Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.2016, Qupperneq 22

Víkurfréttir - 14.04.2016, Qupperneq 22
22 fimmtudagur 14. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR Guðjón Sveinsson er tvítugur Grind- víkingur sem veit fátt skemmtilegra en að grúska í músík. Síðustu þrjú ár hefur Guðjón verið í þremur hljóm- sveitum sem hafa leikið á úrslitakvöldi Músíktilrauna. Nú í ár hafnaði Guðjón ásamt hljómsveit Helga Jónssonar í öðru sæti keppninnar. Þar lék Guðjón á bassa og söng bakraddir en vanalega leikur hann á gítar. Hann er reyndar ansi fjölhæfur og dundar sér á flest þau hljóðfæri sem hann kemst í tæri við. Guðjón er eini Grindvíkingurinn í hljómsveitinni en vinkona hans úr Grindavík, Urður Bergsdóttir, spilaði á bassa og söng bakraddir í sigursveit- inni á Músíktilraunum. Hún fluttist ung frá Grindavík en faðir hennar er leikarinn Bergur Ingólfsson. „Ég kynnist strákunum í hljómsveit- inni bara í gegnum Facebook hóp, sem heitir hljóðfæraleikarar óskast/á lausu,“ segir Guðjón og hlær við en hann hefur leikið með flestum þessum strákum í rúm tvö ár. Þeir eru núna að hugsa hvað taki við en bandið var stofnað skömmu fyrir keppni en það er nokkuð algengt í Músíktilraunum. „Við ákváðum að láta vaða og gerðum nokkur demó. Svo var bara lært heima í nokkra daga og svo mættum við og spiluðum lögin. Ætli æfingarnar hafi ekki verið fjórar. Tvær fyrir undanúr- slit og tvær fyrir úrslitin,“ segir Guð- jón. Hljómsveitin leikur poppskotið progg sem er Innblásið af 70´s prog- grokki í rólegri kantinum, en Guðjón hlustar sjálfur talsvert á þannig tónlist. Guðjón fékk sinn fyrsta gítar í ferm- ingargjöf en áður hafði hann lært á píanó í Tónlistarskóla Grindavíkur. Þar er hann ennþá við nám og hyggst klára þaðan miðpróf í haust. Eins er hann í hljóðtækninámi í Stúdíó Sýr- landi. Hann hefur verið að fást talsvert við upptökur og hefur m.a. tekið upp eina plötu nú þegar. Honum finnst mikilvægt að byrja snemma að fikta við upptökur og slíkt „Nú vill maður hætta að vera fiktari og fara að læra þetta almennilega. Ég hef mestan áhuga á að taka upp tónlist, bæði mína eigin og fyrir aðra. Allt sem ég get komist með puttana í, það finnst mér skemmtilegt að prufa. Svo er bara spurning um í hverju maður festist.“ Guðjón segir stemninguna á úrslita- kvöldi Músíktilrauna alltaf vera frá- bæra. „Bæði þá í salnum og meðal hópsins en maður kynnist mikið af fólki á þessum kvöldum. Þetta er mikil hvatning fyrir þessu ungu bönd,“ segir Grindvíkingurinn hæfileikaríki að lokum. ●● Guðjón●Sveinsson●hefur●verið●í●úrslitum●síðustu●þrjú●ár.● ● Spilar●á●fjölda●hljóðfæra●og●tekur●upp●tónlist. Ljósmynd: Sólný Pálsdóttir GRINDVÍKINGAR sigursælir í Músíktilraunum www.n1.is facebook.com/enneinn Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægisíðu 440-1320 Langatanga Mosfellsbæ 440-1378 Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372 Dalbraut Akranesi 440-1394 Opið mán –fös kl. 08-18 laugardaga kl. 09-13 www.n1.is  Michelin CrossClimate Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir. Dekk sem henta margbreytilegum íslenskum aðstæðum sérlega vel og veita frábæra aksturseiginleika. Michelin Energy Saver Margverðlaunuð fyrir veggrip, endingu og eldsneytissparnað. Michelin Primacy 3 Einstakir aksturseiginleikar. Frábært grip og góð vatnslosun. Ein bestu sumardekkin á markaðnum í dag. Hluti af vorinu Rúllaðu inn í sumarið á nýjum dekkjum Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.