Víkurfréttir - 24.09.2015, Page 6
6 fimmtudagur 24. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
AUGLÝSINGASÍMINN
ER 421 0001
vf.is
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Friðrik K. Jónsson, frikki@vf.is
Dagný Gísladóttir, dagny@vf.is
Sigurður Friðrik Gunnarsson, siddi@vf.is
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is og kylfingur.is
ÚTGEFANDI:
AFGREIÐSLA OG RITSTJÓRN:
RITSTJÓRI OG ÁBM.:
FRÉTTASTJÓRI:
BLAÐAMENN:
AUGLÝSINGASTJÓRI:
UMBROT OG HÖNNUN:
AFGREIÐSLA:
PRENTVINNSLA:
UPPLAG:
DREIFING:
DAGLEG STAFRÆN ÚTGÁFA:
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl.
17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáaug-
lýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðju-
dögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist
skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á
vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri
útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
HILMAR BRAGI BÁRÐARSON
RITSTJÓRNARPISTILL
Súrt ástand í Sandgerði
Í Sandgerði eru um 550 fast-
eignir sem eru flokkaðar sem
íbúðir. Af þessum eignum eru
um 90 í eigu Íbúðalánasjóðs og
hafa komist í eigu sjóðsins eftir
hrun. Það er hins vegar sorg-
legra að á uppgangstímum á
Suðurnesjum þá standa um 50
af þessum 90 eignum í Sandgerði
auðar og yfirgefnar. Uppbygging
er í atvinnulífinu í Sandgerði og íbúum ætti að vera
að fjölga. Þeim hefur hins vegar fækkað, því skortur
er á húsnæði á sama tíma og þessar 50 fasteignir
standa auðar.
Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Sand-
gerðis, segir í samtali við Víkurfréttir í dag að hann
hafi fundið fyrir vilja fólks til að setjast að í Sand-
gerði. Þar skorti hins vegar húsnæði á sama tíma og
tugir eigna standi auðar og yfirgefnar. Þegar allar
forsendur segja að íbúum ætti að vera að fjölga, þá
er íbúum Sandgerðis að fækka. Það er uppbygging
í atvinnulífi Sandgerðis og hefur verið aukning í
atvinnu á öllu svæðinu en útaf þessari stöðu á fast-
eignamarkaði þá er að fækka íbúum.
Í viðtali við Víkurfréttir í dag segir Ólafur Þór m.a.:
„Sem forsvarsmaður sveitarfélags er það sárt og vont
að horfa uppá fjölskyldufólk og fólk sem á ekki þak
yfir höfuðið, vitandi um tómu eignirnar, að sveitar-
félagið geti ekki hjálpað þessu fólki. Það eru færri
börn í skólanum og við nýtum leikskólann ekki eins
vel. Við viljum fjölga íbúum, því þannig er auðveld-
ara að standa undir rekstri sveitarfélags og mannlífið
verður blómlegra.“
Ástandið í Sandgerði er ekkert einsdæmi. Í Sveitar-
félaginu Garði eru einnig fjölmargar tómar íbúðir
í eigu Íbúðalánasjóðs. Sagan er svipuð úr Reykja-
nesbæ. Við fluttum einmitt af því fréttir á dögunum
að eignasafn Íbúðalánasjóðs eða Leigufélagsins
Kletts, sem er í eigu sjóðsins, sé risavaxið á Suður-
nesjum. Um síðustu áramót voru eignir sjóðsins 781
íbúð á Suðurnesjum, 418 voru í sölumeðferð og 347
í leigu.
Starfshópur skipaður fulltrúum Sandgerðisbæjar
og Íbúðalánasjóðs hefur verið að skoða stöðu eigna
sjóðsins í Sandgerði með það að markmiði að leggja
fram tillögur um það hvernig megi bæta ástandið.
Þessi vinna hefur leitt í ljós að stór hluti af þessum
fasteignum séu farnar að súrna, þ.e. eignirnar eru
verðlagðar of hátt og ástand eignanna er þannig að
of dýrt er að koma þeim aftur á markað, hvort sem
er í sölu eða leigu. Vinnuhópurinn mun skila af sér
tillögum á næstu vikum.
