Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.07.2015, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 16.07.2015, Blaðsíða 15
15VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 16. júlí 2015 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Fyrir pallinn og stéttina Made by Lavor • 160 bar Max • 8,5 lítrar/mín. • 2500W • Pallabursti • 8 metra slanga • Turbo stútur • Slanga fyrir stíflulosun • Þvottabursti Lavor háþrýstidæla STM 160 27.990 ODEN EÐAL OLÍA á palla. Hágæða Silikonalkyd efni. 3 l. 4.390 Mako penslasett 590 Bio Kleen pallahreinsir 895 5 lítrar kr. 3.295 Landora tréolía 2.690Meister fúgubursti með krók #4360430 2.590 (með auka vírbursta) pósturu eythor@vf.is Meistaramót golfklúbbana fór fram fyrstu og aðra vikuna í júlí. Þátttaka var góð en hefur þó oft verið betri en nærri því þrjúhundruð kylfingar spreyttu sig við ágætar aðstæður á golfvöllunum fjórum á Suður- nesjum. Alls voru 105 keppendur á meistaramóti GS sem fór fram í síðustu viku og aldrei hafa fleiri konur tekið þátt. Guðmundur Rúnar Hallgrímsson sigraði í meistaraflokki karla þriðja árið í röð og Heiður Björk Friðbjörns- dóttir hjá kvenfólkinu en hún sigr- aði með yfirburðum. Guðmundur Rúnar þurfti að hafa mikið fyrir þessum titli því Sigurður Jónsson var kominn með aðra höndina á hann fyrir síðustu 9 holurnar á lokahringnum. Sig- urður átti þá 4 högg á Guðmund sem hins vegar spýtti í lófana svo um munaði og vann þau upp og gott betur með því að leika síðustu 9 holurnar á 3 undir pari. Sigurður lék hins vegar á tveimur yfir og varð að játa sig sigraðan. Helgi og Svanhvít best í Grindavík Helgi Dan Steinsson og Svanhvít Helga Hammer urðu klúbbmeist- arar Golfklúbbs Grindavíkur en meistamóti GS lauk sl. laugardag. Helgi fékk litla samkeppni í ár og van með 35 högga mun og endaði á þremur yfir pari vallarins. Svanhvít var í svipuðum málum og vann með 18 högga mun. Þátttaka var mjög góð en 74 kylfingar mættu til leiks. Þór og Hulda unnu í Sandgerði Þór Ríkharðsson varð klúbbmeist- ari Golfklúbbs Sandgerðis. Þór lék 72 holurnar á 286 höggum eða 2 undir pari og var nítján höggum á undan næsta manni. Í kvenna- flokki sigraði Hulda Björg Birgis- dóttir á 311 höggum. Adam og Guðrún léku best á Kálfatjörn Klúbbmeistari hjá Golfklúbbi Vatnsleysustrandar varð Adam Örn Stefánsson en hjá kvenfólkinu sigraði Guðrún Egilsdóttir. Adam lék á 292 og Guðrún á 295 höggum. Meistaramót golfklúbbanna: Guðmundur Rúnar og Heiður sigruðu í Leirunni Verðlaunahafar hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Guðmundur og Heiður urðu klúbbmeistarar GS 2015. Helgi Dan Steinsson og Svanhvít Helga Ham- mer sigruðu í Grindavík. Verðlaunahafar í Grindavík. Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001 Elskulegi bróðir okkar, Eiríkur Skúlason, f. 7. feb. 1959, lést 26. júní 2015 í Eureka Spring Arkansas USA. Hann verður jarðsunginn 23. júlí í Eureka Spring. Fyrir hönd fjölskyldu hans, Sigurjón Skúlason, Ingólfur Skúlason, Ólafur Th. Skúlason, Valdís Skúladóttir, Kolbrún Skúlasdóttir.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.