Víkurfréttir - 14.04.2016, Page 20
20 fimmtudagur 14. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR
Bátur, vef ja
eða salat
Stór bátur 999 kr.
599 kr. Kjúklingur, beikon, maribo-ostur, kál, tómatar, rauðlaukur og ranch-sósa
11.–17. APRÍL
Bátur vikunnar
PI
PA
R
\T
BW
A
•
S
ÍA þú velur bát,
veu eða salat
quiznos.is
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ:
NORÐLINGAHOLTI · GULLINBRÚ
ÁLFHEIMUM · SÆBRAUT · MJÓDD
GARÐABÆ · MOSFELLSBÆ
LANDSBYGGÐIN:
BORGARNESI · AKRANESI
AKUREYRI · REYÐARFIRÐI
KEFLAVÍK · SELFOSSI · HELLU
MESQUITE
Kjúklingur og beikon
599kr.
Árangur við úrvinnslu heimilisof-
beldis hefur tekið stakkaskiptum eftir
að lögreglan á Suðurnesjum hóf sam-
starf við félagsþjónustur sveitarfélag-
anna á Suðurnesjum. Hlutfall mála
þar sem rannsókn var hætt fækkaði
úr 94 prósentum árið 2010 í 3 prósent
árið 2015. Það sem meðal annars þótti
til bóta var að geta leitað til annarra
einstaklinga en lögreglu, þó mark-
mið allra sé það sama, að uppræta
heimilisofbeldi. Þar skiptir ekki síður
máli óeinkennisklætt starfsfólk. Fé-
lagsþjónustur sveitarfélaganna komu
að 42 málum af 62 árið 2015.
Að sögn Lögreglunnar á Suður-
nesjum hefur góður árangur náðst í
úrvinnslu heimilisofbeldis á Suður-
nesjum á undanförnum árum. Vís-
bendingar þar af lútandi eru til dæmis
upplýsingar frá Kvennaafhvarfinu um
að þangað hafi færri konur og börn
frá Suðurnesjum leitað eftir að breytt
verklag var tekið upp. Þá hafi fleiri
karlar af Suðurnesjum leitað aðstoðar
hjá Körlum til ábyrgðar (sem nú nefn-
ist Heimilisfriður) en áður.
Málum þar sem rannsókn
er hætt snarfækkar
Mál fá nú meiri framgang innan rétt-
arvörslukerfisins nú en áður og féllu
28 dómar í heimilisofbeldismálum á
Suðurnesjum á árunum 2011 til 2014.
„Árið 2010 var rannsókn hætt í 17 af
þeim 18 málum sem komu til rann-
sóknar hjá lögreglu, strax hjá rann-
sóknardeild. Þetta eru 94 prósent
málanna. Árið 2015 var þetta hlutfall
komið í 2 mál eða 3 prósent af þeim 62
málum sem komu upp það ár,“ segja
þeir Skúli Jónsson og Jóhannes Jens-
son hjá Lögreglunni á Suðurnesjum.
Nokkrar sveiflur hafa verið í mála-
fjölda undanfarin ár og má nefna
ýmsar hugsanlegar ástæður fyrir því,
svo sem betri skráningu hjá lögreglu
og aukna tiltrú almennings á verk-
laginu. Um 8 prósent þeirra heim-
ilisofbeldismála sem koma til kasta
lögreglu á landinu eiga sér stað á
Suðurnesjum en íbúafjöldinn er um
7 prósent af heildaríbúafjöldanum.
Að sögn Skúla og Jóhannesar er um-
dæmi lögreglunnar á Suðurnesjum
með hæsta hlutfall þessara mála utan
höfuðborgarsvæðisins.