Kerfið er hins vegar þungt í vöfum og því mun
ástandið í Sandgerði áfram verða súrt um nokkurt
skeið. Það er alls ekki gott því á Suðurnesjum hefur
orðið mikill viðsnúningur í atvinnumálum. Nú má
segja að hrópað sé á vinnuafl. Það vantar vinnandi
hendur á flestum sviðum atvinnulífsins en á sama
tíma skortir húsnæði.
Nýir liðsmenn Lögfræðistofu Suðurnesja í Reykjanesbæ
XXTveir lögfræðingar munu hefja störf hjá Lögfræðistofu Suðurnesja á næstu dögum. Alls
munu þá starfa sex lögfræðingar á stofunni.
Daníel Reynisson er lögfræðingur frá lagadeild Háskóla Íslands og stúdent frá Menntaskól-
anum við Sund. Daníel hefur starfað hjá Samgöngustofu frá árinu 2011. Lokaritgerð Daníels
við lagadeild HÍ fjallaði um einelti meðal barna út frá sjónarhóli lögfræði og var hluti af þver-
fræðilegri rannsókn á vegum rannsóknarstofnunar Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni.
Riti, sem inniheldur samantekt og niðurstöður rannsóknarinnar, var dreift í alla grunnskóla
landsins. Hann hefur flutt þó nokkra fyrirlestra um málefnið í kjölfar verkefnisins.
Arna Björg Rúnarsdóttir er lögfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og stúdent frá Mennta-
skólanum við Sund. Arna lauk prófi í verðbréfamiðlun árið 2012, öðlaðist málflutningsréttindi
fyrir héraðsdómi árið 2014 og löggildingu í fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu árið 2015.
Samhliða námi starfaði Arna hjá LOGOS lögmannsþjónustu og síðan sem lögfræðingur hjá
Landsbankanum árin 2011 - 2015.
Eldur í Nesfisktogara
fyrir norðan
XXNesfisktogarinn Sóley Sigurjóns GK var
dregin til Siglufjarðar eftir að ekki tókst að
koma aðalvél skipsins í gang eftir eldsvoða í
vélarrými skipsins á þriðjudag. Það var grind-
víska línuskipið Tómas Þorvaldsson GK sem
dró Sóleyju til Siglufjarðar en skipið var í um
klukkustundar fjarlægð frá Sóleyju þegar út-
kall barst.
Rétt fyrir hádegi á þriðjudag barst stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar tilkynning frá togaranum
Sóleyju Sigurjóns GK um að mikill reykur og
hiti væri í vélarrými togarans og hugsanlegur
eldur. Togarinn, sem er tæplega 800 tonn að
stærð og um 45 metrar á lengd, var staddur
um 25 sjómílur norðvestur úr Sauðanesi við
rækjuveiðar. Um borð voru átta skipverjar. Skip-
verjum tókst að loka vélarrýminu og kveikja á
slökkvikerfi sem kæfði eldinn.
Á meðfylgjandi mynd má sjá TF-LÍF, þyrlu
Landhelgisgæslunnar, yfir skipinu en þyrlan
flutti m.a. reykkafara um borð.
XXUngmennagarður, sem er afsprengi hugmynda- og undirbúningsvinnu Ungmennaráðs Grindavíkurbæjar, er að verða til á skóla-
lóðinni á mótum Ása- og Víkurbrautar í Grindavík. Þar hefur m.a. verið sett upp svokölluð aparóla sem mörg grindvísk börn hafa lengi
beðið eftir.
Þá er einnig búið að setja upp útigrill og skýli en meðal annarraa tækja sem verða í Ungmennagarðinum eru, sófaróla, minigolf, strand-
blak og trampólín körfuboltavöllur. Áfram verður unnið í uppbyggingu garðsins en í ár verður varið 6 milljónum í verkið en næstu tvö
ár fara samtals 8 milljónir í framkvæmdir í ungmennagarðinum.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hressa nemendur Grunnskóla Grindavíkur fá sér salíbunu í aparólunni nú í vikunni.
Hressandi salíbuna í aparólunni
VF-mynd: Hilmar Bragi
Ljósmynd:
Landhelgisgæslan