Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.05.2015, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 07.05.2015, Blaðsíða 14
14 fimmtudagur 7. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR -mannlíf pósturu vf@vf.is Stelpur höfðu töluverðan áhuga á „strákastörfum“ og strákar kynntu sér fatahönnun á árlegri starfsgreinakynningu sem haldin var í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ fyrir skömmu. Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar, ásamt náms- og starfsráðgjöfum, stóðu fyrir kynningunni er liður í Sókn- aráætlun Suðurnesja á vegum Sambands sveitarfélaga á Suður- nesjum og voru um 60 manns sem kynntu þar störf sín. Nem- endur fengu tækifæri til þess að fræðast um hina ýmsu starfs- vettvanga með því að ganga á milli bása og spyrja spurninga. Markmiðið með starfskynning- unni er að efla starfsfræðslu fyrir elstu bekki grunnskóla, stuðla að aukinni starfsvitund og skýrri framtíðarsýn, meðal annars vegna þess að hlutfall þeirra 10. bekk- inga sem halda áfram námi að loknum grunnskóla er lægra á Suðurnesjum en annars staðar á landinu. Starfskynningin er liður í átaksverkefni til eflingar mennt- unar á Suðurnesjum. Víkurfréttir voru á staðnum og tóku meðfylgjandi myndir. Árleg starfsgreinakynning fór fram fyrir skömmu: GRUNNSKÓLANEMAR KYNNTU SÉR MÖGULEG FRAMTÍÐARSTÖRF NISSAN Qashqai luxury. Árgerð 2008, ekinn 98 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur. 2.590.000,- SUBARU Legacy lux. Árgerð 2013, ekinn 35 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur. 4.890.000,- VW Passat ecofuel. Árgerð 2010, ekinn 131 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur. 1.980.000,- RENAULT Megane berline. Árgerð 2014, ekinn 6 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur. 3.180.000,- CHEVROLET Cruze ltz. Árgerð 2012, ekinn 53 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur. 2.480.000,- VEGNA MIKILLAR SÖLU VANTAR OKKUR BÍLA Á SKRÁ STRAX Þú finnur bíl sem hentar þínum þörfum. Lykill fjármagnar allt að 80% af kaupverði bílsins. Við aðlögum greiðslubyrðina að þínum fjárhag. 4 2 0 0 4 0 0 Bolafótur 1 - 260 Reykjanesbæ - Sími 420 0400 gebilar@gebilar.is - www.gebilar.isUmboðsaðili Umboðsaðili Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu við Hafnargötu síðdegis á þriðjudag vegna lík- amsárásar í fjölbýli við götuna. Fjórar merktar lögreglubifreiðar voru sendar á vettvang með for- gangi og umkringdu þær húsið. Þá var kölluð til sjúkrabifreið frá Brunavörnum Suðurnesja. Fljótlega var kona færð úr hús- inu í járnum í lögreglubifreið sem flutti konuna á lögreglustöðina við Hringbraut. Skömmu síðar fóru sjúkraflutningamenn inn í húsið og komu út með konu á sjúkrabörum. Hún var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Sjónarvottur á vettvangi sagði í samtali við Víkurfréttir að skömmu síðar hafi annar einstaklingur verið leiddur út í járnum og að fulltrúar rannsóknardeildar lögreglunnar væru komnir á vettvang. Í fyrstu var óttast að ástandið væri alvarlegt og viðbúnaður lögreglu miðaður við það. Sú sem varð fyrir árásinni var flutt á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja og þaðan á Landspítala í Fossvogi. Hún reynd- ist ekki alvarlega slösuð. Tvö handtekin og ein flutt á sjúkrahús vegna líkamsárásar - mikill viðbúnaður hjá lögreglu og sjúkraliði við Hafnargötu í Keflavík Lögregla umkringdi húsið þar sem árásin var framin. Fjórir merktir lögreglubílar tóku þátt í aðgerðinni og einnig ómerktir bílar. Tvennt var handtekið vegna árásarinnar. Hér er kona leidd í lögreglubíl í handjárnum. Kona sem varð fyrir árásinni var flutt með sjúkrabíl á Landspítala í Fossvogi -fréttir pósturu vf@vf.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.