Víkurfréttir - 24.09.2015, Qupperneq 13
13VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 24. september 2015
pósturu hilmar@vf.is
Ljósmyndir úr landslagi Reykjanesskagans eftir Olgeir Andrésson.
oFood. Það snýst um
að nýta staðbundið
hráefni í matargerð
og koma því á fram-
færi. Fyrirtæki geta
nýtt sér Geopark í
sínu markaðsstarfi og
fengið ráðgjöf og aðstoð
frá okkar starfsfólki og
tengingar við fólk annars-
staðar í öðrum jarðvöngum“.
– Geta menn merkt sínar framleiðsluvörur
með merki Reykjanes Geopark?
„Já, það er meðal þess sem við horfum til.
Katla jarðvangur hefur útbúið merki fyrir
vörur sem framleiddar eru í þeirra jarðvangi
og við erum að horfa til þess sama. Við sjáum
til dæmis að veitingastaðir geti merkt rétti á
matseðli með Geopark-merkinu þannig að
viðskiptavinir sjái hvaða réttir eru unnir úr
hráefni heima í héraði.“
– Það var langt og strangt ferli að fá þessa
vottun?
„Já og það var mjög skemmtilegt. Við erum
reyndar með þeim fljótari sem hafa fengið
þessa vottun. Það tók
rúmt ár fyrir Kötlu
jarðvang að fá sína
vottun enda með lif-
andi eldfjall og erfitt
að segja að þeir séu
ekki merkilegir. Ferlið
tók okkur þrjú ár og
hefur gengið prýðilega.
Eggert Sólberg verkefnis-
stjóri hefur haldið vel utan-
um verkefnið. Flest þau svæði sem
eru að vinna í vottun núna hafa verið að
vinna að henni í 10-15 ár og því hefur okkur
gengið prýðilega. Við fórum þessa íslensku
leið, sóttum bara um, fengum athugasemdir,
brugðumst við þeim og lögðum svo inn
endurbætta umsókn. Við létum slag standa
og erum að uppskera núna“.
– Þið hafið opnað upplýsingamiðstöð um
jarðvanginn í Reykjanesbæ.
„Já, við opnuðum í mars landshlutamið-
stöð fyrir ferðaþjónustuna í heild sinni og
gestastofu Geopark. Í framhaldinu verða
opnaðar minni stofur í öllum hinum sveitar-
félögunum. Jafnframt erum við að opna nýja
vefsíðu, reykjanesgeopark.is, þannig að sýni-
leikinn er að aukast. Við höfum verið að nota
fánann meira og merkin eru komin upp á
brautinni, við erum að vinna í því að gera
okkur sýnilegri.“
- Og vinnan heldur áfram?
Já, við þurfum að standa okkur til að halda
vottuninni þannig að nú hefst vinnan aftur.
Við þurfum að endurnýja vottunina reglu-
lega. Fókusinn okkar núna er úti á Reykja-
nesi og við Brimketil. Við ætlum að halda
áfram að byggja upp þessa ferðamannastaði
og við vonumst til að ferðaþjónustan bregðist
vel við og byggi upp ferðaþjónustu á þessum
stöðum í leiðinni.
– Hverjar eru helstu áherslur Reykjanes
jarðvangs?
„Við erum að leggja áherslu á jarðminj-
arnar. Það eru flekaskilin, jarðvarminn og
allt sem því tengist sem er okkar kjarni og
við byggjum á. Við leggjum áherslu á að fólk
komi hingað og skoði jarðminjar og erum
með áherslu á vellíðunarferðamennsku. Bláa
lónið hefur verið að byggja það upp hjá sér
og við höfum það í sundlaugunum hér allt í
kring. Það sem þessu tengist svo eru göngu-
ferðir um svæðið, að hlaupa og hjóla í nátt-
úrunni er mjög vaxandi sport. Þá er jóga
og hugleiðsla í svona umhverfi stórkostleg
upplifun. Að vera í geo og vera í vellíðan, það
er okkar.“
REYKJANES JARÐVANGUR
Í SJÓNVARPI VÍKURFRÉTTA
FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 21:30 Á ÍNN
Valahnjúkur á Reykjanesi.
Keilir.