Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.07.2015, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 16.07.2015, Blaðsíða 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2015 • 28. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR „Um leið og skapast svigrúm til að bæta þjónustu heima- hjúkrunar tel ég brýna þörf að byrja á að styrkja kvöldvaktir heimahjúkrunar með viðveru hjúkrunarfræðings á kvöld- vöktum en í dag eru eingöngu sjúkraliðar sem sinna kvöld- vöktum í heimahjúkrun,“ segir Þórunn Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar HSS. Fyrstu fimm mánuði þessa árs voru vitjanir á vegum heimsþjónustunnar 12.479. Á sama tíma í fyrra voru þær 10.607, sem gerir 18% aukn- ingu á milli ára. Heildarfjöldi vitjana allt árið í fyrra var 28.073. Vegna hagræðingakrafna í kjöl- far hrunsins voru bakvaktir styttar og að lokum voru þær teknar af en með fyrirvara um að hægt sé að setja á bakvaktir allan sólarhringinn þegar að- stæður breytast vegna mikilla veikinda skjólstæðings t.d. vegna líknandi meðferðar í heimahúsi. Í dag eru hjúkrunar- fræðingar á morgunvöktum alla daga vikunnar og eru stöðu- gildin 5,3. Sjúkraliðar vinna alla daga vikunnar á morgun- og kvöldvöktum og eru stöðu- gildin 6.3. Fyrir nokkrum árum voru bak- vaktir hjúkrunarfræðinga kl 16:00-08:00 alla daga vikunnar. Vegna hagræðingakrafna í kjöl- far hrunsins var byrjað á að stytta bakvaktir úr 16:00-08:00 í 16:00-22:00 og að lokum voru þær teknar af en með fyrir- vara um að hægt er að setja á bakvaktir allan sólarhringinn þegar aðstæður breytast vegna mikilla veikinda skjólstæðings t.d. vegna líknandi meðferðar í heimahúsi. Nánar er fjallað um heimaþjónustu HSS í miðopnu Víkurfrétta. Brýn þörf á að styrkja kvöldvaktir heimahjúkrunar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja: 1800 fleiri vitjanir hjá heimaþjónustu HSS 18% aukning á milli ára. Rúmlega 28 þúsund vitjanir árið 2014. Syntu nýtt Njarðvíkur- sund - Hreiðar Hreiðarsson, Kristinn Einarsson og Daníel Óskarsson syntu milli Njarðvíkanna. XX„Við byrjuðum að leika okkur í sjósundi í Nauthólsvíkinni í fyrra og fengum þá hug- mynd að synda milli Njarðvíkanna,“ sögðu fyrrverandi körfuboltakapparnir Hreiðar Hreiðarsson og Kristinn Einarsson en með þeim var félagi þeirra Daníel Óskarsson. Þre- menningarnir syntu frá Innri-Njarðvík inn í höfnina í Ytri-Njarðvík í fyrrakvöld. Nánar á bls 13. Hreiðar Hreiðarsson, Daníel Óskarsson og Kristinn Einarsson hressir eftir sjó- sundið í höfninni í Njarðvík Höfum fengið nýt t símanúmer 590 5090 Heimaþjónusta Heil- brigðisstofnunar Suður- nesja er fertug Meistaramót golfklúbbanna bls 8-9 bls 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.