefnan tekin
í framtíðinni?
Hef ekki hugmynd!
Hver er best klædd/ur í FS?
Birkir Freyr leggur rosa metnað í
það, þannig hann fær þetta.
Ívar Gauti Guðlaugsson er FS-ingur vikunnar. Hann er 19. ára Keflvíkingur
á Félagsfræðibraut. Birkir Freyr er best klæddur í skólanum að hans
mati og Ásgeir er uppáhalds kennarinn
Myndi leyfa fleiri skróp
-fs-ingur vikunnar
Kennari?
Á s g e i r
m a ð u r
getur hlegið endalaust í tíma hjá
honum.
Fag í skól-
anum?
Íþrottir
Kvikmynd?
No country for
old men.
Hljómsveit/
tónlistar-
maður?
Asap Rocky
Leikari?
Vinirnir í Friends fá allir þann
heiður. Get ekki valið á milli.
Vefsíður?
Fotbolti.net og Facebook
Flíkin?
66 úlpan á morgnana.
Skyndibiti?
Búllan.
Hvaða tón-
list/lag
fílarðu í laumi
(gulity pleas-
ure)?
H l u s t a
stundum
á Zöru Larsson
hún er frábær.
Eftirlætis
-ung
Davíð M.J. er nemandi í 10. bekk í Akurskóla. Hann
segist vera allt sem manninum þínum langar að
vera. Hann myndi kíkja á Area 51 ef hann yrði ósýni-
kegurní einn dag og stefnir á lögfræði.
Bíó-
mynd?
Limitless
Sjón-
varpsþáttur?
Ray Donovan
Matur?
Piparsteik
Drykkur?
Vatn
Leikari/Leikkona?
Liev Schreiber & Bradley Cooper
Fatabúð?
Topman
Vefsíða?
www.erfostudagur.is
Bók?
Engin sérstök
Tónlistarmaður/Hljómsveit?
Chet Faker
Besta:
Einnar nætur gaman með
Beyoncé væri ekki slæmt
TIL SÖLU
Til sölu Jeppafjaðrir og á sama
stað fást kettlingar gefins
upplýsingar í síma 487 9934.
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
- smáauglýsingar
ÞJÓNUSTA
Ljósberinn skermagerð tekur
að sér viðgerðir á öllum
gerðum og stærðum af
skermum. Uppl. 867 9126
Langar að stofna Harðangur-
sklúbb - fyrir konur á Suður-
nesjum, á öllum aldri. Ef þú
kannt ekki sauminn sjáum
við um námskeið. Áhuga-
samar hafið samb. í 866-2361
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Einarína Jóna Sigurðardóttir,
Frá Fagurhóli, Sandgerði,
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu, Nesvöllum, Reykjanesbæ,
laugardaginn 31. janúar 2015. Jarðsett hefur verið í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins að
Nesvöllum.
Aðstandendur.