Víkurfréttir - 16.07.2015, Blaðsíða 13
13VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 16. júlí 2015
pósturu vf@vf.is
„Við byrjuðum að leika okkur í
sjósundi í Nauthólsvíkinni í fyrra
og fengum þá hugmynd að synda
milli Njarðvíkanna,“ sögðu fyrr-
verandi körfuboltakapparnir
Hreiðar Hreiðarsson og Krist-
inn Einarsson en með þeim var
félagi þeirra Daníel Óskarsson.
Þremenningarnir syntu frá Innri-
Njarðvík inn í höfnina í Ytri-
Njarðvík í fyrrakvöld.
Heiðar og Kristinn eru nýgræð-
ingar í sjósundi en undirbjuggu
sig í heilt ár fyrir þetta Njarðvíkur-
sund en Daníel hefur synt sjósund
í tólf ár. Leiðin úr Innri-Njarðvík
í höfnina í Ytri-Njarðvík er um
1100 metrar og voru þeir kappar
um hálftíma á leiðinni. Þeir létu
duga að vera bara í sundskýlu og
sokkum. Lítil trilla fylgdi þeim alla
leið til öryggis. Þeir syntu því á
ágætum hraða og voru hinir hress-
ustu þegar þeir komu í land.
„Ég segi ekki að þetta hafi verið
létt en þetta hafðist. Við vorum
um hálftíma á leiðinni sem er ekki
svo slæmt,“ sagði Hreiðar en fé-
lagi hans Kristinn sagði að það
væri aðeins erfiðara að synda í sjó
en í sundlaug. „Formið á manni
mætti vera betra. Mér kólnaði að-
eins í restina,“ sagði körfubolta-
kappinn. Daníel, sá vani, sagði að
kannski yrði þetta uppátæki að ár-
legum viðburði. „Við tengjum þetta
kannski sjómannadeginum,“ sagði
hann og hló.
Afi Hreiðars, Karvel Ögmunds-
son synti oft fyrr á árum í sjónum
í Njarðvík. Það gerðu bæjarbúar
þó nokkuð í gamla daga. Karvel
kafaði og skoðaði aðstæður þar
sem höfnin er núna og lagði mikla
áherslu á að velja vel stæði fyrir
hana og staðsetningin yrði sem
best í ljósi vinda og strauma. „Mér
fannst tilvalið að prófa að synda
hérna, ég hef oft vel þessu fyrir
mér af hverju fólk var svona mikið
í sjósundi í gamla daga. Ég veit þó
ekki til þess að afi eða aðrir hafi
synt á milli Innri- og Ytri Njarð-
víkur. Þessi sundsprettur var því
kannski aðeins tileinkaður honum
en þó mest bara fjör hjá okkur fé-
lögunum,“ sagði Hreiðar.
Verkstæðið er í nýju 360m2, húsi (áður þjónustuverkstæði BL).
3 stk tveggja pósta lyftur 1 stk fjögurra pósta lyfta.
Hjólastillitæki, vinnuborð, vélagálgi, gírkasstatjakkar,
verkfæravagnar, loftpressa, legupressa
og fullkomið smurkerfi. Laust nú þegar.
Upplýsingar í síma 892 8808.
TIL LEIGU/SÖLU
VERKSTÆÐI
AÐ NJARÐARBRAUT 1, REYKJANESBÆKveðja frá Lionsklúbbi Njarðvíkur
Reynir Ólafsson fæddist í Keflavík 8. júní 1948. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 7. júní 2015.
Reynir gekk til liðs við Lionsklúbb Njarðvíkur árið 2007. Hann var ætíð virkur lionsfélagi
og gaf vel af sér í lionsstarfinu. Reynir var ritari klúbbsins starfsárið 2011-2012. Hann starf-
aði einnig í ýmsum nefndum klúbbsins. Við félagarnir í Lionsklúbbi Njarðvíkur þökkum
fyrir að fá að starfa með Reyni, sem var öflugur lionsmaður og mikill húmoristi.
Lionsklúbbur Njarðvíkur sendir innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu Reynis.
Blessuð sé minning Reynis Ólafssonar.
