Víkurfréttir - 23.07.2015, Side 11
12 fimmtudagur 23. júlí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Ke f l v í k i n g u r i n n o g hönnuðurinn Halla Bene-
diktsdóttir hefur verið ráðin um-
sjónarmaður Jónshúss í Kaup-
mannahöfn sem er nú félags-
heimili Íslendinga, minningar-
safn um Jón Sigurðsson og Ingi-
björgu og bókasafn auk þess sem
ýmiss félög hafa aðstöðu í húsinu.
Halla hefur búið og starfað í kaup-
mannahöfn ásamt fjölskyldu sinni
frá árinu 2009 og hefur hún að
eigin sögn verið virkur notandi
Jónshúss frá upphafi. Það hvarlaði
þó ekki að henni að sækja um starf
umsjónarmanns þegar hún frétti
að það væri laust til umsóknar en
eftir áeggjan vinkvenna lét hún til
skarar skríða.
„Ég mæti í Jónshús nokkrum
sinnum í hverri viku. Á laugar-
dögum er íslenskuskóli í húsinu
og ég hef verið svo heppin að vera
kennarinn. Þar fæ ég tækifæri til
að kenna stórum hópi af íslenskum
börnum íslensku,“ segir Halla en
einnig fer fram öflugt félagsstarf í
húsinu.
„Eitt af hlutverkum Jónshúss er
að vera rammi utan um félags-
starf hinna fjölmörgu Íslendinga
sem búa í Kaupmannahöfn. Ég
er í hópi kvenna sem standa fyrir
prjónakvöldum en fyrsta fimmtu-
dag í hverjum mánuði mæta fé-
lagar Garnaflækjunnar í Jónshús
með prjónana. Í Jónshúsi er líka
fundaraðstaða fyrir hin ýmsu fé-
lög Íslendinga, Ég er formaður í
einu þeirra og fundum við í Félagi
kvenna í atvinnulífinu í Danmörku
í Jónshúsi.“
Halla hefur fengist við fjölda verk-
efna í Kaupmannahöfn, bæði sem
kennari og hönnuður.
„Ég hef verið að kenna íslenskum
börnum í Kaupmannahöfn og
Hróarskeldu íslensku sem hefur
verið skemmtileg tilbreyting frá því
að prjóna og hanna. Verkefni mín
sem hönnuður eru fjölbreytt, ég
hef t.d. verið að hanna og prjóna
fyrir danskan fatahönnuð, Anne
Sofie Madsen og þá hef ég hannað
prjónauppskriftir fyrir nýtt íslenskt
garn sem heitir einrúm. Nú svo er
ég prjónahönnuðurinn Halla Ben
að prjóna og hanna mínar eigin
vörur,“ segir Halla en hún er þekkt
fyrir útfærslu sína og ást á íslensku
ullinni.
„Ég er heilluð af íslensku ullinni
og hef unnið að því að kynna hana
hér í Kaupmannahöfn m.a. með
því að halda stóra prjónaviðburði.
Nú er ég að undirbúa prjónavið-
burð undir yfirskriftinni „Íslandske
strikkedage“ sem verður haldinn í
september á Nordatlantens Brygge
sem er menningarhús Íslendinga,
Færeyinga og Grænlendinga.“
Verkefnin sem bíða Höllu í Jóns-
húsi er fjölmörg, húsið er stórt og
rúmar allskonar starfsemi. Halla
mun taka við starfinu 1. september
og mun hún að eigin sögn leggja sig
fram við að feta í fótspor Jóns nú-
verandi umsjónarmanns sem hefur
unnið gott starf að hennar mati.
„Stór hluti verkefnanna er í föstum
skorðum en með nýjum starfs-
manni koma nýjar áherslur. Núna
eru Danir og Íslendingar sem búa í
Danmörku að hefja sitt sumarfrí og
ég geri ráð fyrir að setja mig hægt
og rólega í þetta spennandi starf
í ágúst. Okkur hjónum hlakkar
mikið til að flytja inn í þetta sögu-
fræga hús og búa á Østervoldgade
næstu þrjú árin“.
Halla Ben ráðin umsjónarmaður
Jónshúss í Kaupmannahöfn
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Hönnun Höllu fyrir einrúm garn.
