Víkurfréttir - 07.05.2015, Side 2
2 fimmtudagur 7. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-fréttir pósturu vf@vf.is
Barnahátíð í Reykja-
nesbæ hefst í dag
Skessan í hellinum býður til Barnahátíðar í tíunda sinn
í fjölskylduvænum Reykjanesbæ 7. - 10. maí.
Allir eru með
„Barnahátíð í Reykjanesbæ hefst
með þrefaldri setningarathöfn á
fimmtudag,“ segir Guðlaug María
Lewis verkefnisstjóri hátíðarinnar
en þann dag hefst listahátíð barna,
formlega með sýningum allra 10
leikskólanna, allra 6 grunnskól-
anna og Fjölbrautaskóla Suður-
nesja í 4 sölum Duushúsa, menn-
ingar- og listamiðstöðvar bæjarins.
„Það frábæra er að allir eru með,“
en þar á Guðlaug við alla framan-
töldu skólana auk Tónlistarskólans
og dansskólana tveggja í bænum.
„Þannig má leiða að því líkur að
flestar fjölskyldur í bænum sem
eiga skólabörn á einhverjum aldri
tengist hátíðinni með einum eða
öðrum hætti. Sýningin í Duus-
húsum, sem aldrei hefur verið jafn
stór og nú, hefur alltaf verið mikil
undraveröld að skoða“ og hvetur
Guðlaug gesti Barnahátíðarinnar
til að láta hana ekki framhjá sér
fara. Á föstudag fer fram Hæfi-
leikahátíð grunnskólanna, þar sem
sýnt er úrval árshátíðaratriða úr
öllum grunnskólunum á glæsilegri
sýningu, í hinu sögufræga húsi,
Stapa. Guðlaug segir markmið há-
tíðarinnar m.a. vera að skapa vett-
vang fyrir fjölskyldur til notalegrar
samvinnu þeim að kostnaðarlausu
og þess vegna er ókeypis á alla við-
burði hátíðarinnar.
Risastórt snjóhús
mun líta dagsins ljós
Að sögn Guðlaugar nær Barna-
hátíðin hámarki á laugardag þegar
boðið verður upp á margs konar
viðburði á hátíðarsvæði sem verður
að þessu sinni í nágrenni Duus-
húsanna. „Meðal viðburða má
nefna fjölbreyttar listasmiðjur þar
sem m.a. verður hægt að búa til
skrímsli, hanna föt á bangsann sinn
og taka ljósmyndir á sérlega frum-
stæðan hátt. Þá mun uppblásið
snjóhús, fyrsta sinnar tegundar á
landinu, rísa á svæðinu og þar geta
börn breyst í búðarmenn og –kon-
ur og selt gömlu leikföngin sín
eða býttað. Fiskasýning verður á
smábátahöfninni, barnaspurninga-
keppni í anda „pub quiz“ og krafta-
keppni krakka. Þá býður Skessan
auðvitað í lummur, Gunni og Ævar
vísindamaður lesa fyrir börnin
og bregða á leik og svona mætti
lengi telja. Þegar hamagangurinn
stendur sem hæst má reikna með
karamelluregni yfir viðstadda og
hefur sumum þótt vissara að hafa
með sér reiðhjólahjálminn sinn til
að verjast þessu harðgerða regni,“
segir Guðlaug.
Barnaóperan Hans
og Gréta á sunnudeginum
Þótt megin þunginn sé á laugar-
deginum er vert að minnast á
að á sunnudeginum býður Óp-
hópurinn upp á sérstaka barna-
óperu, Hans og Grétu, fyrir yngstu
kynslóðina í Hljómahöllinni, sem
spennandi verður að sjá. Auk þess
býður Sambíó í Reykjanesbæ,
börnunum upp á ókeypis bíósýn-
ingar á sunnudeginum.
Dagskrána í heild sinni, með tíma-
setningum, staðsetningum og
nánari upplýsingum er að finna á
vefsíðunni barnahatid.is og frítt er
á alla viðburði Barnahátíðar.
Minjastofnun styrkir
ljóshús á Garðskaga
XuMinjastofnun hefur tilkynnt að
veittur hafi verið styrkur að fjár-
hæð ein og hálf milljón króna úr
húsafriðunarsjóði til endursmíði
ljóshúss á gamla vitann á Garð-
skaga.
Til stendur að færa gamla vitann í
upprunalegt horf og setja upp ljós-
hús í anda þess sem var í vitanum
þar til nýr viti var tekinn í notkun á
Garðskaga haustið 1944.
Götur á iðnaðar-
svæði fá nöfn
Xu Fyrsta gatan innan reits nr. 1
í rammaskipulagi iðnaðarsvæðis
i5 í Grindavík mun heita Hrauns-
vík. Þetta er ákvörðun skipulags-
nefndar Grindavíkur.
Nefndin leggur til að aðrar götur
innan iðnaðarsvæðis i5 muni heita
eftir víkum í strandlengju Grinda-
víkur. Gata meðfram affallslögn
frá Svartsengi skal heita Víkurgata.
Næstu götur skulu heita Krossavík,
Sandvík, Mölvík, Katrínarvík og
Hvalvík.
