Víkurfréttir - 12.02.2015, Side 19
19VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 12. febrúar 2015
Raolt ehf. | Smiðjuvegur 8 | 200 Kópavogur | 517 7600 | www.raolt.is
Raolt óskar eftir rafvirkjum til starfa
Raolt er framsækið fyrirtæki sem starfar jafnt á
útboðsmarkaði og í þjónustu við fyrirtæki og stofnanir.
Fyrirtækið er eitt stærsta sinnar tegundar á sviði rafverk-
töku á Íslandi.
Helstu verkefni eru almennar raflagnir, tölvu- og
ljósleiðaralagnir, töflu- og stjórnskápasmíði og loftneta
þjónusta.
Raolt ehf. leggur áherslu á að ráða kraftmikla og
metnaðarfulla einstaklinga sem hafa áhuga á að sýna
frumkvæði og sjálfstæði í vinnu.
Fagleg vinnubrögð og framúrskarandi árangur eru
leiðarljós fyrirtækisins. Öflugt starfsmannafélag er
starfrækt hjá fyrirtækinu og er aðstaða starfsmanna öll hin
glæsilegasta.
Raolt ehf. er á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki
á Íslandi árið 2014. Aðeins 1,7% íslenskra fyrirtækja uppfylla
þau skilyrði sem sett eru.
Vegna góðrar verkefnastöðu þurfum við að bæta í hóp starfsmanna. Við leitum að
öflugum einstaklingum sem treysta sér til að gera það sem þarf til þess að ná
frábærum árangri í kreandi umhverfi. Raolt er samhent fyrirtæki sem tileinkar sér
stundvísi og samviskusemi. Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja
um.
Þjónustudeild
Auglýsum eftir vönum rafvirkjum til starfa við þjónustudeild fyrirtækisins. Viðkomandi þurfa
að vera sjálfstæðir, þjónustuliprir og hafa áhuga á því að tileinka sér nýjungar.
Raolt sinnir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Má þar helst nefna Mílu, Vodafone, Nova,
Símann, Neyðarlínuna, Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð, Verne Global, Ölgerðina, N1, Eik
Fasteignafélag, Húsasmiðjuna, Héðinn, Nathan & Olsen, Stolt Sea Farm, Hörpu Tónlistarhús
og fleiri aðila.
Almenn rafvirkjastörf
Auglýsum eftir vönum rafvirkjum, nemum og aðstoðarmönnum í ölbreytt verkefni á
höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Viðkomandi þarf að vera vanur að vinna í teymi.
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en alls ekki skilyrði.
Umsóknir ásamt ferilsskrá skal senda á starf@raolt.is
Frönsk súkkulaðikaka...
Það mætti halda að það væri Valentínusardagurinn alla
daga hjá mér því ég er löngu búin að telja mér trú um
það að alvöru dökkt gæða súkkulaði er allra meina bót
og að það er alltaf stund fyrir gott súkkulaði. Ég
skelli reglulega í franska súkkulaðiköku og það er
með því betra sem ég fæ mér og algjört uppáhalds
þegar mig langar að gera vel við mig og mína. Ég
er dugleg að prófa nýjar uppskriftir að frönskum
súkkulaðikökum og þessi er einstaklega ljúffeng og
með miklu djúpu súkkulaðibragði enda þarf maður
ekki mikið af henni því hún er svo saðsöm. Þessi
slær á alla súkkulaðilöngun og vel það!
Alvöru frönsk súkkulaðikaka:
120 g dökkt súkkulaði 70-85%
½ b íslenskt smjör eða kókósolía
¼ b hreint kakóduft
¾ b hunang eða agave
3 egg
• Hitið ofn í 190°C og smyrjið 22-24 cm spring-
form með smjöri eða kókósolíu.
• Bræðið súkkulaði og smjör saman og hrærið
þar til það er orðið mjúkt.
• Blandið bræddu súkkulaði&smjör-blöndu við
kakóduft, hunang og egg og hrærið þar til það er
orðið að mjúku deigi.
• Hellið deiginu í smurt formið og dreifið vel
úr deiginu.
• Bakið í 20-25 mín við 190°C hita eða þar til
miðjan er bökuð.
• Látið kólna í forminu í 15 mín. og losið úr
forminu.
• Þarnæst er bara njóta með þeyttum ekta rjóma,
ferskum jarðaberjum og bros á vör og gleði í
hjarta.
Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/grasalaeknir.is, www.pinterest.com/grasalaeknir
HEILSUHORNIÐ
ÁSDÍS
GRASALÆKNIR
SKRIFAR
Auglýsingasími Víkurfrétta
er 421 0001
Sjónvarp Víkurfrétta á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30
Við verjum góðum tíma í Keflavíkurkirkju
í þessum þætti en aldarafmæli kirkjunnar
verður fagnað um komandi helgi.
Séra Skúli S. Ólafsson er í viðtali, einnig
Arnór Vilbergsson organisti og nokkrir
kórsöngvarar. Í síðari hluta þáttarins
förum við svo í parayoga.
Viltu auglýsa í Sjónvarp
i Víkurfrétta?
Nánari upplýsingar ge
fur Páll Ketilsson á pk
et@vf.is
Aldarafmæli og
slakandi parayoga
í þætti vikunnar!