Víkurfréttir - 24.09.2015, Side 16
16 fimmtudagur 24. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Í KVÖLD
Sjónvarp Víkurfrétta
Meðal efnis í þætti vikunnar:
PÓSTKORT
MERKILEGUR
FRÁ SEX HEIMSÁLFU
M
JARÐVANGUR
HORFÐU Í HÁSKERPU
þegar þér hentar best á vef Víkurfrétta, vf.is
REYKJANES GEOPARK vinnur að því að
kveikja áhuga íbúa og gesta á Jörðinni, m.a.
með því að vekja athygli á áhugaverðri jarð-
sögu, fræða og annast landið. Hugtakið Geop-
ark er skilgrein af alþjóðlegum samtökum jarð-
vanga sem nefnast Global Geoparks Network
og starfa þau undir verndarvæng UNESCO. Um
100 geoparkar eru aðilar að samtökunum í dag,
þ.e. svæði svæði sem innihalda merkilegar jarð-
minjar og koma þeim á framfæri. Reykjanes
Geopark fékk formlega vottun sem geopark á
þrettándu haustráðstefnu European Geoparks
Network í Rokua Geopark í Finnlandi á dögun-
um. Sjónvarp Víkurfrétta kynnti sér það hvað
Reykjanes Geopark stendur fyrir.
NEMENDUR MYLLUBAKKASKÓLA fá núna
send póstkort víðsvegar að úr heiminum eft-
ir að hafa sett mynd á fésbókarsíðu þar sem
óskað var eftir póstkortum. Nemendurnir eru
í valáfanga og fengu þessa hugmynd að láta
reyna á mátt netsins til að komast í samband
við fólk um víða veröld. Þegar Sjónvarp Víkur-
frétta heimsótti nemendurna og kennara þeirra
á dögunum voru póstkortin orðin vel á fimmta
hundrað og daglega komu ný póstkort í hús.
Kortin eru frá yfir 50 löndum í sex heimsálfum.
Meira um það í Sjónvarpi Víkurfrétta.
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA er í eigu Víkurfrétta ehf. sem þú finnur á fjórðu
hæð Krossmóa 4a í Reykjanesbæ. Fyrirtækið gefur einnig út Víkurfréttir alla fimmtudaga og
heldur úti vefsíðunum vf.is og kylfingur.is. Ef þú vilt auglýsa í miðlum Víkurfrétta, í sjónvarpi,
blaði eða á vef, þá biðjum við þig að setja þig í samband við auglýsingadeild í síma 421 0001
nú eða bara að kíkja í kaffi í Krossmóa og kynna þér nánar auglýsingamöguleika Víkurfrétta ehf.
Ef þig vantar hönnun og prentun, þá er sú þjónusta einnig á sama stað.
FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 21:30 Á ÍNN
-aðsent pósturu vf@vf.is
Verkefnið „Skák eflir skóla – kennari verður skákkenn-
ari“ fór af stað í haust og taka
tveir skólar í Reykjanesbæ þátt í
því. Tilgangur og markmið verk-
efnisins er að auka færni og þekk-
ingu almennra kennara í skák-
kennslu.
Forsagan er sú að í ársbyrjun 2013
skipaði Mennta- og menningar-
málaráðherra nefnd til að kanna
kosti skákkennslu í grunnskólum
með sérstakri áherslu á áhrif skák-
kennslu á námsárangur og félags-
lega færni barna. Niðurstöður
nefndarinnar voru þær að það
þyrfti að fjölga þeim sem kenna
skák til að geta eflt skákkennslu í
grunnskólum. Í kjölfarið var Skák-
sambandi Íslands falið að hafa um-
sjón með verkefninu og auglýst var
eftir þátttakendum. Niðurstaðan
er sú að níu grunnskólar og einn
leikskóli á landinu voru valdir til
að taka þátt í þessu verkefni. Af
þeim eru tveir grunnskólar af
Suðurnesjum, Myllubakkaskóli og
Heiðarskóli í Reykjanesbæ.
Í Myllubakkaskóla fer skák-
kennslan fram í öðrum bekk og eru
tímarnir í stundatöflu nemenda og
sér umsjónakennari um kennslun-
ina. Í upphafi þurfti að dusta rykið
af skákdóti í skólanum og fannst
m.a. gamalt veggkennsluborð
í skólanum en ekki taflmenn til
að nota við kennsluna. Kennarinn
ásamt smíðakennara skólans tóku
sig þá til og söguðu út taflmenn til
að nota við kennsluna.
Í Heiðarskóla fer skákkennslan
fram í fjórða bekk skólans og eru
skáktímarnir einu sinni í viku í
stundartöflu nemenda. Kennari
innan skólans sér um skákkennsl-
una.
Skákkennari frá Skáksambandi Ís-
lands stýrir verkefninu og fylgir
því eftir. Hann kemur reglulega í
skólana og er kennurum til stuðn-
ings.
Kennarinn fær þannig um leið
þjálfun og kennslu til að verða
skákkennari. Nemendur eru mjög
áhugasamir og hafa gaman af þess-
ari nýjung í skólastarfi. Sumir
kunna eitthvað en aðrir eru að
tefla í fyrsta skipti. Fyrstu kennslu-
stundirnar fóru að mestu í að
læra hvað skákmennirnir heita og
hvernig þeir ganga um skákborðið.