Skoða áhrif gróðurs á
umferðaröryggi í Vogum
XuUmhverf is- og sk ipulags-
nefnd Sveitarfélagsins Voga hefur
ákveðið er að setja upp umferða-
þrengingu við gatnamót Egils-
götu og Hafnargötu í Vogum með
2 merkjum um 30 km hámarks-
hraða.
Ákveðið er að umhverfisdeild fylgist
með því hvort gróður hafi áhrif á
umferðaröryggi vegfaranda og grípi
því til viðeiganda ráðstafana í sam-
ráði við byggingafulltrúa.
Heilbrigðisráðherra fundaði með bæjarstjóra Garðs:
Veit ekki hvort eða hvenær
fjármagn fáist til framkvæmda
og reksturs Garðvangs
Magnús Stefánsson, bæjar-stjóri í Garði, átti fund
með heilbrigðisráðherra í síðustu
viku þar sem Hjúkrunarþjónusta
við aldraða á Suðurnesjum var
til umræðu. Magnús gerði grein
fyrir fundi sínum með ráðherra í
bæjarráði Garðs sl. fimmtudag og
lagði fram minnisblað frá fund-
inum.
Í minnisblaðinu kemur m.a.
fram að nú eru 57 aldraðir ein-
staklingar á Suðurnesjum á bið-
lista eftir hjúkrunarrúmum. Jafn-
framt kemur fram í minnisblaðinu
samþykkt aðalfundar DS þann 22.
aprl sl., þar sem m.a. er samstaða
um uppbyggingu allt að 30 rúma
hjúkrunarheimilis á Garðvangi.
Leitað er eftir því að ráðherra
upplýsi um stöðu mála við stefnu-
mótun og framkvæmdaáætlun um
frekari uppbyggingu og rekstur
hjúkrunarþjónustu við aldraða á
Suðurnesjum.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir við-
brögðum heilbrigðisráðherra við
efni minnisblaðsins á fundi bæjar-
ráðs Garði, m.a. að ekki liggi fyrir
hvort eða hvenær fjármagn fáist til
framkvæmda og reksturs Garðv-
angs.
HOLTASKÓLI
ATVINNA
Óskum eftir kennara til starfa næsta skólaár
á mið- og unglingastigi.
Þroskaþjálfi óskast í 100% stöðu.
Starfsmenn skóla óskast til starfa fyrir næsta skólaár,
í 75% og 100% stöður, til að sjá um ýmis störf með og
án nemenda.
Óskað er eftir umsjónarmanni til að hafa umsjón með
ýmsu er viðkemur viðhaldi og rekstri skólans í samráði
við skólastóra.
Nánari upplýsingar veita Eðvarð Þór Eðvarðsson,
skólastjóri í síma 420-3500 eða 842-5640 og Helga
Hildur Snorradóttir aðstoðarskólastjóri í síma
420-3500 og 848-1268. Einnig er hægt að senda
fyrirspurn á netföngin edvard.t.edvardsson@hol-
taskoli.is og helga.h.snorradottir@holtaskoli.is
Umsóknarfrestur í allar stöður er til 27. maí.
Sækja skal um störfin á vef Reykjanesbæjar,
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf,
þar sem einnig er að finna upplýsingar
um menntunar- og hæfniskröfur.
UMHVERFISDAGAR
UMSÓKN UM
FRÍSTUNDASKÓLA
SKÓLAÁRIÐ 2015-2016
Umhverfisdagar verða í Reykjanesbæ 11. – 15. maí. Íbúar
og fyrirtæki eru hvött til að fagna vori og taka til
hendinni. Íbúar eru hvattir til klippinga á lóðamörkum
sem snúa að gangstéttum og stígum og snyrta garða
sína. Sími Þjónustumiðstöðvar er 420-3200 ef óskað
er eftir aðstoð við að fjarlægja það sem til fellur af
lífrænum úrgangi.
Jarðvegslosunarstaður Reykjanesbæjar er á Stapa
Innri Njarðvík. Einnig er hægt að fara með garðaúrgang
í KÖLKU á opnunartíma (sjá www.kalka.is).
Íbúum og fyrirtækjaeigendum sem eru með mikið af
brotajárni og málmum sem þarf að fjarlægja geta
haft samband við Hringrás í gegnum netfangið
afgreidsla@hringras.is eða í síma 5501900 til að
fá aðstoð við að koma því í endurvinnslu.
Foreldrum grunnskólabarna í 1.- 4. bekk, sem ætla að
nýta sér frístundaskóla næsta vetur, er bent á að sækja
um frístundavistun í síðasta lagi 22. maí 2015.
Hægt er að sækja um á Mitt Reykjanes
eða á skrifstofum skólanna.
SVEITAPILTSINS
DRAUMUR
AUKATÓNLEIKAR
Vegna mikillar eftir-
spurnar verða aukatón-
leikar á Sveitapiltsins
draum, Rúnar Júl 70 í
Stapa 15. maí.
Tónleikarnir hefjast
kl. 21:00 og verður farið
yfir feril Hr. Rokks
í máli, myndum og
músík.
Miðasala á www.hljomaholl.is.