Steik að hætti
Gumma frænda
Aníta Lind Róbertsdóttir er 17. ára Keflavíkurmær
sem stundar nám við FS. Hún hefur eytt meirihluta
sumarfrísins í Florida. The Weeknd á sumarsmell-
inn og fallegt veður kemur henni í sumarfíling.
Aldur og búseta?
17 ára, Keflavík.
Starf eða nemi?
Nemi við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja.
Hvernig hefur sum-
arið verið hja þér?
Notalegar 5 vikur í Ameríku
og ágætir dagar hér heima.
Hvernig á að verja
sumarfríinu?
Ég ætla að njóta þess
sem eftir er með fjöl-
skyldu og vinum.
Ætlar þú að ferðast í
sumar, og hvert þá?
Geri ekki ráð fyrir að fara
neitt lengra en upp í sveit.
Eftirlætis staður á Íslandi?
Mér finnst alltaf nota-
legt á Akureyri.
Hvað einkennir ís-
lenskt sumar?
Falleg sólsetur ein-
kennir íslenskt sumar.
Áhugamál þín?
Það sem hefur verið mér
efst í huga síðan ég man
eftir mér er allt sem við-
kemur háloftunum og flugi.
Svo er að sjálfsögðu nauð-
synlegt að hafa gaman af
hreyfingu og menntun.
Einhver sem þú stundar
aðeins á sumrin?
Ég ferðast meira á sumrin.
Hvað ætlar þú að gera um
Verslunarmannahelgina?
Ekki ákveðið.
Hvað fær þig til þess
komast í sumarfíling?
Fallegt veður.
Hvað er sumarsmellurinn
í ár að þínu mati?
Fátt annað en Can't Feel
My Face með The Weeknd
spilað í USA, svo það minnir
mig helst á sumarið í ár.
Hvað er það besta við
íslenskt sumar?
Landið okkar verður
mun fallegra.
En versta?
Kuldinn.
Uppáhalds grillmatur?
Steik að hætti
Gumma frænda.
Sumardrykkurinn?
Vatn, allan ársins hring.
A
ní
ta
L
in
d
R
ób
er
ts
dó
tt
ir
UMSJÓN:
PÁLL ORRI PÁLSSON
POP@VF.IS
TIL LEIGU
TAPAÐ/FUNDIÐ
ÓSKAST
Laust 1. sept. Húsið er 204 fm með
bílskúr. 4 svefnherbergi, verönd
og gróinn garður. Leiga 230 þús. á
mánuði + hiti og rafmagn. Vandað
og gott hús í alla staði! Samband í
s: 8647166 eða á elfadj@gmail.com
Til leigu 4. herbergja einbýlis-
hús á einni hæð á góðum stað í
Garðinum. Leiga er 130 þúsund
á mánuði. Laust 1. Ágúst. Upp-
lýsingar í síma 699-8241.
Lyklakippa tapaðist á bílastæðinu við Krossmóa 4
(Landsbankann). Kippan er frá Georg Jensen og
einum lykli. Finnandi vinsamlegast hringi í s. 861-
4707 eða skili lyklinum á skrifstofu Víkurfrétta.
Óska eftir 3 herbergja íbúð, get
lagt fram 3 mánaðar tryggingu.
Meðmæli frá fyrri leigusala.
Hafið samband við mig
í síma 863-7576.
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
- smáauglýsingar
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
30% afsláttur af eldhúsvöskum
og völdum blöndunartækjum!
Bol-834 80x48x18cm þykkt 0,8mm
11.990
Bol-604 48x43x18cm Þykkt stáls 0,8mm
7.790
(fleiri stærðir til)
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Bol-871 48x cm þvermál
Þykkt stáls 0,8mm
7.390
Bol-897 66x43x18cm þykkt 0,8mm
11.490
Cisa 43840
Eldhústæki
7.490
Cisa 41860
Eldhústæki
7.490
Cisa 43789
Eldhústæki
5.990
8.393 8.043
5.173
5.243
5.243
4.193 5.453
Fuglavík 18. Reykjanesbæ
Opið 8-18 virka daga
Mikið úrval af vöskum!