Víkurfréttir - 07.05.2015, Síða 6
6 fimmtudagur 7. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
vf.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Sigurður Friðrik Gunnarsson, siddi@vf.is
Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000,
dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur P Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.
Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn
sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
SÍMI 421 0000
Margir hafa leitað í útiveru undanfarið þegar sólin fór loksins að
skína skært á heiðskírum himninum. Lóur hafa óvænt gert sig heima-
komnar í görðum fólks, mörgum til mikillar gleði. Það hlýtur að vera
auðveldara að fá sumar í hjartað þegar vorboðinn ljúfi, sem venju-
lega hefur haldið sig í móum og á melum, er kominn svona nálægt
byggðum mannfólksins. Enda eiga langflestar skepnur að geta lifað
saman í ró og spekt og notið samverunnar.
Heilu fjölskyldurnar hafa einnig hópast saman í útileiki að undan-
förnu. Samvera foreldra og barna úti er mögulega mikilvægari en inni
því súrefnið og hreyfingin gera öllum svo gott, fyrir líkama og sál.
Slíkt ætti í raun að vera sjálfsagðari og reglulegri þáttur í heilbrigðu
fjölskyldulífi.
Atli Freyr Demantur hefur að undanförnu vakið mikla athygli fyrir
framgöngu sína í nýjasta myndbandi Of Monsters and Men, I Of the
Storm. Hann var fyrsta fórsturbarn Karenar Jónsdóttur og Vilhjálms
Einarssonari sem voru til umfjöllunar í síðasta tölublaði Víkurfrétta.
Í viðtali í nýjustu Víkurfréttum segir Atli Freyr að mikilvægast hafi
einmitt verið að fá að upplifa heilbrigt heimilislíf.
Heilbrigt heimilislíf einkennist m.a. af samskiptum þar sem virðing,
kærleikur, gagmkvæmur skilningur og tillitssemi ríkja. Við getum
kallað það jafnvægi. Ef fjölskyldur venja sig á þannig samskipti smit-
ast þau eðlilega til vinnustaða eða annarra viðverustaða foreldranna
og í skólana og frístundirnar hjá börnunum.
Samskipti og hreyfing sameinast í vinaliðaverkefni sem virkjuð hafa
verið í sumum grunnskólum á Suðurnesjum. Þau ganga út á að hvetja
nemendur til meiri þátttöku í leikjum og afþreyingu í frímínútum
og skapa betri skólaanda. Aðal markmiðið með þessu verkefni er að
bjóða öllum nemendum skólans fjölbreyttara úrval afþreyingar í frí-
mínútum, þannig að nemendur skólans finni eitthvað við sitt hæfi.
Allir nemendur skólans hlakki til að mæta í skólann sinn, alla daga.
Barnahátíð í Reykjanesbæ hefst með þrefaldri setningarathöfn í dag,
þar sem þátttakendur eru allir 10 leikskólarnir, sex grunnskólar og
Fjölbrautaskóli Suðurnesja. Allir eru með og markmið hátíðarinnar
er m.a. að skapa vettvang fyrir fjölskyldur til notalegrar samvinnu
þeim að kostnaðarlausu.
Sem sagt, nóg í boði fyrir fjölskyldur að gera saman.
Heilsueflandi
samvera
-ritstjórnarbréf
Olga Björt Þórðardóttir skrifar
Eyþór Sæmundsso , eyth r@vf.is
Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is
Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 00, rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, ími 421 0000, a dis@vf.is P Prentun: La dspre t hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur
Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is
-viðtal pósturu olgabjort@vf.is
„Já við erum hér á fullu og vinnum af sömu fram-
kvæmdagleði og foreldrar mínir gerðu með okkur
í fjölskyldufyrirtækinu yfir 40 ár með Ofnasmiðju
Suðurnesja og svo með Hótel Keflavík frá árinu
1986. Í dag erum við með á þriðja tug iðnaðarmanna
og stafsmanna að hreinsa út veggi og gólfefni á 4.
hæð hótelsins. Þar erum við að vinna við að stað-
setja fyrsta hlutann af Diamond Suites sem staðsett
verður á efstu hæð hótelsins og reiknum við með að
hafa 8 svítur til leigu í haust,“ segir Steinþór Jónsson
hótelstjóri í viðtali við Víkurfréttir. Samt sem áður
þurfi að koma þessu rými í gagnið fyrir 20. maí
því þá sé því sem næst fullbókað út sumarið. Loka-
frágangur og húsbúnaður til að svíturnar standist
fimm stjörnu kröfur komi inn í rólegheitum næstu
sex mánuði.
18 svítur og meiri lúxus
Diamond Suites á Hótel Keflavík verður þar með sem
fyrsta fimm stjörnu hótel landsins. „Við ætlum alla leið
í þessari framkvæmd með glæsilega innanstokksmuni
og þjónustu og munum í mörgum þáttum vera með
meiri lúxus en kröfur er gerðar um til fimm stjörnu
hótela á alþjóðamarkaði. Ef vel gengur höfum við hafið
hönnun á viðbótarhæð ofan á Vatnsnesveg 14 og ofan
á álmuna við Framnesveg, samtals með 10 stórum
svítum þannig að til lengri tíma litið yrðu 18 svítur
reknar undir merkjum Diamond Suites, en 77 á Hótel
Keflavík,“ segir Steinþór og bætir við að öll herbergi
og almennt rými á Hótel Keflavík séu og verði að sama
skapi í miklum endurgerðarfasa. „Þar verðum við með
herbergi sem við viljum kalla 4 stjörnu superior og þá
tengjum við okkur enn betur við fimm stjörnu her-
bergin á Diamond Suites.”
Hundruð milljóna framkvæmdir
Aðspurður um áætlaðan heildarkostnað vegna fram-
kvæmda síðustu tvö ár og til að klára fimm stjörnu
framkvæmdir á Diamond Suites og ytra byrðis Hótel
Keflavík, sem og endurnýjun herbergja, segir Stein-
þór þessar framkvæmdir hlaupa á hundruð milljóna
króna. „Uppbygging hótelsins hefur þegar tekið tæp
30 ár en við sjáum í raun fyrir endann á þeim fyrir
næsta vor á 30 ára afmæli hótelsins en þá verður tekin
ákvörðun hvort við förum í þessa frekari stækkun á Di-
amonds Suites. Við er sérstaklega ánægð með að þetta
fyrsta fimm stjörnu hótel landsins sé staðsett í Keflavík
því við höfum frá upphafi haft mikla trú á okkar bæjar-
félagi og þessi stóra fjárfesting sýnir að hugur fylgir
máli,” segir Steinþór að lokum.
Fyrsta 5 stjörnu stjörnu hótel landsins í bígerð hjá Hótel Keflavík:
Vinnum af sömu framkvæmda-
gleði og foreldrar mínir
Hér eru fyrstu drög af stækkun Diamond
Suites á Hótel Keflavík en þar yrðu tíu
svítur til viðbótar þeim átta sem teknar
verða í notkun í vetur.
ÍAV óskar eftir að ráða járniðnaðarmenn
til starfa. Mikilvægt er að viðkomandi hafi
réttindi og reynslu af járnsmíðavinnu.
Nánari upplýsingar veitir Húnbogi í síma 693-4257
Umsóknum skal skila á vef ÍAV, www.iav.is
Járniðnaðarmenn
á Suðurnesjum
Íslenskir aðalverktakar hf. | Höfðabakka 9
110 Reykjavík | s. 530 4200 | iav.is