Víkurfréttir - 12.02.2015, Page 11
kæra sóknarbarn
keflavíkurkirkja fagnar 100 ára afmæli
þann 14. febrúar næstkomandi. af því tilefni efnir söfnuðurinn
til hátíðarguðsþjónustu sunnudaginn 15. febrúar kl. 14:00.
að athöfn lokinni býður sóknarnefnd til kaffisamsætis
í kirkjulundi, safnaðarheimili keflavíkurkirkju.
Hátíðarsunnudagaskóli kl. 11.00
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00
sunnudaginn 15. febrúar
■■ Verslunarstjóri Duus verslunarinnar greiddi gamlar skuldir og
lagði til helming fjár til nýrrar Keflavíkurkirkju:
Frá fornu fari tilheyrði Kefla-vík Útskálasókn, en þar hefur
verið kirkja a.m.k. frá miðri 14.
öld. Ákvörðun um að reisa kirkju
í Keflavík var tekin 1892 og er því
ljóst að það var mikið áfall þegar
nýbyggð kirkjan fauk í ofsaveðri
14.-15. nóvember 1902.
Eftir stóðu miklar skuldir og þó
reynt væri að selja við úr kirkjunni
dugði það lítið upp í skuldirnar.
Í framhaldi af þessum atburðum
var ákveðið að Keflavík skyldi
verða sérstök sókn og var það frá
1906. Þá kom til sögunnar Ólafur
Á. Ólafsson, verslunarstjóri Duus
verslunarinnar. Hann bauðst til að
greiða helminginn af skuld Kefla-
víkursóknar við Útskálasókn gegn
því að Keflvíkingar greiddu hinn
helminginn á móti. Einnig lofaði
hann að greiða helming af kostn-
aði við byggingu nýrrar kirkju um
leið og Keflvíkingar væru búnir að
safna fyrir hinum helmingnum án
þess að skuldsetja sig. Um leið og
þetta var skjalfest komst skriður á
málið. Rögnvaldur Ólafsson, sem
þá var titlaður byggingarmeistari í
Reykjavík, var fenginn til að teikna
kirkjuna, en hann hafði þá nýlokið
við að teikna Hafnarfjarðarkirkju.
Það má alveg velta fyrir sér rausnar-
skap Ólafs Á. Ólafssonar og líka
hvað lá að baki þeirri staðreynd
að einn maður hafði burði til að
gefa hálfa kirkju og rúmlega það
en kirkjan kostaði 17.000 krónur
uppkomin. Ólafur og systir hans,
ekkjufrú Kristjana Duus, borguðu
10.000 kr. Árin sem Ólafur var
verslunarstjóri í Duusverslun bjó
hann í Kaupmannahöfn á vetrum,
en kom með vorskipum til Kefla-
víkur og átti þar sitt sumarheimili
ásamt eiginkonu sinni, Ástu Ja-
cobsen. Ásta sýndi umhyggju fyrir
börnunum í þorpinu og hélt þeim
veislu sumar hvert.
Kirkjan er einstaklega vel heppnuð
og falleg bygging, hún er stílhrein
og einföld að gerð en yfir henni er
fágun og tign. Hún hefur á sínum
100 árum farið í gegnum margvís-
legar endurbætur og nú síðast 2012
var kirkjuskipinu komið í uppruna-
legt horf, að svo miklu leyti sem við
var komið og hentaði nútímanum.
Þeim endurbótum er enn ekki að
fullu lokið. Eftir er að setja upp nýja
glugga og svo er eftir að stækka
kórloftið að ótöldu orgelinu, en það
þarfnast umtalsverðra endurbóta.
Er verið að safna í sjóð svo unnt
verði að takast á við það verkefni
áður en langt um líður. Áformað
er að gluggarnir verði komnir upp
á afmælisárinu. Hitt er aftur á móti
óvíst hvort hægt verði að stækka
kórloftið og endurbæta orgelið á
næstu árum en stefnt er að því.
(Hluti veglegrar samantektar
Ragnheiðar Ástu Magnúsdóttur
Stórhuga menn í Keflavík
fyrir rúmri öld síðan
formanns sóknarnefndar Kefla-
víkurkirkju sem birtist í Víkur-
fréttum 5. febrúar sl.)
KEFLAVÍKURKIRKJA 100 ÁRA
Þann 14. febrúar nk. verður Keflavíkurkirkja 100 ára. Afmælisins verður minnst með myndarlegum hætti sunnudaginn 15. febrúar, en þá verður hátíðarmessa kl. 14 og um
morguninn verður barnaguðsþjónusta kl. 11. Veitingar verða bornar fram að loknum báðum athöfnunum. Þessara merku tímamóta hefur minnst á margvíslegan hátt á af-
mælisárinu og hófst reyndar fyrir nokkru síðan. Víkurfréttir gera tímamótunum vegleg skil í þessu tölublaði, á vf.is og í vikulegum þætti Sjónvarps Víkurfrétta í þessari viku
og meira á afmælisárinu.