Víkurfréttir - 16.07.2015, Blaðsíða 9
9VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 16. júlí 2015
pósturu olgabjort@vf.is
hjúkrunar. „Það er svo nærandi að
ná í þekkingu og spegla okkur í
öðrum“.
Aðstæður og
aðstandendur vega þungt
Eins og gefur að skilja eru aðstand-
endur einnig alltaf stór þáttur í því
að fólk geti verið veikt heima. „Það
fer allt eftir fjölskyldumynstri, að-
stæðum og ýmsu öðru. Við höfum
verið að veita líknandi meðferð í
heimahúsum frá því Sigurður
Árnason krabbameinslæknir byrj-
aði hér árið 2003. Sú þjónusta er
opin bók á þann hátt að þarfir og
aðstæður eru metnar hjá hverjum
og einum og snýst þjónustan um
samvinnu og handleiðslu,“ segir
Margrét. Spurð hvort það þurfi
ekki góða mannþekkjara í slík störf
segir Margrét svo vera. „Þær sem
starfa hér eru mjög reyndar, við
vinnum teymisvinnu og tölum
mikið saman. Við vinnum saman
sem ein heild og berum saman
bækur okkar til að vera á sömu
blaðsíðu. Þannig hjálpum við hver
annarri og erum til staðar. Við
hvetjum líka hvor aðra til að létta
á sér. Það koma slæmir dagar og
vikur hjá öllum og það getur eðli-
lega komið þreyta í mannskapinn.
Heimilin geta verið ólík og að-
stæður. Oft þarf að skipta um gír;
fara úr mikilli sorg á einum stað þar
sem er deyjandi einstaklingur og
yfir á annað heimili þar sem aldr-
aður einstaklingur þarf létta aðstoð
og stuðning við athafnir daglegs
lífs.“
Yngstu
skjólstæðingarnir nýfæddir
Yngstu skjólstæðingar heima-
hjúkrunar hafa verið allt niður í
nokkurra daga ungabörn. Eins og
fram hefur komið sinnir heima-
hjúkurn öllum aldurshópum, oft
börnum, en verkefnin eru mjög
mismundi, allt frá næringu og/
eða lyfjagjöf í æð yfir í aðstoð við
böðun. Margrét segir störf hjúk-
urnarfræðinga heimahjúkrunar
snúast að miklu leyti um það að
aðstoða skjólstæðinga að lifa með
langvinna sjúkdóma. „Þeir þurfa
að öðlast færni í því að þekkja sjúk-
dómseinkenni sín og hvað það er í
þeirra lífsstíl sem hægt er að breyta
til þess að líða betur. Hreyfing er
t.d. mjög mikilvægur þáttur í því
að líða betur“. Það fari síðan eftir
sambandinu sem myndast hversu
mikið skjólstæðingur opni sig og sé
tilbúinn að fræðast um sjúkdóm-
inn og einkennin. „Við erum bara
duglegar að leita okkur upplýs-
ingar. Það getur verið að fólki líði
betur með einhverjum starfsmanni
en öðrum og treysti honum betur
og verður þá opnara. Við vinnum
í teymisvinnu með læknum og og
metum hvar læknisþjónustan tekur
við af okkar þjónustu. Þegar um er
að ræða líknandi meðferð þá erum
við í sambandi við Sigurð lækni.
Eftir andlát í heimahúsi fylgjum
við maka/aðstandendum eftir
með samtali eftir um það bil sex
vikur. Einnig má geta þess að Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja, í sam-
starfi við prestana í Keflavíkursókn,
bauð aðstandendum allra þeirra
sem létust á HSS og í heimahús á
árinu, til samverustundar á allra
heilagra messu í fyrra. Eftir sam-
verustund var boðið upp á kaffi í
safnaðarheimilinu sem starfsfólk
d-deildar sá um að útbúa. Margir
lýstu ánægju sinni með þessa sam-
verustund og er fyrirhugað að þetta
sé komið til með að verða áfram,“
segir Margrét að lokum.
Viltu vinna í ferðaþjónustu?
Gray Line Iceland leitar að sjálfstæðum og drífandi einstaklingum
sem búa yfir mikilli þjónustulund.
Keflavíkurflugvöllur – framtíðarstarf
Í boði er:
• 100% starf og hlutastarf
• Unnið er á 12 klst. vöktum
Helstu verkefni:
• Upplýsingagjöf til ferðamanna
• Sala á ferðum
• Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Góð enskukunnátta
• Önnur tungumálakunnátta kostur
• Góð þekking á Íslandi
• Þjónustulund og sveigjanleiki
Gray Line Iceland Gæði – Öryggi – Þjónusta
Umsóknir berist til: Elínar Hlífar Helgadóttur, mannauðsstjóra,
elin@grayline.is. Umsókn þarf að fylgja kynningarbréf ásamt
ferilskrá. Umsóknarfrestur er til og með 21. júlí 2015.
Gray Line Iceland er leiðandi íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki í örum vexti.
Fyrirtækið er handhafi viðskiptasérleyfis Gray Line Worldwide sem er
stærsta skoðunarferðafyrirtæki í heimi. Félagið er ferðaskipuleggjandi,
ferðaskrifstofa og hópferðafyrirtæki með starfsemi einkum í skipulögðum
dagsferðum með yfir 60 áfangastaði víðs vegar um Ísland. Gray Line á
Íslandi á einn yngsta rútubílaflota landsins, 65 hópferðabíla sem taka frá
9 til 71 farþega. Félagið flutti rúmlega 510 þúsund ferðamenn árið 2014
í eigin ferðum. Fyrirtækið kappkostar að veita góða og persónulega
þjónustu við ferðamenn á Íslandi.