Fyrir hönd Lionsklúbbs Njarðvíkur, Árni Brynjólfur Hjaltason.
Þrír félagar tóku sig til og syntu í sjónum frá Innri-Njarðvík til Ytri Njarðvíkur:
„Gerum þetta vonandi
að árlegum viðburði“
-sögðu þeir Hreiðar Hreiðarsson, Kristinn Einarsson og Daníel Óskarsson
Okkar ástkæri
REYNIR ÓLAFSSON
viðskiptafræðingur,
Heiðarbakka 1,
Reykjanesbæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 7. júní.
Útför auglýst síðar.
.
Drífa Maríusdóttir,
Gestur Páll Reynisson, Inga María Vilhjálmsdóttir,
Kristín Guðrún Reynisdóttir, Sigurður Helgi Tryggvason,
Magnús Ólafsson, Telma D. Guðlaugsdóttir
og barnabörn.
Vekja athygli á olíubirgðastöð
– og uppbyggingu öryggismiðstöðvar á Keflavíkurflugvelli
XuAtvinnu- og hafnaráð Reykjanesbæjar fagnar því að bent sé á mikil-
vægi alþjóðaflugvallarins á Keflavíkurflugvelli í drögum að skýrslunni
„Hagsmunir Íslands á norðurslóðum“ frá Ráðherranefnd um málefni
norðurslóða 2015.
Atvinnu- og hafnaráði finnst að benda megi á möguleikana sem Helgu-
víkurhöfn hefur vegna olíubirgðastöðvar og með tenginguna við flugvöll-
inn. Einnig þarf að benda á möguleikana í áætlunum um uppbyggingu ör-
yggismiðstöðvar á Keflavíkurflugvelli fyrir norðurskautsríkin, sem tengist
Landhelgisgæslunni og flugumsjónarsvæðis Íslands.
Fríhöfnin styrkir umhverfismál
við Stóru-Vogaskóla
XuUmhverfisnefnd Stóru-Vogaskóla sótti nýverið um styrk til Um-
hverfissjóðs Fríhafnarinnar. Sá sjóður veitir styrki m.a. til að efla gróður
og náttúrufar í nágrenni flugstöðvarinnar.
Stóru-Vogaskóli hlaut styrk að fjárhæð kr. 250.000 til að fegra og snyrta
umhverfi skólans.
Fengu viðurkenningu fyrir þátttöku í
unglingadeildinni Kletti
– hjá Björgunarsveitinni Suðurnes
XuUndanfarin ár hefur nemendum í 9. og 10. bekk Njarðvíkurskóla
staðið til boða að taka sem valgrein starf innan unglingadeildar Björg-
unarsveitarinnar Suðurnes. Margir nemendur hafa fundið sig vel í þeim
félagsskap og allmargir hafa ílengst þannig að þeir hafa farið úr ungl-
ingadeildinni Kletti upp í nýliðasveit björgunarsveitarinnar og þaðan
áfram í starf björgunasveitarinnar.
Á skólaslitum Njarðvíkurskóla nú í júní
fengu tveir nemendur í 10. bekk hvatn-
ingarverðlaun frá björgunarsveitinni fyrir
gott starf innan sveitarinnar en þetta er í
fyrsta sinn sem slík viðurkenning er veitt.
Það voru þeir Adam Assouane og Guð-
jón Oddur Kristjánsson sem fengu flotta
áttavita að gjöf. Það var Ragnheiður Alma
Snæbjörnsdóttir, umsjónarmaður ungl-
ingadeildarinnar, sem afhendi verðlaunin
fyrir hönd gefenda.
TIL LEIGU
ÓSKAST
WWW.VF.IS
Til leigu 4. herbergja einbýlis-
hús á einni hæð á góðum stað í
Garðinum. Leiga er 130 þúsund
á mánuði. Laust 1. ágúst. Upp-
lýsingar í síma 699-8241
Er einhver sem lumar á Betamax
videó tæki í geymsluni hjá sér.
Sigurður Þorleifsson GSM 863-
7265. Mail siggil@simnet.is
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
- smáauglýsingar
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84