Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.2016, Side 17

Víkurfréttir - 14.04.2016, Side 17
17fimmtudagur 14. apríl 2016 VÍKURFRÉTTIR ,,Við höfum áhyggjur af því að for- eldrar geri sér ekki grein fyrir því hversu algengt það er meðal ung- menna að skiptast á nektarmyndum, alvarleikinn felst fyrst og fremst í því þegar trún- aður er brotinn með því að áframsenda sl íkar myndir,“ segja þær Anna Hulda Einarsdóttir og Anna Sigríður Jóhannes- dóttir, verkefnastjórar hjá FFGÍR, Foreldra- félagi grunnskólanna í Reykjanesbæ. Umræða um nektarmyndir af ís- lenskum ungmennum og dreifing slíkra mynda hefur verið umfjöllunar- efni í fjölmiðlum og víðar undanfarin misseri. Þær segja afleiðingar slíkra mynddreifinga ófyrirsjáanlegar og í öllum tilfellum óheppilegar og alvar- legar. Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ buðu í vetur upp á fræðslufundi um sexting (að skiptast á nektarmyndum) og hrelliklám. Fund- irnir voru ætlaðir foreldrum barna á mið- og unglingastigi. Fræðslan bar heitið Ber það sem eftir er og var í samstarfi við Vodafone. Anna Sigríður segir ríka þörf fyrir vitundarvakningu og að upplýstir for- eldrar séu besta forvörnin. ,,Ábyrgðin er alltaf hjá þeim sem dreifir mynd- unum en það er ekki endilega víst að unglingar geri sér grein fyrir afleiðing- unum,“ segir hún. Í kjölfar foreldrafræðslunnar tók FFGÍR ákvörðun um að fræðslan væri nauðsynleg fyrir nemendur á mið- og unglingastigi í skólum Reykja- nesbæjar. Þá gætu foreldrar og börn rætt málin sín á milli af þekkingu og skilningi. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum ganga nektarmyndir af íslenskum börnum manna á milli á netinu og hefur lögreglunni reynst erfitt að bregðast við vandamálinu. Dreifingin er stjórnlaus og netið gleymir engu. Sexting meðal barna og unglinga eykur á vandann. „Rík þörf er fyrir vitundarvakningu og upplýst börn og foreldra og samfélagið í heild sinni. Ef ekkert er aðhafst geta fleiri börn lent í því að vera ber á netinu það sem eftir er,“ segir Anna Hulda. Anna Hulda og Anna Sigríður segja forvarnir virka best ef þær eru til staðar áður en hættuna beri að garði. Fræðsla fyrir nemendur í 5. til 10. bekk er undir heitinu Þegar myndir segja meira en 1000 orð. Sigríður Sigurjónsdóttur, höfundur verðlauna- myndanna Fáðu já! og Stattu með þér, flytur fyrirlestrana fyrir ungmennin og verður sá fyrsti í næstu viku. Verk- efnið var styrkt af Forvarnasjóði Reykjanesbæjar. Fræðsla fyrir ungmenni og for- eldra um sexting og hrelliklám Anna Sigríður Jó- hannesdóttir Anna Hulda EinarsdóttirVinna Vegagerðarinnar við sjóvarnar- garðinn á Hólmsvelli í Leiru fer brátt að ljúka. Þá er eftir vinna við frágang fjórðu brautarinnar, en í þá vinnu ætl- ar klúbburinn að ráðast síðar á árinu. Golfklúbbur Suðurnesja tók nýlega frábært myndband af framkvæmdum við völlinn sem sýnir vel hvernig sjó- varnargarðurinn breytir umgjörðinni og gefur aukið landrými. Myndin með fréttinni er úr því myndbandi. Þá er vinnu við hólinn á milli 17. og 18. brautar að ljúka. Verið er að klára að móta hann og til stendur að tyrfa á næstu vikum. Skemmst er frá því að segja að Leiran kemur afar vel undan vetri og það er tilhlökkun til sumarsins hjá GS eins og hjá öðrum. Flottar framkvæmdir við sjó- varnargarð á Hólmsvelli í Leiru Frá framkvæmdum við sjóvarnagarðinn í Leiru. Mynd: Jóhann Páll Kristbjörnsson SOHO CATERING HEFUR OPNAÐ AFTUR EFTIR SMÁ HLÉ... Í APRÍL VERÐUR OPIÐ FRÁ KL. 11:00 - 14:00. MATSEÐILINN ER Á WWW.SOHO.IS TILVALIÐ FYRIR VINNUSTAÐI AÐ PANTA OG SÆKJA Soho Catering – Veisluþjónusta // Hrannargata 6 ( áður Raggi bakari) // Sími: 421 7646 // Gsm 692 0200 // www.soho.is Fjármögnun Thorsil ljúki fyrir apríllok ■ Vonast er til að ljúka megi fjármögnun kísilvers Thorsil í Helguvík fyrir apríllok. Þetta segir Hákon Björnsson, forstjóri Thorsil á vef Vísis. Gangi það eftir sé vonast til að framkvæmdir af hálfu Thorsil geti hafist með haustinu og framkvæmdatími verði um tvö ár. Fyrirtækið hefur fimm sinnum fengið frest til að hefja greiðslu gatnagerðar- gjalda, nú síðast til 15. maí. VIKULEGUR FRÉTTAMAGASÍNÞÁTTUR FRÁ SUÐURNESJUM Á ÍNN FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 21:30 VIKULEGUR ÞÁTTUR FRÁ SUÐURNESJUM Á ÍNN FIMMTUDAG KL. 21:30 - eitthvað fyrir alla! - eitthvað fyrir alla! Hljómahallar Sjónvarp Víkurfrétta Sjónvarp Víkurfrétta +SKYNDIHJÁLP Í VOGUM VINSÆLDIR FRAMAR VONUM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.