Auk þess sem nemendur byrja að fá
að handfjatla skákmennina og taka
svokallaða peðaskák sem er góð
byrjun til að læra mannganginn.
Óskar Birgisson
■■ Óskar Birgisson skrifar:
Skák eflir skóla
Ljósmyndirnar tóku Svanhildur Skúladóttir og Óskar Birgisson.
Á hvaða braut ertu?
Ég er á félagsfræðibraut.
Hvaðan ertu og aldur?
Ég er 19 ára úr Keflavík.
Helsti kostur FS?
Ég bý mjög nálægt skólanum.
Áhugamál?
Allt sem tengist snyrtibransanum.
Hvað hræðistu mest?
Tívolí!
Hvaða FS-ingur er líklegur til
þess að verða frægur og hvers
vegna?
Anita Lóa verður frægur sam-
kvæmisdansari einn daginn.
Hver er fyndnastur
í skólanum?
Atli Haukur.
Hvað sástu síðast í bíó?
We are your friends.
Hvað finnst þér
vanta í mötuneytið?
Mmmm... eitthvað sætt eins og
bakarísmat.
Hver er þinn helsti galli?
Ég er oftast með óþolandi mikla
fullkomnunaráráttu.
Hvaða þrjú öpp eru mest
notuð í símanum hjá þér?
Ég nota yfirleitt Snapchat, Fa-
cebook og Instagram mest.
Hverju myndirðu breyta ef þú
værir skólameistari FS?
Loosen up a little.
Hvaða frasa eða orð
notar þú oftast?
Ég nota orðið „haaaa“ óþolandi
mikið.
Hvernig finnst þér
félagslífið í skólanum?
Það er allt á uppleið.
Hvert er stefnan
tekin í framtíðinni?
Ná sem lengst sem förðunar/
snyrtifræðingur.
Hver er best klædd/ur í FS?
Azra Crnac.
Ólöf Birna Jónsdóttir 19 ára Keflvíkingur og nemandi á félagsfræðibraut
í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún stefnir á að verða snyrtifræðingur
í framtíðinni enda er allt sem tengist snyrtibransanum hennar helsta
áhugamál.
Vantar eitthvað sætt eins og
bakarísmat í mötuneytið
-fs-ingur vikunnar
Kennari:
Hanna
Fag í
skólanum:
Ekkert því miður
Kvikmynd:
Lion King
Hljómsveit/
tónlistar-
maður: Ella Eyre
Leikari:
Channing Tatum
(þegar hann dansar)
Vefsíður: Youtube
Sjónvarps-
þættir: Suits
Flíkin: Tops-
hop galla-
buxur
Skyndibiti:
Serrano
Hvaða tónlist/lag
fílarðu í laumi (gulity
pleasure)?
Gísla Pálma.
Eftirlætis
Magnús Ketilsson, Auður Tryggvadóttir,
Sigurgísli Ketilsson, Halldóra Jóhannesdóttir,
Páll Ketilsson, Ásdís B. Pálmadóttir,
Valur Ketilsson, Hjördís Hilmarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ketill Vilhjálmsson,
fyrrv. bifreiðastjóri, Túngötu 5 Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 21. september.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 1. október kl. 13:00.
Blóma og kransar afþakkaðir en þeir sem vildu minnast
hans er bent á styrktarsjóð Kirkjuvogskirkju í Höfnum
0542-26-2902 kt. 690169-0299
Sigurður Smári Hreinsson,
Haraldur Grétar Jóhannesson, Majken Rod Jóhannesson,
Steingrímur Jóhannesson, Úrsúla Ögn Guðnadóttir,
Eva María Sigurðardóttir,
Sigurpáll Sigurðsson,
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Unnur Gréta G. Grétarsdóttir,
Melbraut 17, Garði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
föstudaginn 18. september.
Útförin fer fram frá Útskálakirkju,
föstudaginn 25. september kl. 15:00.
Óskum eftir smiðum og vönum
byggingaverkamönnum til starfa.
Upplýsingar gefur Andrés í síma 892 8621
ATVINNA
Vann iPad í fermingarleik
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Jón Þór Eyþórsson ú r R e y k j a n e s b æ
datt í lukkupottinn
í fermingarleik sem
allar verslanir Húsa-
smiðjunnar og Blóma-
vals stóðu fyrir fyrr á
þessu ári í samstarfi við
Macland.
Leikurinn fór þannig
fram að þegar fólk keypti
fermingarvörur í versl-
unum Húsasmiðjunnar
og Blómavals gat það
sett nafn fermingar-
barns í pott í versluninni.
Nokkrir vinningar voru
dregnir út en sá stærsti
kom t i l R e y kj anes-
bæjar. Á myndinni hér
að ofan afhendir Einar
L. Ragnarsson rekstrar-
stjóri Húsasmiðjunnar
í Reykjanesbæ Jóni Þór
aðalvinninginn, iPad
spjaldtölvu frá Maclandi.