„Verklagið hjá okkur gengur út á „að
halda glugganum opnum“ eins lengi
og þörf krefur. Það þýðir að lögregla,
barnaverndar- og félagsmálayfirvöld
komi að málum, afli eins mikilla upp-
lýsinga og unnt er, bjóði stuðning og
kynni bæði brotaþolum og gerendum
þau úrræði sem eru í boði, strax í
upphafi máls. Þá er málum fylgt eftir,
annars vegar með sambandi félags-
þjónustu við brotaþola innan þriggja
daga frá atburði og síðan með heim-
sókn lögreglu og félagsþjónustu að
jafnaði innan viku frá atburði. Þessi
aðferðafræði hefur almennt mælst vel
fyrir hjá brotaþolum sem telja sig fá
meiri stuðning og ráðgjöf en áður,“
segja Skúli og Jóhannes.
Skýr skilaboð um að
heimilisofbeldi sé ekki liðið
María Gunnarsdóttir, forstöðumaður
barnaverndar í Reykjanesbæ, segir
að markmiðið með verkefninu sé að
gefa út skýr skilaboð til íbúa um að
ofbeldi á heimilum verði ekki liðið.
„Það er gert með því að lögreglan á
Suðurnesjum leggur sérstaka áherslu
á rannsókn heimilisofbeldismála og
félagsþjónustur sveitarfélaganna á
Suðurnesjum setja það í forgrunn að
bæta þjónustu við þolendur og ger-
endur í heimilisofbeldismálum.“ Um
leið og lögreglan fær tilkynningu um
heimilisofbeldi kemur starfsfólk fé-
lagsþjónustu viðkomandi svæðis að
málinu.
Vorið 2015 hélt sænski félagsráðgjaf-
inn Inger Ekbom námskeið í Reykja-
nesbæ fyrir fagfólk sem vinnur með
börnum sem búa við eða hafa búið
við heimilisofbeldi. Ekbom er höf-
undur meðferðarúrræðisins Trappan,
sem gengur út á þrepaskiptingu við
meðferð þolanda allt frá fjögurra ára
aldri. „Í fyrsta þrepi er lögð áhersla
á tengslamyndun við barnið svo það
finni sig öruggt í að greina frá erfiðri
lífsreynslu. Í öðru þrepi er lögð áhersla
á uppbyggingu þar sem barnið vinnur
úr lífsreynslu sinni og í því þriðja er
unnið með þekkinguna á margvís-
legan hátt og framtíðin rædd,“ segir
María.
Á vef Reykjanesbæjar er tengill á
bækling um heimilisofbeldi á íslensku,
ensku og pólsku sem gefinn var út
af félagsþjónustum sveitarfélaganna
á Suðurnesjum, Velferðarvaktinni
og Velferðarráðuneytinu í kjölfar
samstarfsins. Slóðin er http://www.
reykjanesbaer.is/thjonusta/velferdar-
mal/heimilisofbeldi/ Nú er unnið að
endurútgáfu á bæklingnum á vegum
velferðarráðuneytisins.
Góður árangur við upp-
rætingu heimilisofbeldis
●● Færri●konur●og●börn●af●Suðurnesjum●leita●til●Kvennaathvarfs●●
eftir●að●nýjar●verklagsreglur●voru●teknar●upp
Mál látin niður
falla hjá Lögreglunni á Suðurnesjum
■2010 94% mála
■2015 3% mála
Herdis Andrésdóttir, Helga Andrésdóttir,
Jón Halldór Eiríksson, Aðalsteinn Már Aðalsteinsson,
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Kristbjörg Helgadóttir,
Smáratúni 24, Keflavík,
lést þann 31. mars.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk HSS D-deild
fyrir góða umönnun og umhyggju.
Henry Lirot, Brian Thor Lirot, Rebekka Zenith Lirot,
Amy Elisabet Gillette, Olof Ros Flemming og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Ragna Ólafsdóttir Lirot,
frá Njarðvík,
lést á heimili sínu í Ohio 6. apríl. Útförin verður mánu-
daginn 18. apríl kl. 14:00 frá Innri-Njarðvíkurkirkju.
Auglýsingasíminn
er 421 0001